19.04.1949
Efri deild: 85. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (713)
16. mál, áburðarverksmiðja
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég á hér brtt. við frv. á þskj. 534. En áður en ég ræði um hana, vil ég ræða málið almennt. Er það eigi óeðlilegt, að þetta mál, er kostar ríkið um 40 millj. kr., sé nokkuð rætt hér í d. Eitt atriði þess hefur orðið að meginágreiningi með nm., en það er stærðin. Mér finnst ekki óeðlilegt, að sá hl. n., sem eigi getur fellt sig við 7.50010.000 smál. verksmiðju, heldur gerir till. um 35–4.000 smál. verksmiðju, muni gera það að skilyrði fyrir fylgi sínu við málið, að hún verði samþ., — ef marka má rök hans. Séu þau sönn, þá er meginatriðið, að verksmiðjan verði byggð, eins og minni hl. leggur til. Mér finnst eðlilegt, að það sé gert að skilyrði fyrir fylgi við málið. En hæstv. ríkisstj. og Alþ. hlýtur að gera það upp, hvort 7.500 smál. verksmiðja geti borið sig fjárhagslega eða geti framleitt áburð, sem sé samkeppnisfær við erlendan áburð, er flyzt til landsins. Augljóst er, að komi það í ljós, að verksmiðja, sem byggð er fyrir 40 millj. kr., geti eigi framleitt eins ódýran áburð og aðrar þjóðir, þá er grundvellinum undan rekstrinum kippt burt. Bændur munu ekki sætta sig við að greiða dýrari áburð, sem framleiddur er hérlendis, en fá ekki erlendan áburð. því er meginskilyrðið það, að bein trygging sé fyrir því, að líkindi séu til, að hægt verði að framleiða eins ódýran áburð hér á landi og hægt er að kaupa hann inn til landsins. Það kemur fram í nál., að líkindi séu til þess. En mér sýnast þessi rök vera veik í dag. Þó er það á ábyrgð hæstv. ríkisstj. og verksmiðjustj. En illa væri farið, ef hlaupíð væri í að byggja slíkt orkuver og því næst yrði að stöðva reksturinn og hætta framleiðslunni. En mér skilst, ef till. hv. landbn. verður samþ., þá sé hér um nýja yfirlýsingu að ræða, því að ætlazt er til, að eigi sé byrjað á verkinu, fyrr en búið er að útvega þessar 40 millj. kr. til þess. Og eftir ummælum hæstv. ráðh. má ætla, að langur tími geti liðið þangað til, nema farið verði inn á leið þá, er hv. 1. þm. Reykv. vill fara og ég skal geta síðar. Þetta byggist helzt á því, hversu hægt verði að fá féð, og síðan rafmagninu. En nú er engin trygging fyrir, því, að þessi 7.500–10.000 smál. verksmiðja fái nægilegt rafmagn. (PZ: Ekki fyrr en eftir nokkur ár.) Þróunin í notkun rafmagnsins hefur orðið meiri en spáð var. Toppstöðin við Elliðaárnar var reist til að svara álaginu milli kl. 10 og 1 á daginn, en hún er fullálögð allan daginn. Hver einasta stöð, sem reist er, er fullálögð að kalla áður. Ég efast ekkert um, að menn hafi álitið Reykjavík mundu fá nægilegt rafmagn frá Soginu og Elliðaánum, en ég hef enga trú á, að þannig standi framvegis. Rafmagnsþörfin er orðin svo mikil, að hún fer út yfir áætlanir verkfræðinganna. En þetta er svo stórt atriði, að nauðsynlegt er fyrir stj. að tryggja sér rafmagn frá Sogsfossunum til iðjuversins 1953 eða síðar, svo að nægilegt rafmagn fáist. Hins vegar er mér ljóst, að hörð barátta verður um að fá sem ódýrast rafmagn milli áburðarverksmiðjunnar og annarra rafmagnsnotenda, íbúanna, ef það reynist eigi nægilegt í Soginu. Ég treysti því ekki, að trygging fáist fyrir því, að búið verði að virkja 1951 eða um það bil, og því síður, að þaðan fáist nægilegt rafmagn til iðjuversins, eins og fyrir liggur eftir útreikningunum í dag, en það tel ég höfuðatriði í þessu máli. — Þá er það náttúrlega mikill ókostur, þó að það sé engan veginn dauðadómur á þetta fyrirtæki, að þessi verksmiðja skuli aðeins eiga að vinna eina áburðartegund af þremur, sem nota þarf í landinu af tilbúnum áburði, þó að það sé upplýst af hæstv. ráðh., að það sé bæði dýrasta tegundin og sú, sem mest þarf að nota í landinu.
En ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að gera fyrirspurn til hæstv. ráðh. út af atriði, sem ég ræddi um í fyrra hér á Alþ., þegar þetta mál var til umr. Hvað hefur verið gert af hæstv. ríkisstj. og af Atvinnudeild háskólans í sambandi við rannsókn á límvatni til áburðar í landinu. Ég benti þá á það atriði og beindi því sérstaklega til ráðh., að líkur væru til, að mjög miklir möguleikar væru til þess, að hægt væri að vinna í stórum stíl þúsundir tonna af áburði úr límvatni, sem flytur frá verksmiðjum ríkisins út í sjó, og að það mundi vera hægt að vinna þar betri og ódýrari áburð en hugsað er að vinna úr loftinu. Og þetta var miðað við það, að það var upplýst af þeirri nefnd, sem hefur með þetta að gera, að vel gæti komið til mála, að þessi verksmiðja, sem á að vinna áburð úr lofti, ynni aðeins vökvaáburð, en ekki fullþurrkaðan, og að það væri alls ekki ógerlegt að koma honum þannig út til bænda, því þó að flutningskostnaður á honum þannig yrði meiri, þá yrði framleiðslukostnaðurinn miklu minni. En sé þetta raunverulega svona, þá er því meiri ástæða til að rannsaka til fulls, hvort hægt sé að vinna í stórum stíl úr límvatni frá verksmiðjunum áburð svo þúsundum tonna skiptir á ári hverju fyrir landið. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Þegar ég lauk ræðu minni áðan, þá var ég að ræða um það, hvort það hefði verið gerð nokkur rannsókn á því að vinna áburð úr límvatni. Þetta er svo mikilvægt atriði, að ég held, að ég verði að eyða nokkrum mínútum í sambandi við þetta mál til þess að leggja frekari upplýsingar fyrir hæstv. atvmrh. Það voru nokkrir leikmenn 1938, sem gerðu tilraunir með límvatn sem áburð, vegna þess að þeir höfðu orðið þess vísir, að þegar hausar og hryggir voru bornir sem áburður á tún, þá þótti það jafnvel bezti áburður, sem hægt er að fá. Þegar þetta sama efni var tekið og mælt sem fóðurmél, þá reyndist að vera í því aðeins 55% af eggjahvítuefni. Ef aftur á móti hausar og hryggir eru teknir og þurrkaðir vélrænt án þess að pressa þá, þá kemur vanalega 65% eggjahvítuefni úr slíku efni, þannig að 10% hverfur ofan í jörðina, en þegar þetta efni er pressað með vélum, þá fæst ekki nema 55% eggjahvítuefni, og fer þá út með límvatninu 10%, eða það sama sem fer ofan í jörðina, þegar hausar og hryggir eru bornir á tún sem áburður og regn og sól getur leyst þetta efni upp. Það var þetta, sem vakti athygli hjá þessum mönnum, sem gerðu sérstakar tilraunir til að bera á límvatn, og ef ég man rétt, þá var árangurinn beztur, ef blandað var 1:4 til þess að geta fengið hæfilega sterkan áburð, hvort heldur er í flög eða á tún. Nú er okkur ljóst, að þúsundir tonna renna til sjávar frá verksmiðjunum kringum landið, og þess vegna vildi ég vita, hvort ríkisstj. eða hæstv. atvmrh. hefur látið viðkomandi aðila rannsaka þetta til hlítar til að geta fundið út, hvort mögulegt sé að vinna sama magn af áburði á Íslandi á annan hátt en hér er ætlazt til með þeirri verksmiðju, sem getið er um í þessu frv. Í sambandi við þetta vil ég benda á, að í Noregi hefur verið fundið upp alveg sérstakt tæki til þess að vinna fóðurefni úr slíku límvatni eins og hér um ræðir, og einnig hefur í Ameríku um langt skeið verið unnið í stórum stíl fóðurefni úr límvatni, og má þá geta nærri, hvort ekki er auðveldara að vinna áburð úr því en skepnufóður. Einnig vildi ég heyra það frá hæstv. ráðh., hvort þessi efni, sem eru í þessu hráefni, gætu komið í staðinn fyrir þann áburð, sem hér um ræðir, eða hvort það gæti komið í staðinn fyrir hinar aðrar tvær tegundirnar, sem ekki er ætlazt til að vinna í þessari verksmiðju, sem hér um ræðir. Ég tel þetta svo miklu varða í sambandi við áburðarvinnsluna, að það sé rétt að láta rannsaka þetta alveg niður í kjölinn til þess að fá úr því skorið, hvort unnt sé að gera þetta á einhvern hátt hagkvæmara fyrir alla aðila en á þann hátt, sem hér er ætlazt til, að reisa 40 millj. kr. verksmiðju, og hvort það væri ekki gerlegt, þrátt fyrir það að þessi verksmiðja væri reist, að byrja á enn annarri vinnslu, svo framarlega sem það sýndi sig, að hægt væri að gera það. Skal ég svo ekki fara frekar út í það atriði.
