05.05.1949
Neðri deild: 101. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (760)
16. mál, áburðarverksmiðja
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Mér þykir mjög leitt, að hv. landbn. þessarar deildar skuli ekki hafa athugað þetta frv. síðan það kom í sinni núverandi mynd frá hv. Ed. Ég tel það vera mjög varhugavert orðalag, sérstaklega á 13. gr., sem hv. Ed. hefur sett í það, eins og hv. þm. Ísaf. hefur réttilega rakið nokkuð. Það hefur ekkert komið fram hjá hv. forsvarsmönnum þessa frv., sem hefur hrakið það, er ég sagði hér við fyrri umr. málsins. Það er sem sagt staðreynd, að byggja á áburðarverksmiðju með 10 millj. kr. hlutafé, þar af á ríkið að eiga 6 millj., en einstaklingar 4 millj. Þurfi nú þetta hlutafélag að taka lán, á ríkið að ábyrgjast allt, en einstaklingarnir, sem eru meðeigendur, ekkert. Þeir, sem leggja fram 4 millj., eiga að fá 2 menn í stjórn þessa fyrirtækis; en Alþingi kýs svo 3 menn með hlutbundnum kosningum. Nú er mikill möguleiki á, að hægt væri að mynda samstilltan meiri hluta með 2 fulltrúum einkaframtaksins og einum kosnum af Alþingi, en það mundi þýða, að þeir, sem 4 millj. hafa á bak við sig, mundu ráða yfir þessu fyrirtæki, sem kemur til með að kosta 46 millj. Ef svo komizt væri að þeirri niðurstöðu, að praktískara væri að byggja stærri verksmiðju, t.d. 30–40 þús. smál., sem kosta mundi yfir 100 millj. kr., og haldið væri þessu hluthafafyrirkomulagi og fjölda stjórnenda kosinna af Alþingi, þá mundi það þýða, að hluthafar einkaframtaksins fengju algerlega yfirtökin með stjórn þessa risafyrirtækis, en ríkisstj. bara ábyrgðist allar lántökur. Þetta er fyrirkomulag, sem við getum aldrei samþ. Það verður að vera alveg tryggt, að ríkið ráði í þessu fyrirtæki samsvarandi við hlutafjárframlag sitt.
Ég hygg nú, að bezt sé, að stjórnin öll sé kosin hlutbundnum kosningum af Alþingi, en ef það fæst ekki fram, þá mundi ég fella mig mun betur við, að hæstv. landbrh. skipaði alla stjórnina í þessu fyrirtæki. En verði þetta samþ. eins og það liggur fyrir í frv., þá er verið að afhenda einkaframtakinu þetta mikla fyrirtæki og þar með fundin ágæt leið fyrir einkaframtakið að ná undir sig ríkisfyrirtækjunum og miklu betri, en lögð er til í frv. þeirra sjálfstæðismanna, er hér hefur verið á ferðinni að undanförnu. Þetta er því mjög hættulegt fordæmi, sem hægt væri að nota seinna meir. Hins vegar vil ég ekki verða til að tefja málið, en álít, að svona megi frv. alls ekki fara í gegnum þingíð. Ég vil því leggja hér fram brtt. til þess að afstýra örlagaríkri vitleysu og bæta mjög úr þeim göllum, sem nú eru á frv. Ég vil einnig benda á, hvernig þessi breyting á frv. er til komin. Það var ekki fyrr en við 3. umr. í Ed., að 1. þm. Reykv. bar fram þessar breytingar, og voru þær samþ. í Ed. að svo til óathuguðu máli. Svo á að berja þetta í gegnum eina umr. í Nd. og skapa þannig fordæmi, sem vel má búast við, að reynt verði að nota síðar. Við þekkjum vel hvernig auðmagnið reynir á sem auðveldastan hátt að klófesta arðbær fyrirtæki, og hér eru vissulega miklir möguleikar, jafnvel fyrir erlent auðmagn. Hér er og á ferð stefnubreyting, meiri en menn gera sér ljóst í fyrstu, ef hér á að setja ákvæði, sem ekki gildir um ríkisfyrirtæki, er stofnsett hafa verið hingað til. Það á sem sagt að fá 4 millj. kr. hlutafé frá einstaklingum og gefa þeim svo færi á að stjórna og ráða fyrirtæki, sem kostar 46 millj. Mér verður nú á að spyrja, hvort ríkið getur ekki alveg eins útvegað 46 millj. í þetta fyrirtæki eins og 42 millj. Og ef það eru til einstaklingar, sem af áhuga fyrir málinu vilja leggja 4 millj. af mörkum sem hlutafé í þetta fyrirtæki, geta þeir þá ekki alveg eins keypt hlutabréf í fyrirtækinu og fengið af þeim 6% vexti? En ef það er eitthvað annað, en áhugi fyrir málinu, sem sagt að ná völdum yfir verksmiðjunni og rekstri hennar, þá verður gróðinn meiri, en 6% vextir segja til um. Ég vil því leggja hér fram brtt. um, að 13. gr. frv., eins og það kom frá hv. Ed., falli burt og frv. afgr. þannig. En ef hún verður felld, vil ég leggja fram aðra brtt., sem ég verð að biðja hæstv. forseta að skoða sem brtt. við frv., en hún er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Í 13. gr., 3. málsgr., komi í stað orðanna „Sameinað Alþingi kýs þrjá“ Sameinað Alþingi kýs fjóra, — og í stað orðanna “Hluthafar, aðrir en ríkissjóður, kjósa tvo“ komi: Hluthafar, aðrir en ríkissjóður, kjósa einn.“ En svo framarlega að hún verði einnig felld, þá vil ég freista að bera fram enn eina brtt., svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Aftan við „ákvæði til bráðabirgða“ bætist eftirfarandi málsgrein: „Meðan ríkið stendur í ábyrgð fyrir áburðarverksmiðjuna fram yfir aðra hluthafa, ef áburðarverksmiðjan er rekin sem hlutafélag, skal stjórnarfyrirkomulag haft eins og segir í 4. gr.“ Ef þessi brtt. yrði samþ., fengju væntanlegir hluthafar ekki rétt til að kjósa 2 menn í stj., nema því aðeins að þeir gengju í hlutfallslega svo mikla ábyrgð fyrir þeim lánum, sem verksmiðjan mundi þurfa að taka, t.d. ef þeir gengju í ábyrgð fyrir 2/5 af þeim lánum, sem fyrirtækið þyrfti. Þetta fyrirkomulag veit ég að viðgengst í ýmsum félögum, að ef hlutafélag þarf að taka lán og félagið sem slíkt getur ekki gengið í ábyrgð fyrir lánsfénu, þá gera hluthafarnir það, þannig að sérhver gengur í hlutfallslega jafnmikla ábyrgð og hlutur hans segir til um. Ef þessi háttur er á hafður, mundu allir hluthafar hafa mikinn áhuga á, að rekstur fyrirtækisins gengi vel, og komið væri í veg fyrir, að þeir, sem minnst ættu, stjórnuðu mestu. Einnig væri þetta mun hagstæðara og öruggara fyrir ríkið. — Ég vil svo að lokum biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir till. mínum.