27.10.1948
Neðri deild: 7. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (652)
16. mál, áburðarverksmiðja
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég hafði búizt við, að hæstv. landbrh. tæki hv. 2. þm. Reykv. á orðinu,ekki viðvíkjandi áburðarverksmiðjumálinu, sem hér er til umr., heldur út af áburðarþörfinni í landinu, sem hann gerði að umtalsefni. Ég tók eftir því, að hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það væri hægt að fá nógan áburð fyrir næstu missiri. Mér finnst ekki nóg að kasta þessu fram, ég vil, að hv. þm. geri grein fyrir því hér í hv. d., því að þetta er svo mikið atriði, sem varðar landbúnaðinn, og þar sem það hefur líka verið upplýst af hæstv. landbrh., að ekki muni fást flutt inn til landsins næsta ár nema 1.800 smál. af köfnunarefni, en það er vitanlega of lítið. Ég yrði því þess vegna feginn, ef þetta, sem 2. þm. Reykv. sagði, væri eitthvað annað en bara fleipur út í loftið, og ég vil mælast til þess, að hann geri grein fyrir þessu nánar. Vera má, að hæstv. ríkisstj. geti haft einhver not af þeim upplýsingum, sem hv. þm. gefur í þessu efni.
Hv. 1. þm. Skagf. sagði áðan, að það mætti ekki fara út í hreppapólitík með þetta mál og ekki togast um það hér á hæstv. Alþ., hvar eigi að reisa þessa áburðarverksmiðju. Það, sem ég sagði um þetta mál áðan, var það, að ég hefði trú á, að heppilegt væri að reisa verksmiðjuna í Þorlákshöfn, og ég mundi flytja brtt. við frv. um að staðsetja verksmiðjuna þar, nema því aðeins að það kæmu svo sterk rök gegn því, að ég hætti við það af þeim sökum, en hingað til hafa þau ekki komið fram. Hv. 1. þm. Skagf. sagði, að við yrðum að fela það sérfróðum mönnum að segja til um, hvar heppilegast sé að reisa verksmiðjuna. Ég tel mig hafa fengið nokkrar þær upplýsingar, sem styðja þessa skoðun mína, og mun ég halda áfram að afla mér þeirra. Hvað sem annars má um togstreitu um mál segja, þá tel ég það skyldu þm. að þegja ekki hér á hæstv. Alþ. við afgreiðslu mála, ef þeim sýnist hún megi betur fara, heldur láti þeir sína skoðun í ljós, ef þeir hafa sannfæringu um það, að þeir hafi rétt að mæla. En ég skal taka það fram, að það var alls ekki meiningin að fara hér í óeðlilega togstreitu um þetta mál, enda tók ég það fram í upphafi.
Mér skildist á ræðu hæstv. ráðh. áðan, að það væri eitt atriði mikilsvert varðandi staðsetningu þessarar verksmiðju að hafa hana nærri Reykjavík, vegna þess að þá væri hægt að losna við að byggja íbúðir yfir starfsmenn verksmiðjunnar. Það má vera, að fljótt á litið geti það talizt heppilegt. En það er ekki heppilegt frá sjónarmiði þeirra manna, sem telja ekki æskilegt, að fólkið haldi áfram að streyma til Reykjavíkur. Það er ekki af óvináttu við Reykjavík, að ég mæli svo, en ég er þeirrar skoðunar, að það sé hollara fyrir okkar þjóðfélag að dreifa fólkinu meira um landið, heldur en að stuðla að því að safna því saman á einn stað, en erum við ekki á þeirri leið einmitt núna? Er ekki svo komið nú, að 2/5 hlutar af þjóðinni eru komnir til Reykjavíkur? Það er þess vegna, að Reykjavík er talin stærsta höfuðborg í heimi miðað við fólksfjölda í landinu. Ef sú þróun á að halda áfram, sem verið hefur síðustu árin, þá er ekki langt að bíða, þar til helmingur þjóðarinnar er kominn til Reykjavíkur, og þá ekki mjög langur tími, þar til 2/3 hlutar þjóðarinnar eru komnir þangað. Hvernig erum við þá á vegi stödd hagsmunalega og menningarlega?
Ég hafði búizt við því, að hæstv. ráðh. hefði fram að færa sterkari rök gegn því,að þessi verksmiðja yrði ekki byggð í nágrenni Reykjavíkur, en þau að spara í upphafi að byggja yfir verkamenn, sem eiga að vinna við verksmiðjuna. Það er þá meiningin að halda áfram fólksflutningunum til Reykjavíkur, og það er meiningin að byggja og byggja í Reykjavík, sem óhjákvæmilega styður að því að auka stöðugt fólksflutningana til Reykjavíkur. Hafa stjórnarvöld landsins enn ekki komið auga á þá hættu, sem af því mun leiða? Ég skal ekki um það segja, hvað aðrir hæstv. ráðh. hafa að segja í þessu efni, og það kann líka að vera, að hæstv. landbrh. hafi ekki svo sterka skoðun á þessu, þótt hann hafi slegið þessu fram áðan. Ég vil, að hann endurskoði afstöðu sína í þessu efni, ekki vegna þess, að ekki eigi að styðja viðgang Reykjavikur, heldur til að koma í veg fyrir, að fólkið af landsbyggðinni haldi áfram að þjappast hér á þennan eina stað.