Ég vil þá leyfa mér að fara nokkrum orðum um sjálft frv. og þá sérstaklega um 2. gr., því að við hana hef ég borið fram brtt. á þskj. 534. Það er ætlazt til þess nú, eins og frv. liggur fyrir, að ríkissjóður leggi fram fé til stofnunar áburðarverksmiðju, sem verði óafturkræft. Ég veit ekki, hvað hæstv. atvmrh. hefur háar vonir um að fá fé frá ríkissjóði og hve háa upphæð, enda ekkert getið um það hér í frv., og það er heldur ekki rætt um það í frv., hvort þetta eigi að vera í eitt skipti fyrir öll eða árlegt framlag, en óneitanlega væri skemmtilegt að vita nánar um það atriði. En mér finnst, eins og málum er nú komið hjá ríkissjóði, að það sé ekki eðlilegt, að fé sé látið óafturkræft til slíkra stofnana. Mér finnst ekki óeðlilegt, að ríkissjóður legði fram eitthvert stofnfé, sem væri eign ríkissjóðs, en ég sé ekki, að það sé eðlilegt, að það sé látið óafturkræft. Hins vegar er þetta ekki orðað þannig í mínum brtt., heldur á þann hátt, að skýrt sé, hvernig eigi að afla fjárins til þessa fyrirtækis, og það er, eins og þar segir, fyrst „með framlagi úr rekstrarsjóði Áburðarsölu ríkisins, og er það fé óafturkræft.“ Ég held, að rekstrarsjóður Áburðarsölu ríkisins sé nú 1.100.000 kr. Þetta er fé, sem hefur safnazt í áburðarsjóð, og það er eðlilegt, að þessi rekstrarsjóður sé afhentur áburðarverksmiðjunni til þess að vera einn hluti af hennar stofnfé. Þetta er svo skylt, áburðarsalan og áburðarverksmiðjan, ef ríkissjóður á þetta að mestu leyti, að eftir að verksmiðjan er komin upp, þá ætti þetta að vera eitt og sama fyrirtækið. Mér finnst því eðlilegt, að þetta framlag sé óafturkræft sem stofnfé til verksmiðjunnar. — Í öðru lagi „með frjálsri þátttöku almennings í landinu eftir reglum, sem ríkisstj. setur um það atriði.“ Það er komið inn á þetta atriði í till. hv. 1. þm. Reykv. á þskj. 412, þar sem hann gerir ráð fyrir, hvernig þessa fjár skuli aflað. Vil ég ekki segja, að ég vilji gera það að minni till. á þann hátt, sem tekið er fram í till., en ég er til viðtals um það, hvernig þessu verði náð á annan hátt, og ég tel sjálfsagt, að almenningur eigi kost á að leggja fé í þetta fyrirtæki. Ef þetta fyrirtæki er sett á stofn til þess að tryggja bændum almennt í landinu, 6.000 bændum, öruggan áburð með sambærilegu verði eins og það getur alltaf verið á heimsmarkaðinum, þá finnst mér ekki óeðlilegt, að þeim sé gefinn kostur á, og öðrum mönnum, að leggja sinn skerf í að koma upp slíku fyrirtæki. Í sambandi við þetta vil ég benda á annað fyrirtæki í landinu, sem nú hefur starfað í 30 ár og á sínum tíma var ekki minna átak að koma á stofn en nú er að koma upp þessari verksmiðju, þó að hún kosti 40 millj. kr. Það er Eimskipafélag Íslands. Ég er viss um það, hvað sem menn segja um Eimskipafélagið og rekstur þess, að því fyrirtæki hefði aldrei verið komið upp, ef almenningur hefði ekki staðið utan um það frá fyrstu byrjun til dagsins í dag, og þetta fyrirtæki eitt allra hefur notið þess að vera