07.02.1949
Neðri deild: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (665)
16. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. minni hl. (Sigurður Guðnason) [Frh.]:
Herra forseti. Við fyrri hluta þessarar umr. gerði ég að mestu grein fyrir afstöðu minni hl. landbn. í þessu máli, og hef ég í rauninni ekki neinu við það að bæta og get vísað til þess og nál. minni hl. n., sem er allýtarlegt, ásamt fylgiskjölum sérfræðinga þeirra, er leitað var til. Mér er ljóst, að þetta er það stórt mál, að til þess þarf sameiginlegt þjóðarátak, en ég er líka sannfærður um, að það mun takast, ef allir verða samtaka.