26.04.1949
Efri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (793)

137. mál, erfðalög

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég álít, að þetta mál sé stærra en svo, að hv. frsm. sé hér að ræða ýmis aukaatriði. Út af því, að hann var að tala um, að brtt. mínar væru mikil breyt. á frv., vil ég taka það fram og hef raunar gert áður, að ég vil breyta því til bóta, en ég mun verða með frv., þó að þær verði felldar, því að ég tel, að það sé þrátt fyrir það til bóta frá því, sem verið hefur. Ég tel það slæmt, að hv. frsm. skuli ekki vilja hlusta á brtt., stórar og smáar, við frv., sem eru öðruvísi, en hann vill. Hv. 4. landsk. hefur lýst því yfir, að málið hafi verið rætt í n., og hann er mér að mestu leyti sammála, að ef til vill þurfi að breyta frv. eitthvað smávegis. En hv. þm. Dal. er enginn hæstiréttur í n., þó að hann sé það ef til vill vestur í Dölum. Helztu rök hans eru þau, að hér sé svipað fyrirkomulag á haft eins og í lögum Norðurlandaþjóðanna, en hvað kemur okkur það við? Þurfum við að vera að hugsa um, hvernig það er hjá þeim? Það er hreinn steingervingur í löggjöf að bera slíkt fyrir sig. Hv. frsm. sagðist vera hræddur að fylgja þessu vegna þess, að það mundi fjölga fjölskylduhlutafélögunum. En er það nokkur glæpur að stofna slík félög, og lög heimila það? Ég hef ekki heyrt slík rök. Og hann sagði að verið væri að fara í kringum erfðalögin og erfðafjárskattinn með því að stofna slík félög, en hlutabréf lúta sömu kjörum og verðbréf. En ég veit, að ríkið hefur fengið sitt frá þessum félögum. Ég þekki fjölda slíkra félaga, sem borga stórfé til ríkisins og eru vörn gegn hinni óréttlátu skattalöggjöf Alþ. og hafa orðið ríkinu að meira gagni með þessu móti en annars. Það eru margir þeirrar skoðunar hér, að enginn skuli eiga neitt, en ég er undrandi yfir því, að hv, þm. Dal. skuli fylla þann flokk. Og það undarlega skeður, að hv. þm. Dal. er að vappa í kringum þá ættingja sína, sem hann á von á að fá arf frá, en ég vil frábiðja mig slíkum getsökum, og hann hefur enga heimild til að bera mér slíkt á brýn, en mér kemur það ekki við, í kringum hve marga af sínum ættingjum hann vappar. Svo er ekki

breytt þeim ákvæðum í lögunum að samræma þetta aldri vitna, og rökin eru þau, að í Þýzkalandi megi menn gefa eignir sínar 16 ára gamlir. Ég held, að það væri sómasamlegast fyrir hv. frsm. að óska eftir, að umr. verði frestað, og taka málið aftur fyrir í n. og reyna þar að ná samkomulagi um það. Ég skal verða til viðtals, og það sama sagði hv. 4. landsk. Og væri það heppilegra fyrir hv. frsm. að athuga þetta, en að vera að vappa í kringum ættingja sina, þar sem hann á arfsvon. Mér þykir það leitt, ef hæstv. forseti hefur tekið það sem móðgun við sig, að atkvgr. um brtt. var frestað við 2. umr. Ég hefði ekki tekið till. mínar til baka, ef ég hefði ekki búizt við, að málið yrði athugað milli umr. Ég hafði mikla von um, að sumar till. næðu fram að ganga, en aldrei von um, að þær næðu það allar. En það er nú talin svo mikil ástæða til að vera á móti þeim, að ef þær verði samþ., þurfi að breyta öðru. Ég mun því ekki taka till. aftur og óska nafnakalls um þær flestar.