29.04.1949
Efri deild: 91. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (748)
16. mál, áburðarverksmiðja
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Með því að brtt. mín á þskj. 534 er í meginatriðum tekin í þessa till. og ég hef sagt, að ég mundi taka hana aftur, ef þessi till. verður samþ., og vegna þeirrar deilu, sem um málið er, þykir mér rétt að skýra afstöðu mína.
Ég tel rök hæstv. ráðh. rétt og held, að hv. 8. landsk. taki þau ekki gild ,vegna þess, að hann er ekki kunnugur rekstri hlutafélaga, en ekki af skilningsleysi eða illgirni. Sannleikurinn er sá, að með því að fara inn á þessa braut, eru fyrirtækinu tryggðar 10 millj. kr. sem fyrsta áhættufé, og það er ekki lítils vert. Það gæti farið svo, að þessi 25% nægðu, til þess að koma fyrirtækinu á fjárhagslegan grundvöll. Þá þyrfti ríkið aðeins að leggja fram 7 millj. kr., 6 millj. auk einnar millj. frá Áburðarsölu ríkisins. Það er þá engin goðgá að hugsa sér, að hægt mundi vera að fá fasteignalán er næmi 25% og lán út á annan veðrétt með ábyrgð ríkissjóðs. Ef það tekst að skapa fyrirtækinu fjárhagslegt öryggi á þennan hátt, þá þarf ríkissjóður ekki að leggja meira fé fram. Fari svo, að þess verði þörf, halda hluthafarnir áfram að leggja inn nýtt hlutafé eða gengið verður að fyrirtækinu, og þá fellur úr það, sem lagt hefur verið fram sem stofnfé. Hv. 8. landsk. hefur sennilega ekki gert sér það ljóst. (ÁS: Jú, jú.) Úr því að hv. þm. segir jú, jú, er það eitthvað annað en ókunnugleiki, sem veldur andstöðu hans.
En fyrir mér vakir einnig annað, og þess vegna er ég ekki sammála hv. 1. þm. Reykv., sem leggur mikla áherzlu á vextina. Meginatriðið er, að samstarf verði milli ríkisins og einstaklinganna. Það er því ekki rétt að beita ósanngirni frá byrjun. Þess vegna er ég fylgjandi því, að stj. verksmiðjunnar verði skipuð eins og sagt er í till. á þskj. 596. Mér finnst sanngjarnt, að hluthafar, aðrir en ríkið, fái tvo menn í stj., og tel þau rök, er hv. 8 landsk. hefur komið fram með gegn því, fölsk. Ef þeir fengju bara einn, gæti svo farið, að ríkissjóður ætti einnig þann mann, og þá væri öll stj. í höndum ríkissjóðs. Þá yrði ekki um neitt daglegt samstarf að ræða, en upp úr því legg ég mjög mikið. Ég hygg, að það hafi vakað fyrir hæstv. ráðh., og að hann hafi hugboð um, að félagssambönd bænda séu fús að styðja þetta mál. ekki til þess að fá 6 eða 7% vexti, heldur til þess að hjálpa því áfram, svo að það nái fram að ganga. Ég greiði því atkv. með till. eins og hún er, en er á móti þeim brtt., sem fram hafa komið.