22.10.1948
Neðri deild: 6. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í B-deild Alþingistíðinda. (585)
13. mál, ríkisborgararéttur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Frv. þetta skýrir sig að mestu leyti sjálft. Ég hef tekið flestar umsóknir til greina. Þó eru nokkrar eftir, sem álitamál er, hvort eigi að taka með, og getur þá hv. allshn., sem þetta mál mun fara til, athugað það betur.
Í frv. stendur, að ég hafi reynt að taka til greina umsóknir þeirra manna, sem áður hafa haft íslenzkan ríkisborgararétt, en hafa af einhverjum ástæðum misst hann. Í öðru lagi hef ég tekið til greina umsóknir þeirra manna, sem hafa dvalið hér svo lengi, að ástæða er til að ætla, að þeir vilji raunverulega tengjast böndum við Ísland, og ég sé ekkert sérstakt á móti því, að þeir fái þessi réttindi. Um suma þessara manna hefur verið ágreiningur undanfarin ár, en þar sem þeir hafa tekið hér upp störf og þar með sýnt, að þeir vilji verða íslenzkir ríkisborgarar, þá getur það talizt eðlilegt, að þeim verði veittur hann nú, enda þótt ekki þætti ástæða til þess að verða við öllum slíkum umsóknum strax eftir stríð, meðan hugsanlegt var, að menn freistuðust til þess að ná í íslenzkan ríkisborgararétt einungis til þess að útvega sér betri aðgang að einhverju öðru landi. Og í þeim tilfellum hér, þar sem má jafnvel búast við, að um slíkan tilgang sé að ræða, hef ég ekki treyst mér til að taka umsóknir til greina.
Ég legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn., og skora ég á n. að hafa samvinnu við mig, ef hún vill bæta einhverju við frv. og gera breytingar á.