29.04.1949
Efri deild: 91. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (741)

16. mál, áburðarverksmiðja

Hannibal Valdimarsson:

Ég ætlaði aðeins að segja örfá orð um þetta mál og lýsa afstöðu minni til þess. Ég er málinu mjög fylgjandi og skal láta í ljós, að ég tel þá brtt., sem fram er komin á þskj. 596 og hæstv. landbrh. hefur nú nýskeð mælt með, mjög spilla málinu, ef hún verður samþ., og mun ég greiða atkv. gegn henni, þó að ég hins vegar hiklaust greiði atkv. með málinu, þó að hún verði samþ. En ég tel þó þá viðbót við frv. frá því, sem það var borið fram af hæstv. ríkisstj., spilla því mjög. Ég tel, að þetta fyrirtæki hafi verið hugsað þannig, að það ætti fyrst og fremst að vera til þess að framleiða nauðsynjavöru til þess að greiða fyrir öðrum aðalatvinnuvegi þjóðarinnar og það með sem ódýrustum hætti. Ég hafði haldið, að hér væri ekkert pláss fyrir prívatkapítalið til þess að græða á þessu fyrirtæki. Ég mun greiða atkv. á móti þessari brtt., en með málinu, jafnvel þó að það spillist af samþykkt hennar.