17.02.1949
Efri deild: 61. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (774)

137. mál, erfðalög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Núgildandi erfðalöggjöf er að mestu leyti nær 100 ára gömul og er þess vegna orðin í ósamræmi við hugsunarhátt manna nú á dögum. Einkanlega er erfðarétturinn víðtækari, en við álítum sanngjarnt nú eftir breytta þjóðfélagshætti frá því, er tilskipunin gekk í gildi. Auk þess eru formskilyrðin óþarflega ströng. Allt þetta og fleira hefur gert það að verkum, að nauðsynlegt var að endurskoða erfðalöggjöfina. Áður hefur komið fram frv. til breyt,, en það féll mönnum ekki í geð, en nú á síðasta Alþ. kom fram um það áskorun, að erfðalögin yrðu enn tekin til endurskoðunar, og það frv., sem hér liggur fyrir, er ávöxtur þeirrar áskorunar. Það er upphaflega samið af Þorsteini Þorsteinssyni sýslumanni, sem ég fékk til þess starfa, en frv. hefur síðan verið athugað í stjórnarráðinu og af mönnum, sem eru sérstaklega fróðir um þessi efni. Þetta frv. er því ávöxtur af grundvallarstarfi Þorsteins Þorsteinssonar sýslumanns og þeirra sérfróðu manna, sem til voru kvaddir. Í þessu frv. er miðað við þá innlendu reynslu, sem fengizt hefur, en auk þess er byggt á erlendri löggjöf. Um ýmis atriði hefur orðið álitamál, eins og um það, hve víðtækur erfðarétturinn skuli vera, og hefur höfunda greint á um, hvar setja skuli mörkin. Um það er erfitt að setja fullkomnar reglur, því fjölskylduaðstæður geta verið mjög misjafnar. En ég hygg, að hér hafi verið farið meðalhófið. Ég efa það ekki, að frv. verður til mikilla bóta, ef samþ. verður, þó að í því séu nokkur atriði, sem hljóta að verða álitamál og erfitt er að finna endanlega lausn á.

Ég held, að það sé ekki ástæða til að fjölyrða um þetta núna, en leyfi mér að óska, að því verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.