03.12.1948
Efri deild: 24. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
15. mál, virkjun Sogsins
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Herra forseti. Mál það, sem hér liggur fyrir, er um staðfestingu á bráðabirgðalögum frá 23. sept. s.l. Málið hefur þegar legið fyrir Nd. og verið samþykkt. Iðnn. þessarar deildar hefur haft það til meðferðar og leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. — Efni frv. er eins og sjá má af grg., sem þó er nokkru fyllri í nál. iðnn. Nd. — Það virðist liggja ljóst fyrir, að þessa breytingu þurfi að gera samkvæmt gerðum samningum, og tel ég óþarft að fjölyrða um þetta. N. leggur sem sagt til, að frv. verði samþ. óbreytt.