22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (723)
16. mál, áburðarverksmiðja
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Án þess að ég vilji tefja málið nokkuð, þá verð ég nú að segja, að mér þykir þetta ákaflega merkileg meðferð á stórbrotnu máli, að ekki skuli vera hægt að fá nefnd og ráðherra til að gera nánar út um það við 2. umr. Hér er um 40 millj. kr. framkvæmd að ræða, og hér er naumast hafður sæmilegur háttur á stórmáli. Í slíku máli met ég lítils þau rök að vera að spara prentunarkostnað á þingskjölum, eins og hv. frsm. landbn. kom fram með, og mér finnst, að ekki hefði mátt minna vera en n. athugaði brtt. þær, sem fram hafa komið, eins og hæstv. fjmrh. sagði.
Ég beindi hér fyrirspurn til hæstv. atvmrh., sem ég vildi fá svarað. Hann lofaði hér í þinginu að svara þessu fyrir löngu síðan, og ég vil fá það svar helzt áður en ég greiði nú atkvæði um málið til 3. umr. Þeir, sem áttu að rannsaka þetta, hafa aldrei verið beðnir að gera það. Ég hef fengið upplýsingar um það hjá manni, sem mikið er við þessi mál riðinn og ætti að vita glöggt um þetta, að ekki muni fást nægilegt rafmagn frá Soginu til verksmiðjunnar, og er skoðun þess manns því mjög í andstöðu við skoðun Steingríms Jónssonar rafmagnsstjóra. Þess vegna hefði ég viljað fá svar frá hæstv. atvmrh. um það, hvort hægt væri að fá samning við Sogsvirkjunina um, að verksmiðjan fái þaðan það rafmagn, sem hún kann að þurfa, hvort sem nóg rafmagn fæst þaðan til annarra þarfa eða ekki. Það þarf að tryggja í sambandi við afgreiðslu þessa frv. Að öðrum kosti er sú hætta fyrir hendi, að verksmiðjan verði að standa óstarfrækt vegna rafmagnsskorts eða þá að kaupa rándýrt rafmagn. Hér er ekki um neitt smáatriði að ræða, og frá því þyrfti að ganga við þessa umr. Ég bendi t.d. á, að ef till. á þskj. 412 verður samþykkt við þessa umr., þá mundi ég milli umræðna bera fram brtt. um, að 7% arði til hluthafa verði breytt. (ÞÞ: Sú till. er tekin aftur til 3. umr.) Já, en ef hún verður samþ. við 3. umr., eftir að búið er að slíta umræðum, er þess ekki lengur neinn kostur að bera fram brtt. Hér er raunverulega verið að skera niður eina umræðu. Það er að vísu hægt að bera fram brtt. við þessa brtt. á þskj. 412, en ég sá ekki eða sé ekki ástæðu til þess fyrr en ég sé, hvernig henni reiðir af. Það á að gera út um veigamiklar brtt. við 2. umr., og er skemmst að minnast dæmis upp á það frá í dag, þótt ég sé ekki með þessu að ásaka hæstv. forseta. En þannig getur farið um mál eins og í dag, ef ekki er gert út um veigamiklar brtt. við 2. umr. Það er áþolandi að taka stórvægilegar brtt. aftur til 3. umr. Ég hef áður tekið brtt. til baka með þeim fyrirvara eða ósk, að þær væru athugaðar nánar í nefnd milli umræðna eða tekin afstaða til efnis þeirra, og það hefur ekki verið gert, og ég hef nú enga tryggingu fyrir því, að hægt verði að þoka neinu um milli umræðna. Ég vil nú þó taka brtt. mína aftur í því trausti, að ekki sé verið að fleka þingmenn til þess að taka aftur tillögur með því fororði, að þær verði athugaðar í nefnd, eins og þó svo oft hefur verið gert. Ég læt í ljós þá ósk, að n. leyfi mér að ræða efni till. við sig á milli umræðna. Hitt er svo annað mál, að ef það er fyrir fram ákveðið, að ekki skuli verða breytt stafkrók í þessu frv., þá eru allar umræður um málið áþarfar, og væri þá hreinlegra að afgreiða það umræðulaust. En ég hefði nú haldið, að mál þetta ætti að athuga sérstaklega vel frá öllum hliðum og breyta því, svo að til batnaðar mætti verða. Á afgreiðslu þessa máls byggist afkoma ríkisins og bænda að svo verulegu leyti, að það er sannarlega ástæða til að fjalla um það samkvæmt þingsköpum.