21.03.1949
Efri deild: 80. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

137. mál, erfðalög

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég hefði í raun og veru kosið frekar, að hæstv. dómsmrh. væri nú við, þar sem mál þetta er flutt af hæstv. ríkisstj. eða í raun og veru af honum. En þar sem farinn er að styttast þingtíminn, þá þykir mér þó rétt, að ekki sé dregin afgreiðsla málsins lengur, en þörf krefur, og mætti þá við 3. umr. gera þær umbætur, sem hæstv. ráðh. kynni að óska, einnig er það, að nál. allshn. ber ekki með sér neinar brtt., og aðrar brtt. hafa ekki fram komið, nema frá hv. þm. Barð., og gætu nú farið fram umr. um þær, án þess þó að úr væri skorið, hvort samþ. yrðu, fyrr en við 3. umr., því að ég óska þess, að hæstv. dómsmrh. verði við umr., áður en til úrslita dregur.

Ég vil nú leyfa mér að gera grein fyrir breytingum þeim, sem frv. hefur í för með sér, og er þá fyrst að telja það, að nú er slegið föstu, að óskilgetin börn hafi sama rétt til erfða og skilgetin, en í þessu frv. er gengið lengra, en meðal frændþjóða okkar á Norðurlöndum, því að hjá þeim er gerður mikill munur á erfðarétti skilgetinna og óskilgetinna barna. Hér er þó í einu tilfelli munur á, að ef barnsmóðir sver barn upp á barnsföður, þá er það ekki tekið til arfs. Um þetta hefur verið deilt á Alþingi, og það ekki séð sér fært að taka þau börn til jafns við önnur óskilgetin, og var því ekki ástæða til að breyta því í þessu frv. Hér er sú meginregla, að niðjar, hversu langt sem miðað er, erfi sína forfeður í beinan legg. Aftur á móti hefur hv. þm. Barð. ekki viljað láta þetta ná lengra en til barnabarna, en það mun hvergi þekkjast í heiminum, að því sé þannig farið. Yfirleitt er það svo í gildandi erfðalögum, að erfðir ganga til allra niðja foreldra arfleifanda, þá til niðja afa og ömmu, bæði föðurmóður og föðurföður, móðurföður og móðurmóður, og eigi þau enga afkomendur, þá til afkomenda langafa og langömmu, og eigi þau enga afkomendur, þá til niðja langalangafa o.s.frv. Hér með þessu frv. eru stytt þessi tengsl, en áður náði framfærsluskyldan geysilangt fram, og var því eðlilegt, að erfðarétturinn fylgdi. Nú skv. þessu frv. eru það aðeins niðjar, sem erfa, svo og foreldrar, systkini og systkinabörn. Séu þessir aðilar ekki til, þá erfa ömmur og afar og þeirra börn. Lengra nær þetta ekki og er hér lengra farið í stýfinguna heldur en í norrænum rétti. Í 8. gr. er nýmæli, sem segir, að ef sá maki, sem lengur lifir, andast, án þess að hafa gifzt aftur, en á ekki lifandi niðja eða kjörniðja og hefur ekki ráðstafað eignum sínum, þá skuli eftirlátnar eigur hans skiptast milli lögmæltra erfingja þeirra beggja að jöfnu, þó þannig, að arfur sá, er áður kann að hafa verið greiddur eftir hinn fyrr látna maka, verði við arfskiptin talinn arftaka fyrir fram greiddur arfur, og lækkar þá arfshlutinn um þá upphæð. Þykir mér þetta eftir atvikum rétt. — Það, sem mest hefur verið talað um og er erfiðast viðureignar í sambandi við þessi erfðalög, er í 13. gr. Annars er hún í allri uppistöðu svipuð og 10. gr. tilskipunarinnar frá 1850 um sama efni, en hún fjallar um það, ef lagt er sérstaklega til einhverra barna fremur en annarra af foreldrum þeirra. Er hér þó gengið lengra en áður og fleiri atriði nefnd, t.d. ef keyptur er lífeyrir, þá skal hann dreginn frá arfshluta, og koma ný atriði sem þetta eðlilega fram, þar sem allt atvinnu-, félags- og menningarlíf er nú orðið margbreytilegra en var, þegar tilskipunin frá 1850 var gefin út. Þá var það í tilskipuninni talið nægilegt skilyrði fyrir því, að frádráttur á arfshluta ætti sér stað, að faðirinn léti slíkt eftir sig skriflegt, en nú er krafizt almennra sönnunargagna: Ekki skal draga frá arfshluta barns, þótt það hafi fengið fjárframlög af óskiptu búi sér til heilsubótar eða þótt foreldrar bæti þeim upp störf, sem þau telja, að þau hafi unnið sér án sómasamlegra launa.

