05.05.1949
Neðri deild: 101. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í B-deild Alþingistíðinda. (759)
16. mál, áburðarverksmiðja
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Ég held nú, að ekki séu á fullum rökum reistar þær aths., sem hv. þm. Ísaf. hefur borið fram við 13. gr. frv. Hann minntist á það, að ekki væri nægilega skýrt fram tekið í fyrri hluta 13. gr., að það framlag, sem gert er ráð fyrir, að áburðarverksmiðjan hljóti frá rekstri Áburðareinkasölu ríkisins, skuli vera hlutafé, heldur væri talað um óafturkræft framlag. Ég innti landbn. Ed., sem orðaði þetta, sérstaklega eftir því, hvort þetta ætti ekki að skiljast þannig, að það fé, sem þarna er um að ræða frá áburðareinkasölunni, ætti að standa sem hlutafé ríkisins. Og frsm. n. tjáði mér, að það hefði verið tilgangur þeirra og ætlun, að þetta fé færi inn í fyrirtækið sem hlutafé með öllum réttindum og skyldum hlutafjár. (FJ: Það er það þó ekki í frv.) Það liggur í greininni. Í greininni er þar með sagt, að þetta eigi að vera hlutafé, sem ríkissjóður leggur fram. Um hitt atriðið, hvor eigi ríkari rétt við arðsúthlutun, þá segir í 13. gr., að greiða megi hluthöfum allt að 6% í arð, en í 10. gr., að greiða skuli til sjóðanna, svo að mér finnst það vera alveg ótvírætt, að sjóðirnir gangi fyrir. Einnig mun það vera föst venja með hliðstæð fyrirtæki, að greiðslur í hina ýmsu sjóði gangi fyrir arðsútborgun. Svo skal ég að gefnu tilefni taka það fram, að ef það fellur í minn hlut samkv. 12. gr. að gefa út reglugerð um rekstur og tilhögun verksmiðjunnar, þá skal þetta vera þar skýrt fram tekið, ef svo brýn nauðsyn er talin vera, sem ég hygg þó, að sé ekki fyrir hendi.
Þá minntist hv. þm. á, að tæplega væri hlutafé ríkisins nægilega vel tryggt og réttur ríkisins samkv. því. Ég lagði þetta atriði fyrir skrifstofustjórann í atvmrn., og orðaði hann þetta með sínu lögfræðilega orðalagi. Hann taldi, að með þessu orðalagi væri réttur ríkisins alveg ótvíræður, enda er það skýrt tekið fram í hlutafélagal., að reglur þeirra gildi aðeins, ef ekki annað, sem gegn þeim fari, sé tekið fram í öðrum lögum. Með tilliti til þess yrðu ákvæði þessara laga afgerandi. Finnst mér því eigi ástæða vera til að tefja málið meir með því að senda það stöðugt milli deilda.