skattfrjálst vegna þess, hversu það hefur verið til almenningsheilla fyrir landslýðinn. Ég tel, ef þetta fyrirtæki á að framleiða nauðsynlega vöru til 6.000 bænda, sem mun hafa stórkostleg áhrif, ekki aðeins á þá stétt, heldur alla landsmenn, hvernig þeir framleiða sína vöru, að þá séu mjög miklar líkur til þess, að hægt sé að ná mjög miklu fé, sem ríkissjóður þarf, hvort heldur er til að lána eða leggja fram, og ég er ekki í vafa um, að það er stórkostlegur hagur fyrir fyrirtækið, ef hægt væri að fá lán, þótt ekki væri nema 1/4 af þessu fé, þannig frá landsmönnum, heldur en að þurfa að taka þetta fé til láns eða þurfa að leggja það sem skatt á þjóðina til að geta komið þessu fyrirtæki upp. Það mætti hafa á þessu alls konar fyrirkomulag, t.d. að ekki væri greitt nema 4% vextir, fyrirtækið væri skattfrjálst o.s.frv. Þá geri ég mér vonir um, að þetta fyrirkomulag mundi engu síður mæta samúð hjá þjóðinni, en Eimskipafélagið, m.a. eins og hv. 1. þm. Reykv. talaði um, að S.Í.S. og önnur fyrirtæki legðu þar töluverðan hluta fram. Ef við lítum á það, hvernig rekstur þeirra fyrirtækja gengur, sem ríkið hefur eingöngu með að gera, þá held ég, að reynslan hafi sýnt, að það sé ekkert tjón, þó að hér tæki saman ríkið og þegnarnir á líkan hátt og hjá Eimskipafélaginu. Ég skal fyrst minnast á Fiskiðjuverið. Ég held, að það sé nægileg reynsla, sem fengizt hefur af því fyrirtæki, þar sem farið er út í það með litlu fjármagni, það hefur svo komizt í alls konar fjárhagslega erfiðleika, vegna þess að ríkissjóður hefur ekki talið sér skylt að láta það hafa það fé, sem nauðsynlegt var, eða ekki haft tök á því. Ég skal svo ekkert fara út í rekstur fyrirtækisins. Það er eitt dæmi um það, hversu ógerlegt er fyrir ríkið að ætla sér að stofna til slíks iðjuvers eins og hér um ræðir án þess að hafa tryggt sér áður fullkomlega fjárhagslegan grundvöll fyrirtækisins í framtíðinni, ekki einungis það fé, sem þarf til að byggja fyrirtækið upp, heldur einnig fjárhagslegan grundvöll, svo að það geti staðið undir vöxtum og afborgunum. Þá skulum við líta á, hvernig gengur með landssmiðjuna öll þessi ár. Ég held, að ríkissjóður hafi aldrei fengið einn eyri út úr því fyrirtæki sjálfur, en hann hefur fengið af því töluverða erfiðleika, þegar illa hefur gengið, og ekkert í aðra hönd, þegar vel hefur gengið, á meðan sambærileg fyrirtæki hafa gefið ríkissjóði hundruð þúsunda og milljónir í tekjur. Ég er ekki að segja þetta til árása á fyrirtækið sjálft, þetta er bara staðreynd, fer náttúrlega dálítið eftir því, hvernig menn veljast, sem fyrir fyrirtækjunum standa. Þetta fyrirtæki er sagt að hafi fengið góðan mann, og eru öll líkindi til, að það geti rétt við, en sannarlega hefur ríkissjóður ekki haft neinar tekjur af því fyrirtæki. Hvernig er með sérleyfisferðirnar? Þær eru byggðar upp á sama hátt og hugsað er að byggja upp hér, með litlu eða engu fjármagni frá ríkissjóði. Það er treyst á rekstrarafkomuna, og hún er orðin slík, að