03.12.1948
Neðri deild: 26. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (815)
8. mál, Landsbókasafn
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég held, að þessi ótti hv. þm. Ísaf. sé ástæðulaus, enda getur hann hvergi fundið honum stað í frv. sjálfu, heldur vísar hann eingöngu til orðalags grg., sem samin var af nefnd þeirri, sem undirbjó frv. Nú er það svo, að samkvæmt gildandi ákvæðum er hægt að setja reglur um starfssvið safnsins, og er það á valdi ráðh. að nokkru leyti, og í þeim yrði væntanlega kveðið nánar á um notkun safnsins. Ef menn hefðu hug á að þrengja aðgang að safninu, væri það því hægt samkvæmt gildandi löggjöf, og þyrfti ekki að bera fram og samþykkja lagabreytingu til þess. Þá kemur sú spurning, hvort ekki ætti beint að setja ákvæði í þetta frv. um það, að ekki mætti takmarka aðgang að safninu, en það er ekki rétt, því að sá tími gæti komið og þannig staðið á, að slíkt þyrfti að gera að einhverju leyti af illri nauðsyn. En ég lýsi yfir því hér, að það er engin tilhneiging hjá þeim, sem fara með framkvæmd þessara mála, til að breyta nokkuð til um notkun safnsins frá því, sem verið hefur, í þá átt að takmarka aðgang að því, og það verður ekki gert fyrr, en í fulla hnefana. En það gæti reynzt óumflýjanlegt að einhverju leyti er tímar líða, þótt ekki væri það ánægjulegt. Þannig hef ég hugsað þetta, annað hefur ekki fyrir mér vakað né öðrum, sem um þetta mál hafa fjallað. Hér er ekki um neina stefnubreytingu að ræða, enda gefur þetta frv. enga ástæðu til að ætla það. Valdið til breytinga í þessu efni og möguleikar á þeim er fyrir hendi samkvæmt gildandi lögum. Ég held, að það sé ekki ástæða til að óttast neitt í sambandi við þetta frv.