Ég hef nú fljótlega stiklað á aðalatriðum 1. kafla, og kem ég þá að II. kafla, sem er um afstöðu kjörbarna til kjörforeldra, en þar um hafa gilt gömul lög og úrelt, konungsúrskurðir og venjur, sem skapazt hafa. Aðalatriði þessa kafla er það, að fullt samband er á milli kjörbarna og kjörforeldra og erfir kjörbarn kjörforeldri, eins og það væri þess skilgetið barn, og kjörforeldrar erfa kjörbarn. Hins vegar geta kjörforeldrar ekki skapað erfðatengsl milli annarra ættingja og kjörbarns.

Í III. kafla, 19. gr., eru ákvæði um erfðaskrár, og hefur hv. þm. Barð. gert þá brtt., að aldurstakmark þeirra, sem rétt hafa á að ráðstafa eignum sínum með erfðaskrá, sé 21 ár í stað 18 ára í frv. Náttúrlega má um þetta deila, en ekki virðist óeðlilegt að hafa þetta 18 ár og svo var í tilskipuninni frá 1850, og á Norðurlöndum og í Þýzkalandi er þetta aldurstakmark ekki hærra en 16 ár. Í 20. gr. eru þau ákvæði, að eigi arfleifandi niðja á lífi, þá má hann ekki með erfðaskrá ráðstafa nema 1/4 eigna sinna, en sé enginn niðji á lífi, en maki lifandi, má hann ráðstafa helmingi eignanna. Þá eru í frv. þau meginatriði í sambandi við erfðaskrár, að til þess að þær séu gildar, þurfa þær að vera skriflegar og undirritaðar af arfleifanda, og skal efni þeirra annaðhvort kunngert notario publico eða nefndir til tveir valinkunnir menn sem vottar. Séu menn erlendis, jafngildir áritun sendiherra eða ræðismanns Íslands áritun notari publici. Undantekning frá því, að erfðaskrár þurfi að vera skriflegar, má gera, ef menn eru í lífsháska og geta ekki komið því við af þeim sökum. Skal þá arfleifandi flytja efni erfðaskrárinnar munnlega fyrir tveim vottum, en þeir skulu skrásetja efni hennar og staðfesta með undirskrift sinni svo fljótt sem verða má. Annars verður erfðaskráin ógild. Þá er eitt meginatriði, sem sett er í 30. gr., sem ég álít nauðsynlegt, en það er um það, að arfleifandi geti í erfðaskrá takmarkað umráðarétt erfingja yfir arfi vissan tíma eða jafnvel alla ævi, ef ástæða er til, t.d. ef erfingja er vegna geðbilunar eða óstjórnlegrar eyðslusemi ekki talinn fáandi arfurinn til umráða, og skal þá sérstakur fjárhaldsmaður greiða erfingja vissar upphæðir af arfinum með tilteknu millibili eftir því, sem þörf krefur. Geti erfingi sýnt fram á, að ástæðulaust sé að setja slíkar hömlur á umráðarétt hans yfir arfinum, getur dómsmálaráðherra fengið honum rétt til arfsins skilyrðislaust. Einnig getur ráðherra leyft, að arftaki fái hærri greiðslur, en erfðaskrá gerir ráð fyrir, ef óumflýjanleg nauðsyn arftaka og fjölskyldu hans krefur. Þá er að lokum í 33. gr. það ákvæði, að ef enginn erfingi segir til sín í 5 ár frá því kunnugt var lát arfleifanda, þá skuli arfurinn renna í ríkissjóð. Hér vill hv. þm. Barð. breyta til og láta arfinn renna til Tryggingastofnunar ríkisins, en mér finnst lítill grundvöllur fyrir þessari brtt., þar sem ríkissjóður ber uppi tryggingastofnunina svo sem aðrar ríkisstofnanir. Stundum hefur og heyrzt á hv. form. fjvn., að ekki væri of breitt bak ríkissjóðs, þótt þessi tekjulind væri ekki sneidd af honum, og virðist mér engin ástæða til að breyta þessu, og yfirleitt finnst mér, að brtt. hv. þm. Barð. eigi það sammerkt að vera lítt til bóta fallnar. Ég er tilbúinn að ræða betur við þm. um breyt. á frv., en vil óska, að brtt. verði teknar til baka til 3. umr. til þess að flýta fyrir frv., og er þá hægt að athuga þær í samráði við n. fyrir 3. umr.