29.04.1949
Efri deild: 91. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (740)

16. mál, áburðarverksmiðja

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Eins og ég áður sagði, mun ég fylgja þessu frv., enda þótt ég beri mikinn kvíðboga fyrir því, að það verði viðbót við þau pappírslög svipaðs eðlis, sem undanfarin þing hafa ungað út. Ég vil þó taka það fram, að frv., eins og það verður eftir samþykkt þessarar brtt. á þskj. 596, verður ósköp leiðinlegt. Það gerir ráð fyrir þessu eða hinu. Og það gerir ráð fyrir möguleikum fyrir tvenns konar stjórn fyrir þetta fyrirtæki o.fl. o.fl., sem á þó ekki nema önnur að starfa, ef til kemur. — En með tilliti til þess, að þetta er allt framtíðarmál, sem vafalaust verður breytt aftur í samræmi við það, sem uppi verður endanlega með þessa verksmiðju, ef það heppnast að koma henni áfram, þá mun ég þó fylgja þessu þannig tvíræðu öllu, í því trausti, að það verði fært í heilsteyptan búning, þegar verksmiðjan kemst á laggirnar, og líka til þess að hægt sé að hafa báðar leiðirnar opnar, meðan á undirbúningi verksmiðjunnar stendur, sem að vísu getur orðið nokkuð lengi. Ég mun því fylgja frv., þó að ég sé mjög hræddur um, að það verði viðbót við þá hálfu tylft slíkra laga, sem Alþ. hefur samþ. áður af pappírslögum, sem ætlazt var til, að yrðu framkvæmd, en ekkert hefur orðið úr og maður hefur ekkert heyrt talað um, að þessi hæstv. ríkisstj. eða fyrrv. ríkisstj. hafi reynt neitt til að gera neina framkvæmd úr.