06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í D-deild Alþingistíðinda. (5456)
943. mál, olíutankar á Keflavíkurflugvelli
Fyrirspyrjandi (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör þau, sem hann hefur gefið við fyrirspurnum mínum. En mér finnst, að þessir samningar gangi seint, því að þegar ég 1947 bar fram till. um endurskoðun Keflavíkursamningsins, skýrði hæstv. dómsmrh. svo frá, að þessir samningar stæðu þá yfir, svo að nokkuð hefur þetta dregizt á langinn. Þá vil ég sérstaklega spyrja hæstv. flugmrh., út af því, sem hann lýsti yfir, að Olíufélagið afgreiddi benzín til flugvéla Bandaríkjastjórnar, hvers konar ráðstafanir hafi verið gerðar af hinu opinbera, hvaða tankapláss sé notað handa flugvélum Bandaríkjastjórnar og hvaða handa prívatviðskiptaflugvélum. Ég skil ekki heldur, hvers vegna önnur félög geta ekki fengið aðgang að tönkunum með því að leggja önnur leiðslukerfi.