26.04.1949
Efri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (790)

137. mál, erfðalög

Forseti (BSt):

Út af ummælum hv. þm. Barð. vil ég taka það fram, að forseti ræður engu um, hvort þm. tekur aftur till. sínar og hvort n. eða aðrir óska eftir, að svo sé gert. Ég minnist þess ekki heldur, að ég léti í ljós neina ósk um það. Þm. ráða sjálfir, hvað þeir láta bera undir atkv. Ég ber allt undir atkv., sem hér er borið fram, ef það fer ekki í bága við stjórnarskrá eða þingsköp.