22.02.1949
Neðri deild: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (698)

16. mál, áburðarverksmiðja

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Ég get eftir atvikum sætt mig við það að fallast á brtt. hv. meiri hl. landbn. á þskj. 386 og mundi þá taka mína brtt. á þskj. 373 aftur. Ég geri þetta með þeim skilningi, að þegar verið sé að reikna út kostnaðarverð fyrir áburðarverksmiðjuna, þá sé talinn allur venjulegur rekstrarkostnaður verksmiðjunnar og þar í faldir vitanlega vextir, fyrningarsjóðsgjöld og önnur nauðsynleg útgjöld verksmiðjunnar, þó að ég hins vegar hefði kunnað betur við, að þetta væri nokkru nánar skilgreint, svo sem gert hefur verið í lögum um síldarverksmiðjur ríkisins. Það er dálítið varhugavert viðkomandi lagasetningu að byggja allt of mikið á yfirlýsingum. Og í raun og veru þegar um svona stór fyrirtæki er að ræða eins og áburðarverksmiðju, sem við vitum lítið enn þá, hvað muni kosta, en mundi alltaf verða veruleg aukning á skyldum ríkissjóðs, þá virðist mér mjög varhugavert að setja ekki alveg fastar reglur eða fyrirmæli um þetta. — Ég hef bent á það, að í þessum verksmiðjulögum stendur ekkert um það, hver beri ábyrgð á rekstri verksmiðjunnar. Um þetta þótti þó á sínum tíma nauðsynlegt að setja ákvæði inn í lögin um síldarverksmiðjur ríkisins, af því að um þetta hafði risið nokkur deila manna á milli. Hér er engu slíku til að dreifa. Og sennilega mun þó, þrátt fyrir yfirlýsingu hæstv. atvmrh., ríkissjóður bera ábyrgð á þessari verksmiðju, ef ekki er tekið annað fram um þetta. Hins vegar er það rétt hjá hv. frsm. meiri hl. landbn., að það hefur talsvert verið rætt um þetta mál. En þó hygg ég, að ef frv. fengi verulega athugun, þá mundi það geta tekið nokkrum stakkaskiptum. Mér dettur í hug t.d., að í 5. gr. er ákvæði um það, að verksmiðjan skuli „reist svo fljótt sem ástæður leyfa að dómi verksmiðjustjórnar og með samþykki landbrh., enda hafi þá fengizt trygging fyrir nægri raforku og nægilegu fé til greiðslu stofnkostnaðar“. Mér hefði nú ekki fundizt það vera nein sérstök varasemi frá þingsins hálfu, þó að fyrir „landbrh.“ í þessari grein kæmi: ríkisstjórnar, því þó að ég sé ekki að lýsa neinu vantrausti á hæstv. landbrh., þá vitum við sannarlega ekki, hver verður landbrh., þegar þessi mál kynnu að koma til framkvæmda. Og þá virðist það ekki vera til of mikils mælzt, ef þingið samþ. slíkt frv. sem þetta í hendur ríkisstjórnar, þar sem ekki eru neinar upphæðir ákveðnar, en hægt að taka lán eftir ákvæðum þess alveg takmarkalaust, eftir því sem lánstraust ríkisins leyfir, að það væri ákveðið í þessum l., að það væri a.m.k. öll ríkisstj., sem sammála væri um framkvæmdirnar. Og án þess að ég sé með neinar hrakspár um þetta fyrirhugaða fyrirtæki, þá er rétt að minnast þess, að við höfum slæma reynslu af hliðstæðu ákvæði um að leggja allt í hendurnar á einum ráðh. í samstjórn, og á ég þar við — án þess að ég ætli að fara að rifja upp deilur um það mál — síðustu byggingu síldarverksmiðja ríkisins. Þær ættu í raun og veru að vera slíkur varnaður fyrir hæstv. Alþ., að Alþ. í framtíðinni legði ekki mál sem þessi og þar að auki framkvæmd eftir alveg ótakmarkaðri lánsheimild í vald eins ráðh. í sennilega sex ráðherra ríkisstjórn.

Ég get svo að öðru leyti látið útrætt um þetta. Ég lagði áherzlu á, að áður en gengið yrði frá þessu máli, yrði leitað eftir áliti sérfræðinga Marshallaðstoðarinnar. Ég sagði ekki sérstaklega erlendra sérfræðinga, heldur sagði ég sérfræðinga Marshallaðstoðarinnar, af því að ég geri ráð fyrir, um þetta mál, ef að framkvæmd verður, þá komist það áleiðis fyrir Marshallaðstoð. En einmitt með því að leita til þeirra sérfræðinga, þá ætti að vera auðveldara að fá afgreiðslu málsins, hvað fjárhagshliðinni viðvíkur, samþykkta, ef þeir eru hafðir í ráðum með þessu nokkuð snemma á undirbúningstímanum.

Það vakti dálítið undrun mína að heyra þá yfirlýsingu hæstv. atvmrh., að um stofnsetningu sementsverksmiðjunnar hefði mest verið leitað til Danmerkur. Það má vel vera, að þar séu sérfræðingar í þessum efnum. Skal ég ekki efa það að neinu leyti. En þó er það svo, að Danir munu ekki hafa neina sérfræðinga um fossavirkjun, sem að sjálfsögðu þyrfti að athuga í sambandi við sementsverksmiðju. Og um þetta mál, sem hér liggur fyrir, hefði ég talið, — sem og væntanlega verður gert eftir yfirlýsingu hæstv. atvmrh., — að það hefði nú þegar þurft að leita aðstoðar Marshallsérfræðinganna í þessu efni. Það er kunnugt, að Bandaríkjamenn hafa í fossavirkjun alveg sérstöðu, sem og í ýmsum öðrum verklegum framkvæmdum. Og ef sú mikla reynsla og þekking, sem þeir eiga yfir að ráða, stæði okkur til boða t þessum efnum, þá teldi ég mjög miður farið, ef hún yrði ekki notuð.