það er orðið milljónatap, það hefur orðið að taka úr öðrum sjóðum með vafasömum heimildum. Hvernig hefur svo verðlagið verið? Miklu lakara, en meðan þetta var í höndum einstaklinga. Þetta er reynslan þar. Ef við förum í byggingu síldarverksmiðjanna, sem mest er sambærilegt við þetta fyrirtæki, þá er komið svo þar, að það er búið ýmist að henda milljónum frá ríkissjóði í nauðsynleg útgjöld eða ríkissjóður hefur gengið í milljóna ábyrgðir til að geta fengið lán til þess að standa undir nauðsynlegum útgjöldum. Nýlega kom frá hæstv. fjmrh. boð um 1.500.000 kr. ábyrgð fyrir skuld, sem þessar verksmiðjur hafa á s.l. ári stofnað til og hafa ekki getað staðið undir. Raunveruleikinn er sá, að ríkissjóður hefur orðið að greiða fyrir þessi fyrirtæki og verður enn að greiða margar milljónir, til þess að þau geti rækt sitt hlutverk. Þegar við höfum rætt við stjórn þessara fyrirtækja um það, hvort ekki væri unnt að skipa svo þeirra hag að lækka hráefnið, svo að fyrirtækin gætu unnið sig upp aftur, þá hefur svarið verið, að það væri ekki hægt vegna þess, að enn þá væru 50% af síldarverksmiðjum í höndum einstakra manna, sem betur reka þetta en ríkið, og þeir væru því háðir því verði, sem einstaklingar gætu á hverjum tíma gefið fyrir hráefnið, og reynslan hefur sýnt, að þegar einstaklingar græða, þá er stórtap á ríkisverksmiðjunum. Ég held, að það væri ákaflega hollt fyrir hv. alþm. að gera sér þetta ljóst, þegar um það er að ræða við stofnun þessa fyrirtækis að útiloka þátttöku einstakra manna. Þá er m.a. hægt að benda á Skipaútgerð ríkisins. Ég minnist þess, að 1943, þegar ég var í mþn. til þess að undirbúa og skipuleggja strandferðirnar, eftir að búið væri að útvega eða afla nýrra skipa, eins og nú er búið að gera, þá lá fyrir útreikningur, eins og liggur fyrir hér, þar sem sýnt var með tölum og fullyrt, að skip eins og Esja gæti á öllum tímum gefið góðan hagnað. Var þá reiknað með 200.000 kr. hagnaði á skip, enda hafði Esja gefið það á þeim árum. Nú er raunveruleikinn sá, að reiknað er með 500.000 kr. tapi á hvort skip á ári. Þetta er rothögg á hvaða atvinnurekstur sem er, ef útreikningarnir standast ekki betur en þetta, að þegar reiknað er með 200.000 kr. hagnaði, þá verður 500.000 kr. tap. Það er ekki hægt að leggja þetta tap á neinn aðila nema þjóðina. Ég tel það því skyldu þm. og hæstv. ríkisstj. að skoða þessi mál ofan í kjölinn, áður en farið er út í fyrirtæki eins og það, sem hér ræðir um. Ég vil því vænta þess, að einmitt þessi till um að leyfa almenningi frjálsa þátttöku við þetta fyrirtæki verði samþ., því að ég tel, að það verði ekki aðeins til þess að létta undir með ríkissjóði um fjáröflun, heldur einnig, að með því móti sé miklu meiri trygging fyrir því yfirleitt, að fyrirtækið standi jafnan á fjárhagslega sterkum grundvelli, því að það er nú svo, að betur sjá augu en auga. Og er þetta ekkert sagt til hnjóðs þeim mönnum, sem fara með stjórn þessara mála í umboði hæstv. ríkisstjórnar.
