18.02.1949
Neðri deild: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (684)
16. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. minni hl. (Sigurður Guðnason):
Herra forseti. Viðkomandi brtt. hv. meiri hl. n. um útsvarsskyldu verksmiðjunnar kemur það sama fram hjá þeim eins og alltaf, að þeir miða þessa verksmiðjubyggingu í öllu tilliti við það, hvað borgi sig bezt fyrir landbúnaðinn. En brtt. minni hl. var miðuð við það, að tekjuafgangur verksmiðjunnar væri samkv. þeim útreikningi, sem settur er fram í áliti minni hl. n. Ég álít óþarfa að breyta frá því, sem þar var lagt til um útsvarið. Ég fyrir mitt leyti var ekki að halda fram neinu í þá átt, að þetta fyrirtæki ætti ekki að borga útsvar, en vildi hafa það í hófi. En það má öllum mönnum vera ljóst, — þó að menn geri ákaflega mikið úr því, hvaða hlunnindi sé um að ræða fyrir þann kaupstað eða þann hrepp, sem þessi verksmiðja yrði byggð í, með því að fá verksmiðjuna til sín, að það er mikill munur á því, ef verksmiðjan sjálf þarf að halda við öllum tækjum og byggingum sínum á sinn kostnað eða fyrirtæki er byggt í bæjarfélagi, þar sem það þarf þess ekki.
Ég hef lagt til, að málsliðurinn í 2. gr. frv.: „Vexti af .... erlendan áburð“ — falli burt. En meiri hl. n. vill einnig fella niður ákvæði 2. gr. frv. um, að fjárframlag ríkissjóðs eigi að ná til þess að tryggja verksmiðjunni nægilega raforku til áburðarvinnslunnar, ef þörf gerist. Þetta vil ég ekki fella niður. Og meiri hl. n. mun sannfærast um það, eins og allir, sem líta á þetta mál, að þessi áburðarverksmiðja verður aldrei byggð, nema sérstaklega sé séð fyrir rafmagnsþörf hennar án tillits til Sogsvirkjunar. Það, sem gerzt hefur í þessu áburðarverksmiðjumáli, er þetta: Árið 1944 er flutt frv. um að reisa áburðarverksmiðju, sem framleiði 3100 smálestir af áburði á ári, og þessa verksmiðju skyldi reisa á Akureyri til þess að taka við og nota afgangsrafmagn frá Laxárvirkjuninni. Sá afgangur reyndist svo enginn, þegar til kom. Nákvæmlega sama virðist vera að gerast hér. Það á að byggja verksmiðju, 7500 smálesta, til þess að taka við ímynduðum afgangi af rafmagni frá Sogsvirkjun. Og það veit hver maður, að þetta rafmagn sem afgangur af því, sem fólk þarfnast til annarra nota, verður alls ekki til í sambandi við Sogsvirkjun. Og ef á að miða þetta fyrirtæki við það að nota rafmagn frá Sogsvirkjun, þá er sama, hvort þetta frv. verður samþ. eða ekki, því að þá verður áburðarverksmiðjan aldrei byggð.
Viðvíkjandi því, sem hv. frsm. meiri hl. n. tók fram um það, að ég vildi fimm manna stjórn fyrir þessa verksmiðju í staðinn fyrir, að þrír menn væru í þeirri stjórn, þá tek ég þá till. aftur, því að ég tel nákvæmlega sama, hvort í verksmiðjustj. verða 5 menn eða 3.