22.02.1949
Efri deild: 64. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í B-deild Alþingistíðinda. (847)
8. mál, Landsbókasafn
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir með hæstv. dómsmrh., að nauðsynlegt er að rannsaka starfsmannafjölda hjá þessari stofnun eins og mörgum öðrum og hvenær aukning hefur orðið. Ég hef verið að leita upplýsinga um þetta atriði í sambandi við störf fjvn., og eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, vinna ekki færri en 9 manns við safnið, og hefur því orðið veruleg aukning á starfsmannafjölda nú á síðustu árum. Það virðist vera svo í þeirri stofnun eins og mörgum öðrum, sem ríkið kostar, að þar sé hægt að bæta við starfsfólki, án þess að nokkrar hömlur séu á. Þegar svo fjvn. ræðir við forstöðumenn þessara stofnana með hliðsjón þess, hvort möguleikar séu á að fækka þar starfsfólki, þá fær hún alls staðar sama svarið, að það þurfi heldur að fjölga starfsfólkinu, en fækka og auk þess óski það, sem fyrir er, eftir styttri vinnutíma og hærra kaupi. Þetta er niðurstaða fjvn. í þessum athugunum, en á meðan slíkur hugsunarháttur ríkir, virðast litlir möguleikar á breytingu til batnaðar eða fækkun opinberra starfsmanna.