Þá legg ég hér til í c-lið minnar brtt., að fjár, sem þarf til að standast kostnað samkv. fyrirmælum 1. gr. frv., skuli m.a. afla „með framlagi úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt til þess í fjárlögum“, eins og í raun og veru er tekið upp í frv. nú. En hins vegar kemur hér síðar fram í minni brtt., að ég ætlast með henni til þess, að þetta fé verði afturkræft, en ekki óafturkræft, eins og nú er ætlazt til eftir frv. Og svo að síðustu legg ég til, að þessa fjár verði aflað „með lántöku innanlands eða utan.“ — Nú er það sjálfsagt að svona stórt fyrirtæki verður tæplega sett upp nema með því móti að fá til þess stór lán. Hitt verða menn að gera sér ljóst um svona fyrirtæki eins og þetta, sem enginn veit, hvernig muni bera sig fjárhagslega, að það er kannske alveg grundvallaratriði fyrir því, að það geti haldið áfram, að það sé svo fjárhagslega sterkt í upphafi, að það þoli þá skelli, sem ávallt eru samfara nýjum fyrirtækjum, og geti komizt yfir þá barnasjúkdóma, sem nýjum fyrirtækjum eru oft samfara. Og ef þetta fyrirtæki kemst á stofn, þá væri það sorglegt, ef ekki væri hægt að hafa nægilegt fjármagn til þess að reka það á þann hátt, sem heppilegastur og öruggastur væri, eftir að búið væri að byggja það, og það þess vegna kæmist í sömu aðstöðu og t.d. Fiskiðjuver ríkisins er í í dag, þar sem vitað er, að það bakar ríkissjóði stórkostlegt fjárhagslegt tjón, vegna þess að það hefur eigi nægilegt fé til þess að starfa, hvorki til þess að hægt sé að ljúka við byggingu þess, eins og nauðsynlegt er, né heldur til þess að starfa með fullum afköstum, eins og það gæti, ef það hefði nægilegt fjármagn.
Síðan er hér síðari partur greinarinnar, eins og í minni brtt. er lagt til, að greinin verði: „Heimilt skal ríkisstj. að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs samkv. d-lið þessarar greinar, þegar öllum undirbúningi undir framkvæmdir samkv. 1. gr. er lokið og ákvæðum 5. gr. fullnægt að öðru leyti.“ En samkv. d-lið, sem hér getur um, er gert ráð fyrir því í minni brtt., að fjár skuli aflað til stofnunar verksmiðjunnar utanlands eða innan.
Ég er ekki viss um, að 2. gr. frv., eins og hún er nú, heimill ríkisstj. lántökuna. En það stendur að vísu hér í 2. gr. frv.: „Er verksmiðjustjórninni helmilt að taka það fé, sem á vantar, að láni innanlands eða utan með samþykki ríkisstj. og ábyrgð ríkissjóðs.“ Mér finnst eðlilegt, að sú heimild sé gefin fjmrh. beint að mega taka lán í þessu skyni, innanlands eða utan. (Atvmrh.: Það stendur þarna: „með samþykki ríkisstjórnarinnar“. Og það verður aldrei gefin nein ábyrgð ríkisins fyrir láninu, nema fjmrh. samþ. lántökuna.) — Síðan legg ég til í minni brtt., að áburðarverksmiðjan skuli standa straum af vöxtum og afborgunum af því fé, sem lagt er til hennar samkvæmt c- og d-lið þessarar gr., þ.e. í minni brtt. Þetta þýðir, að hún standi straum af afborgunum af því fé, sem lagt er til hennar úr ríkissjóði eða af ríkinu er tekið beint að láni til verksmiðjunnar, en um slíkar afborganir væri ekki að ræða af því fé, sem kæmi til stofnunar fyrirtækisins með þátttöku almennings, heldur kæmi þar aðeins arður til greina, ef hann væri greiddur. Ég tel, að með þessu móti væri miklu betur séð fyrir fjárhag verksmiðjunnar, ef þessi brtt. væri samþ. og 2. gr. orðuð þannig. Og vildi ég mjög mælast til þess, að hv. landbn. athugaði þetta mál og eins að hæstv. ráðh. athugaði, hvort hann teldi ekki, að fyrirtækið væri betur undirbyggt, ef hafður væri slíkur háttur á. Ég sé ekki, að þessi breyt. þurfi á nokkurn hátt að tefja fyrir framkvæmd málsins, nema síður sé. Það er hægt að byrja á öllum undirbúningi, þótt 2. gr. sé orðuð þannig. Og auk þess er frá mínu sjónarmiði ekkert því til fyrirstöðu, að ríkissjóður verði einn eigandi fyrirtækisins, þó að gr. væri samþ. svo, ef ekki fæst fjárframlag frá almenningi eða öðrum aðilum, en ríkissjóði.
Þá hef ég einnig lagt til við 3. gr. frv., að fyrri málsliður falli niður: „Verksmiðjan er sjálfseignarstofnun, er lýtur sérstakri stjórn,“ vegna þess, að ef farið er inn á þá breyt:, sem ég legg til í brtt. minni, þá getur þetta ákvæði ekki staðizt. Það gerir í sjálfu sér hvorki til né frá um síðari liðinn, hvort hann er í frv. eða ekki. En fyrri málsl. verður að falla niður, ef brtt. mín við 2. gr. er samþ., eins og brtt. mín er orðuð.
