02.05.1949
Neðri deild: 96. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í B-deild Alþingistíðinda. (755)
16. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. meiri hl. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Breyt. þær, sem gerðar voru á frv. í Ed., eru smávægilegar, nema 13. gr., sem var bætt þar inn í frv. og einkum er rætt hér um. Hinar breyt. í Ed. eru ekki meiri en svo, að sjálfsagt er að samþ. þær. En hér er, eins og ég sagði, einkum rætt um hina nýju 13. gr., sem bætt var inn í frv., og hafa komið fram nokkrar athugasemdir við þá nýjung. Hæstv. ráðh. hefur skýrt, hvers vegna þetta ákvæði var sett inn í frv. í Ed. Ég skal taka það fram, að þetta atriði hefur ekki enn verið rætt í landbn., og tala ég því ekki hér fyrir hennar hönd. Ég skal taka það fram, að ég er alls ekki í principinu á móti því, að nota megi ríkisfé og fé einstaklinga saman í þessu skyni, og tel, að svo geti verið skynsamlegt á stundum, en þá þarf að búa tryggilega um á allan hátt. Ég er ekki á sama máli og hv. 2. þm. Reykv., að hér sé um eitthvert nýtt fyrirbrigði að ræða, þó að þetta sé það stærsta. En hér er aðeins um heimild að ræða, og mun afstaða mín byggjast á því, á hvern hátt málið komist fljótast fram. Ef ákvæðin í 13. gr. geta orðið til þess, að við sæjum fyrir endann á þessu máli innan skamms, þá er ég síður en svo því mótfallinn að nota prívatkapítal, en ef það fæst ekki, þá er ég á móti því að láta málið stranda á því. Ég get því fallizt. á þessa till. á þeim grundvelli, sem ég nú hef lýst. Ég er á sama máli og hv. þm. Ísaf., að það séu ýmis atriði í 13. gr., sem þurfi að athuga. — Ég vil svo mælast til þess, að hæstv. forseti fresti umr. um málið, svo að hægt sé að ræða það við hæstv. atvmrh. Ég verð að segja, að mér finnst það ekki mikið framlag frá einstaklingum, þó að þeir leggi fram 4 millj., en ásamt með framlagi ríkissjóðs getur það myndað góðan fjárhagslegan grundvöll fyrir fyrirtækið. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða málið frekar að sinni, en vænti þess, að umr. um það verði frestað.