22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (724)
16. mál, áburðarverksmiðja
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég skal reyna að vera stuttorður. — Ég vil segja, að ég fylgi þessu máli af því, að ég sé mjög greinilega, að áburðarþörfin er ákaflega brýn, og í öðru lagi sé ég, að það er mjög hæpið, að henni verði fullnægt í framtíðinni með innfluttum áburði, eins og gjaldeyrismálum okkar er háttað. Hins vegar er mér ljóst, að um þetta frv. getur farið eins og mörg önnur, sem Alþ. hefur verið að samþ. á undanförnum árum og ríkisstjórnir hafa síðan ekkert gert með. Hv. frsm., 2. þm. Árn., ætti t.d. að vera minnisstæður Austurvegur. Þegar Alþ. samþ. lög um hann, var þáverandi ríkisstj. mjög hátt uppi, þannig að manni skildist, að sá vegur væri eiginlega kominn um leið og lögin voru samþykkt, en enginn bili hefur enn í dag ekið eftir þeim vegi og ekkert í þá átt. Sömuleiðis var ákveðið af Alþ., að ríkið legði 5 millj. kr. í hótelbyggingu ásamt tveimur öðrum aðilum, er leggja áttu sínar 5 millj. hvor. Það voru fengnir menn frá Ameríku til að athuga, hvar það hótel ætti að standa, þeir sendu teikningar, sem kostuðu hundruð þúsunda, en hótel það er ókomið enn þá. Svo voru samþ. hér lög um sementsverksmiðju, en ekkert fé er enn fyrir hendi til framkvæmda og engar framkvæmdir eru hafnar. Því get ég vel hugsað mér, að þetta frv. verði einnig dauður bókstafur, en það er þó tilraun, og því er ég því fylgjandi. Með brtt. geri ég ekki svo mikið, því að ríkið hefur heimild til að taka lán og getur komið því fyrir eins og það vill.
En þótt ég fylgi nú þessu frv. sökum þess, hve áburðarþörfin er mikil, og þótt ég beri kvíðboga fyrir, að lögin verði ekki annað en pappírsgagn eins og fleiri lög, þá er ég líka hræddur um, að annað verði þessu máli að fjörtjóni, og það er það, að hjá sérfræðingum liggur það eiginlega fyrir, að þótt Sogið verði fullvirkjað og ef verksmiðjan er reist á orkuveitusvæði þess eins og ráðgert er, þá hafi hún ekki rafmagn nema mjög takmarkaðan tíma. Einhvern tíma á árunum 1960–70 verður Sogsrafmagnið fullnotað, þótt allt Sogið hafi verið virkjað, og þá er ég hræddur um, að verksmiðjan verði sett til hliðar og bæjarbúar látnir sitja fyrir. En þá segja þeir bjartsýnu, að búið verði að virkja Þjórsá og tengja þá virkjun við Sogsvirkjunina. Þetta er von manna, og á þeirri von er verksmiðjan eiginlega reist, að hún geti starfað með rafmagni frá Soginu um 10 ára skeið eða svo og þá verði komin ný orkuver til sögunnar, er sjái verksmiðjunni og bænum fyrir rafmagni. Þessi von er hjá mér og öðrum, og því fylgi ég eða get fylgt þessu frv., þó að ég sjái, að verksmiðjan hefur ekki rafmagn frá Soginu nema tiltölulega skamman tíma. Ég vildi óska, að það yrði athugað nánar í sambandi við þetta mál, hvort ekki þarf sérstaka virkjun fyrir verksmiðjuna, hvort það á að geta verið möguleiki á því, að verksmiðjan verði hornreka eftir nokkur ár, eins og getur orðið, ef hún er í sambandi við Sogið, ef önnur virkjun er ekki komin til sögunnar áður en Sogsrafmagnið er fullnotað. Það væri óskandi, að nánar væri athugað um möguleika á eigin virkjun, svo að ekki gæti komið fyrir, að verksmiðjan yrði hornreka fyrir bæjar, þörfunum eða öðrum þörfum fyrir rafmagn. En einnig þetta er mögulegt að gera, þótt þetta frv. verði nú samþ. hér. Í frv. er hvergi komið í veg fyrir slíka athugun, svo að hægt er að samþ. þetta frv. alla vega, bæði með tilliti til fjáröflunar og rafmagnsöflunar. Þess vegna get ég fylgt frv. eins og það er, en mun koma á fundi landbn. og fjalla þar um málið og brtt., sem gerðar hafa verið eða gerðar kunna að verða. Þessa bakþanka varðandi framtíð þessa máls vildi ég láta koma fram strax, því að þeir snerta það meira að mínu áliti, en margir vilja vera láta.