05.04.1949
Efri deild: 82. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (616)

13. mál, ríkisborgararéttur

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Ég á brtt. á þskj. 453, sem hv. nefnd hefur ekki talið fært að taka inn með sínum till. um það fólk, sem n. leggur til, að fái borgararétt. N. segir í nál. sínu, að hún leggi til, að fast verði haldið við fyrri reglu um að veita ekki öðrum ríkisborgararétt en þeim, sem fæddir eru á Íslandi, og Skandinövum. Hér er því ekki til að dreifa, að sú regla verði brotin, því að það er íslenzk kona, sem í hlut á. Ég vil taka undir það með hv. þm. Barð., að það er einkennilegt, ef n. hefur slíka reglu, að hún skuli láta fara í gegn nöfn, er brjóta gegn reglunni, því að í nál. segist n. vilja gera undantekningu varðandi nokkra menn, er ekki uppfylla skilyrði n. Mér finnst hart, að n. skuli láta slík nöfn fljóta með, þegar hún lætur undir höfuð leggjast að mæla með fólki, sem fætt er á Íslandi og þarf að fá ríkisborgararétt. Sú kona, sem hér á hlut að máli, hefur verið hér síðan 1945. Hún giftist Englendingi, en er að öllu leyti skilin við hann, þó að hún hafi ekki getað fengið formlegan skilnað. Það er erfitt að fá skilnað í Englandi, og maðurinn neitar að veita hann. Mér skilst, að neitun n., bæði í Nd. og Ed., byggist á því, að hún sé ekki skilin við mann sinn. En ég vil biðja d. að athuga, að það geta verið miklir örðugleikar á því, að kona geti uppfyllt þau skilyrði, sem n. setur. Ef erfiðleikar eru lagðir í veginn í Englandi, er það ekki hægt nema með stórkostlegum kostnaði. Ef konan hins vegar fær ríkisborgararétt, þá er hægara fyrir hana að sækja rétt sinn með aðstoð íslenzku sendisveitarinnar í London, en á því eru vandkvæði, eins og sakir standa. Ég get ekki séð, að það sé nein goðgá að veita slíkum konum borgararétt til þess að gera aðstöðu þeirra betri. Ég get ekki séð, að það brjóti reglur n. meira en ýmislegt, sem áður er fram komið og kemur fram í nál. n.