Ég veit ekki, hvort það er víða, sem ríkissjóður á í fyrirtækjum með öðrum aðilum, og þá með einstaklingum. En hann á a.m.k. einn þriðja hluta í Laxfossi, sem að vísu er minni hlutinn. En ég alveg fullyrði, að ef ríkið eitt hefði átt þetta fyrirtæki, þá hefði rekstrarútkoma þess verið allt önnur, en hún hefur verið á rekstri þess skips. M.a. skal ég benda á, að þá hefði að sjálfsögðu uppskipun og útskipun verið falin Skipaútgerð ríkisins. Nú held ég, að Skipaútgerð ríkisins hafi tapað á uppskipun 140 þús. kr. á síðasta ári og geri ráð fyrir að tapa því sama á næsta fjárhagsári, þessu ári. En það var drjúgt, sem Laxfoss græddi á uppskipun og útskipun árið 1947. Og ég er viss um, að ef athugaður er rekstur strandferða og flóabátaferða yfirleitt, þá hefur ekkert fyrirtæki þeirrar tegundar verið hagkvæmar rekið, en Laxfoss, og það einmitt vegna þess, að ríkissjóður á ekki nema minni hlutann í því. Hann hefur ekki ráðið þar nema að sínum hluta. Hann hefur átt þar fulltrúa í stjórn. Það hefur í stjórn þess fyrirtækis verið ákaflega gott samkomulag milli þessara manna og aldrei neinir árekstrar. Og útkoman hefur verið sú, að þetta fyrirtæki hefur verið rekið með svo miklum gróða, að ég hygg, að það ætti að geta verið til fyrirmyndar.
Annað dæmi má nefna, sem er líklega einsdæmi hér og aðrar þjóðir gapa alveg yfir, og það er rekstur flugfélaganna, því að Ísland er líklega eina landið í heiminum, þar sem ekki þarf stórkostlegan styrk að leggja til þess að halda uppi flugferðum eða þar sem ríkið á ekki að meiri hluta slík fyrirtæki eða þarf að leggja stórar fjárfúlgur til að reka slíkar flugsamgöngur.
Ég held, að þessi dæmi sýni, að það væri ekki óeðlilegt, að í þessu alþjóðarmáli væri tekið höndum saman af ríki annars vegar og hins vegar af almenningi í landinu, eins og reynzt hefur prýðilega vel í sambandi við Eimskipafélag Íslands.
Ég skal svo ekki tefja þessar umr. frekar. Ég er að sjálfsögðu fylgjandi því, að þetta mál verði athugað gaumgæfilega, og hef ekkert á móti því, að þessi heimild verði gefin, því að þetta eru í raun og veru ekki nema heimildarlög. — En ég vildi spyrja hæstv. ráðh. um það, hvort hann gæti nokkuð upplýst um það, hvað undirbúningskostnaður í sambandi við þetta fyrirtæki er orðinn mikill. Mér skilst, að nefndir hafi starfað að þessu máli nokkuð lengi og að ýmsar rannsóknir hafi farið fram um málið. Ég vildi spyrja um þetta, svona mest til þess að fá yfirlit yfir, hver þessi kostnaður er orðinn. Og auk þess langaði mig til þess að spyrja um það, hvort hæstv. ráðh. hugsaði sér, ef þetta frv. verður samþ. sem lög, að skipa strax verksmiðjustjórn og forstjóra og hve mikill kostnaður vegna þess kynni að verða, áður en hægt er að uppfylla hin fjárhagslegu ákvæði laganna, því að mér skilst, að þetta liggi ekki alveg ljóst fyrir enn þá, en það er ákveðið hér í frv., að kosning fari fram á þessu þingi hér, og þá á að kjósa stjórnina, en hins vegar eru það hæstv. ráðherrar, sem ákveða laun stjórnar þessa fyrirtækis. En ef það t.d. drægist um tvö, þrjú eða fjögur ár að afla nægilega mikils fjár til stofnunar þessa fyrirtækis, — sem ég veit ekkert um, en hæstv. ráðh. veit kannske eitthvað um, — þá langar mig til að vita, hvort ekki væri hægt að koma því svo fyrir, að þann tíma, þar til hægt væri að starfa verulega að þessum málum, yrði ekki mikill kostnaður við verksmiðjustjórn og framkvæmdastjóra.