13.12.1948
Neðri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (829)
8. mál, Landsbókasafn
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Þegar þetta mál var hér síðast á dagskrá í hv. d., var því frestað vegna brtt. frá hv. þm. Ísaf., en hún er nú komin hér á þskj. 173. Síðan þetta gerðist hafa menntmn. — menn borið till. saman við frv. Varð niðurstaða n. á þá leið, að hún mælir gegn till., en leggur til, að frv. þetta verði afgreitt frá þessari hv. d., eins og það er á þskj. 164. Virðist n. við nánari athugun, að brtt. sé efnislega alveg óþörf. Samkv. frv. er ætlazt til þess, að reglur verði settar um stjórn og starfshætti landsbókasafns með reglugerð, eins og verið hefur s.l. 40 ár. Við sjáum ekki annað, en segja þyrfti öldungis jafnmikið í reglugerð, þó að till. þessi yrði samþykkt. Heyra mátti á ræðu hv. þm. Ísaf., að hann teldi of mikið talað um fræði í frv., en of lítið um aðstöðu almennings til að færa sér safnið í nyt. En till. hans fjallar eigi um að efla bóklestur, heldur „bókfræðiiðkanir“, þ.e. hér er bætt við í frv. því, er áður var tekið fram í 3. málsl. 2. gr. Þetta virðist gera samþykkt till. enn óþarfari en ella. Þá hefur hv. þm. Ísaf. haldið því mjög á lofti, hversu ég og n. í heild hafi litla þekkingu á málinu. Ég andmæli því ekki, að þekking mín sé í molum, bæði í þessum efnum sem öðrum. En þó hef ég nú m.a. lesið l. frá 1907, um stjórn landsbókasafnsins. Get ég meira að segja gert grein fyrir, hvað í þeim l. segir. 1. gr. þeirra l. hljóðar svo: „Stjórnarráðið hefur á hendi yfirstjórn landsbókasafnsins, skipar starfsmenn þess, sér um hinn fasta sjóð þess, og auglýsir árlega reikning hans í Stjórnartíðindunum. — 2. gr. Skipa skal landsbókavörð .... Hann hefur á hendi daglega stjórn bókasafnsins og gegnir þeim störfum, sem stjórnarnefnd bókasafnsins hefur haft til þessa. — 3. gr. Skipa skal til aðstoðar tvo bókaverði ... 4. gr. Skipa skal 5 manna nefnd landsbókaverði til ráðuneytis við kaup bóka og handrita, og sitja í þeirri nefnd kjörnir menn af kennurum embættaskólanna og hins almenna menntaskóla, einn maður frá hverjum skóla, og landsskjalavörður hinn fimmti.“ Annað eða meira er ekki í l. um stjórn landsbókasafnsins frá 1907. Fer ég hér eftir Lagasafninu. Ég get líka skýrt frá því, að settar hafa verið reglur um starfshætti landsbókasafnsins. Þær voru settar þ. 21. apríl 1909, og eftir þeim hefur safninu verið stjórnað í s.l. 40 ár. Í þeim reglum er að finna ákvæði um lestrarsal, útlán o. fl. Þetta mun nægja til að sýna fram á, að þau ummæli hv. þm. Ísaf., að við vitum ekki af þessum l. og reglum, eru algerlega gripin úr lausu lofti, og einnig hitt, að ákvæði þau, er gilda um útlán o.fl., hafa nú verið reglugerðarákvæði um 40 ára skeið. Og loks mun ljóst, að ástæða var til þeirrar endurskoðunar, sem nú er hér um að ræða. Ég tel það annars eigi ófyrirsynju, að þetta mál sé rifjað upp. Undirbúningur var hafinn árið 1947 með skipun nefndar til að athuga málið og semja frv. til l. Formaður n. var dr. Sigurður Nordal prófessor. Alþjóð er kunnugt um, að þar er vandvirkur maður á ferð, sem þar að auki hefur til að bera frábæra þekkingu á máli og stíl. Varaform. n. var dr. Þorkell Jóhannesson prófessor, sem hefur starfað við landsbókasafnið og Háskóla Íslands. Þriðji maðurinn var Finnur Sigmundsson landsbókavörður, sem gegnt hefur því embætti um skeið, og fjórði maðurinn dr. Björn Sigfússon háskólabókavörður, sem er mönnum að ýmsu góður kunnur, hefur mikla þekkingu til að bera í þessum efnum og m.a. haldið uppi leiðbeiningum um íslenzkt málfar í útvarpinu. Fimmti maðurinn var svo Jakob Benediktsson magister. Þessir menn komu sér nú saman, og skiluðu þeir frv. sínu í fyrra. Það var þá prentað, en afgreiðslu málsins frestað. Milli þinga er það lagt fyrir háskólaráð, og þar er frv. gagnrýnt. Þar fjalla sex prófessorar um málið, þeir Alexander Jóhannesson, Ólafur Lárusson, Ásmundur Guðmundsson, Guðm. Thoroddsen, Trausti Ólafsson og Þorkell Jóhannesson. Þeir gefa n. svo ýmsar bendingar, en minnast eigi á það einu orði, að í 2. gr. frv. sé nokkuð vansagt. Þarna er þó um vel læsa menn að ræða, og meira að segja er einn þeirra, próf. Ólafur Lárusson, lögfróður í bezta lagi. Síðan er frv. þetta flutt af hæstv. ríkisstjórn, og ég verð að ætla, að hún hafi lesið sitt eigið frv. Loks stendur þingnefndin einhuga að málinu og leggur til, að frv., eins og það liggur fyrir á þskj. 164, verði samþ. Ég vænti þess, að hv. þdm. megi vera það ljóst, að hér er ekki um neitt flaustursverk að ræða. Er það dæmafátt, að jafnmargir lærdómsmenn hafi fjallað um eitt og sama frv., eigi víðtækara, en þetta er. En eftir alla þessa meðferð ris hv. þm. Ísaf. upp eins og til að bæta um það, er aðrir hafa gert. Svo virðist á máli hans sem hann muni vera manna glöggskyggnastur á málið. Frv. ber það þó með sér, að pennafærir menn hafa samið það. Þarf eigi mikla glöggskyggni til að sjá, að brtt. frá hv. þm. Ísaf. er að formi til hortittur, og ég hygg, að hinir vísu lærdómsmenn mundu segja, að þar komi köttur í ból bjarnar. M.a. vegna þessa leggur menntmn. til, að frv. verði samþ. óbreytt.