20.04.1949
Sameinað þing: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í D-deild Alþingistíðinda. (5495)

948. mál, skilnaður Íslands og Danmerkur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég sé nú, að misskilningur hv. þm. S-Þ. er róttækari en ég gerði ráð fyrir. Hann virðist álíta, að Danir njóti enn jafnréttis við Íslendinga og að Danir njóti hér fiskveiðiréttinda. Danir njóta alls ekki jafnréttis að öllu á við Íslendinga sjálfa, frekar en ríkisborgarar annarra ríkja, sem hér dveljast í lengri eða skemmri tíma. Þeir verða að lúta íslenzkum lögum í einu og öllu, á meðan þeir dveljast hér á landi og er það ekkert öðruvísi, en með aðra Norðurlandamenn. Hitt er svo annað mál, að sérstakar reglur gilda um ferðalög milli þessara landa, og hafa m.a. Danir viðurkennt þá reglu, að ekki þurfi vegabréfsáritun í ferðalögum milli Íslands og þess lands. Þá hafa Danir viðurkennt, að sérstakir samningar, sem voru í gildi á milli Íslendinga og Dana, á meðan þessi lönd voru í nánari tengslum, hafi fallið úr gildi. Má hér t.d. minna á fiskveiðiréttinn. Þar kemur ljóst fram, hverjum augum Danir líta á það mál, en þeir hafa hér takmarkaðan fiskveiðirétt, sem framlengist með sérstökum l. frá ári til árs. Hitt er svo annað mál, að þessi réttur hefur enn sem komið er ekki verið skertur, en vitaskuld hefur Alþingi það í hendi sér, hvenær sem því býður við að horfa, að óbreyttu ástandi. Síðan ég tók sæti í ríkisstj., hafa Danir ávallt minnzt á fiskveiðisamninginn og viljað endurnýja hann, en þannig hafa þeir viðurkennt, að fyrri samningar hafi fallið úr gildi með sambandsslitunum. Mér finnst því vantraust hv. þm. S-Þ. vera nokkuð mikið á frændum vorum Dönum.