20.04.1949
Sameinað þing: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í D-deild Alþingistíðinda. (5479)

185. mál, prófdómendur og prófnefndir

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Ég mun bíða eftir svarinu. En ástæðan til fyrirspurnarinnar er sú, að ég tel nauðsyn fyrir þm. að vita þetta til þess að geta dæmt um það, hvort fela skuli húsameistara ríkisins þetta eða bjóða út til einstakra manna .... Þetta er ekki fullsannað um eitt atriðið. Ég bendi á það, að þessi ríkisrekstur er miklu ódýrari, en einstaklingsrekstur, og í öðru lagi bendi ég á, að húsameistari ríkisins hefur sjálfur eftirlit með þeim stórbyggingum, sem hann hefur með höndum. Þetta virðist ekki gert hjá einstökum arkitektum, sem taka upp á akkorð. Þeir fá því meira, því dýrari sem byggingin er.