11.02.1949
Neðri deild: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (593)
13. mál, ríkisborgararéttur
Jón Pálmason. Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera hér fram eina brtt. við þetta frv. Brtt. mín fjallar um það, að inn á frv. verði tekinn maður, sem n. hefur gengið fram hjá, Edelstein, WoIfgang Michael, námsmaður í Reykjavík. Það vill svo til, að ég þekki þennan dreng mæta vel. Hann hefur verið 4 sumur á næsta bæ við mig og reynzt sérstaklega duglegur og ábyggilegur drengur. Ég sé ekki neina ástæðu til þess, að hann fái ekki íslenzkan ríkisborgararétt, úr því að hann fullnægir þeim skilyrðum, sem l. ákveða. Hann er námsmaður í menntaskólanum í Reykjavík. Hann hefur mjög gott vottorð frá rektor menntaskólans um, að hann hafi reynzt þar mæta vel, og vænti ég því, að hv. þm. vilji samþ. þessa brtt.