22.10.1948
Neðri deild: 6. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (65)
15. mál, virkjun Sogsins
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Í l. um virkjun Sogsins frá 23. apríl 1946 er gert ráð fyrir í 7. gr., að ríkið og Reykjavíkurbær taki upp samninga um sameign og samrekstur Sogsvirkjunarinnar. Samkvæmt þessu hófust viðræður milli atvmrn., sem fer með raforkumál ríkisins, og borgarstjórans í Reykjavík og annarra þeirra, sem fara með þessi mál fyrir hönd bæjarins, um væntanlega samninga milli ríkis og bæjar um þessa samvinnu og sameign. Þessar umræður hófust snemma sumars 1947, og hefur þeim verið haldið áfram síðan milli fulltrúa frá atvmrn. annars vegar og Reykjavíkurbæ hins vegar. Nú á þessu sumri var þessum samningum lokið í bili með sameiginlegri niðurstöðu og samkomulagi um samning. Í 7. gr. l. er gert ráð fyrir, að þegar ríkið verður meðeigandi að Sogsvirkjuninni, þá verði það eigandi að henni hálfri og fari þá fram samningar um, að ríkið yfirtaki eignir þær, sem Reykjavíkurbær á í Sogsvirkjuninni, og ef ekki náist samningar, þá fari fram mat, þannig að það verði metið, hvað ríkinu ber að greiða bænum. En það varð samkomulag um að láta þessa eign myndast með öðru móti, m.ö.o. þannig, að ríkið eignist smátt og smátt Sogsvirkjunina í hlutfalli við þá orkunotkun, sem ríkið hefur í virkjuninni á hverjum tíma. Þetta fyrirkomulag er tekið upp í 5. gr. samningsins, og vil ég lesa hana upp til skýringar, með leyfi hæstv. forseta:
„Eignarhlutföll Reykjavíkurbæjar og ríkissjóðs í Sogsvirkjuninni skulu vera sem hér segir:
Við undirskrift samnings þessa verður Reykjavíkurbær eigandi að 85 hundraðshlutum, en ríkissjóður að 15, og skal svo haldast, þar til lokið er næstu framhaldsvirkjun. Þegar henni er lokið, verður Reykjavíkurbær eigandi að 65 hundraðshlutum, en ríkissjóður að 35, og skal svo haldast, þar til lokið er næstu aukningu virkjunarinnar þar á eftir. Þegar henni er lokið, verður Reykjavíkurbær eigandi að 50 hundraðshlutum og ríkissjóður að 50, og skal svo haldast áfram.
Ríkissjóður verður eigandi að mannvirkjum þeim, sem fyrir eru í fyrirtækinu í framangreindum hlutföllum, þegar hann hefur tekið á sig þá ábyrgð, er segir í 7. gr., og aðrar þær skuldbindingar, sem ríkið gengst undir með samningi þessum.“
Með þessu fyrirkomulagi verður ríkið automatískt eigandi að Sogsvirkjuninni á móti Reykjavíkurbæ eftir þeim hlutföllum, sem notkunin segir til við orkuaukninguna. Koma því ekki til greina sérstök kaup eða mat á þeim eignum, sem fyrir eru.
En í sambandi við þessa niðurstöðu breytast ástæðurnar fyrir því, hvernig stjórn þessa fyrirtækis skuli skipuð. Þannig var gert ráð fyrir í l., að stjórnin væri þannig skipuð, að Reykjavíkurbær skipaði tvo menn, ríkið tvo, en hæstiréttur þann fimmta sem oddamann. En þetta ákvæði var byggt á því, að ríkið og Reykjavíkurbær ættu þetta fyrirtæki að jöfnum hlutum. En við þessa breytingu var farið fram á það af hálfu Reykjavíkurbæjar, að sú breyt. yrði gerð á fyrirkomulagi stjórnarinnar, að á meðan Reykjavíkurbær á yfirgnæfandi meiri hluta í fyrirtækinu, þá skipaði hann þrjá menn, en ríkið tvo, þangað til hlutföllin yrðu þannig, að ríki og bær ættu jafnmikið, þá komi þetta upphaflega ákvæði í gildi, að hvor aðili tilnefni tvo menn og hæstiréttur einn. Mér þótti eðlilegt f.h. ríkisins að ganga inn á þessa breyt. á fyrirkomulagi stj., með því líka að ég hef kynnt mér, að það er mjög svipað því fyrirkomulagi, sem nú er í gildi og hefur verið komið á í sambandi við sameign Noregs og Óslóborgar í virkjuðum fallvötnum. Um þetta varð samkomulag milli atvmrn. og fulltrúa þess, m.a. raforkumálastjóra, sem hefur haft forgöngu um þessa samninga, og borgarstjóra hins vegar og bæjaryfirvaldanna, og vil ég í því sambandi lesa upp bréf frá borgarstjóranum í Reykjavík, þar sem hann staðfestir þetta samkomulag. Það hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég leyfi mér að staðfesta, að nú um nokkurra mánaða skeið hefur verið unnið að samningagerð milli ríkisstjórnarinnar og bæjarstjórnar Reykjavíkur um það mikilvæga málefni, með hverjum hætti ríkisstjórnin skuli verða meðeigandi Sogsvirkjunarinnar samkvæmt 7. grein laga um virkjun Sogsins, nr. 28 23. apríl 1946.
Ég staðfesti, að bæjarráð mun fyrir sitt leyti samþykkja meðfylgjandi samningsfrumvarp að efni til, en það frumvarp hefur verið rætt af fulltrúum bæjarráðs við fulltrúa ríkisstjórnarinnar, Jakob Gíslason raforkumálastjóra og Ólaf Jóhannesson prófessor, og að síðustu við Gunnlaug E. Briem skrifstofustjóra.
Samkvæmt samningsfrv. verður ekki hjá því komizt að gera þær breytingar á gildandi lögum um virkjun Sogsins, er að framan getur, að 8. gr. laganna verði breytt í það horf, er í samningsfrv. greinir.
Ég vísa til viðtals við hæstv. atvinnumálaráðherra um þetta málefni og staðfesti samkomulag við hann um, að nauðsyn beri til breytinga á 8. gr. Sogsvirkjunarlaganna, til að samningar megi takast, og staðfesti jafnframt þá sameiginlegu skoðun okkar, að til þess að ganga megi hið fyrsta frá fullnaðarsamningum, sé æskilegt, að gefin verði út bráðabirgðalög um framangreinda lagabreytingu.“
Ég tel, að eins og sakir standa, séu þetta mjög hagkvæmir samningar og vil þakka borgarstjóra og bæjaryfirvöldum að því leyti, sem þau hafa fjallað um þetta mál. Ég legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og iðnn.