19.04.1949
Efri deild: 85. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (867)

8. mál, Landsbókasafn

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Í sjálfu sér borgar sig ekki að eyða löngum umr. um þetta frv., en eins og ég sagði áðan, hef ég frekar talað um þetta mál sem dæmi um önnur fleiri slík, heldur en það eitt út af fyrir sig, og þess vegna vildi ég segja aðeins nokkur orð til viðbótar. Í sjálfu sér undrar mig ekki, þó að hæstv. forseti telji, að það sé sannað, að það sé þörf á þessum mönnum, eins og rekstri safnsins er fyrir komið. Það er yfirleitt svo með allt ríkisbáknið og ríkisreksturinn, eins og hann er nú, að það er þörf fyrir þá menn, sem við þetta starfa, eins og starfrækslunni er varið og eins og henni er háttað eftir þeim reglum, sem á hverjum stað eru, og þeirri löggjöf, sem í landinu er. Og það mun nú víðar reynast svo, en í þessu litla tilfelli, sem hér um ræðir, að menn geta talað um, að það sé mikill ofvöxtur í ríkisbákninu, og það má benda á, að það hafi blásið tortryggilega út á stríðsárunum og fyrst eftir þau, en þegar til á að taka að skera niður, verður það hægara sagt en gert, og menn hika við það. Nú sagði hæstv. forseti, að það væri venja, þegar embætti væru lögð niður, að láta það ekki koma til framkvæmda fyrr en mannaskipti yrðu í embættunum. Hæstv. Alþ. hefur tekið annan hátt upp nú. Það eru lækkaðar fjárveitingar til nokkurra greina ríkisstarfrækslunnar við 2. umr. fjárl. á þann veg, að það er ljóst, að mönnum á að segja upp, að því er virðist alveg fyrirvaralaust, láta þá hverfa úr störfum. En það er ómögulegt, að slíkur sparnaður sé gerður, eins og samþ. hefur verið, nema sú aðferð sé viðhöfð, að ekki sé um lögbundnar stöður að ræða. En í þessu tilfelli, sem hér er um að ræða, er ekki um lögbundnar stöður að ræða. Það er nú, sem á að lögbinda þessar stöður. Það er rétt, sem hæstv. forseti segir, að hér er ekki beinlínis lagt til að auka ríkisbáknið, vegna þess að það er búið að vaxa upp í það, sem þar er lagt til, en frv. er ætlað að tryggja það, að það verði í sömu skorðum og það hefur verið og varð mest eftir ofvöxtinn á eyðslutímunum. (BSt: Nei, nei, það er búið að leggja niður eitt starfið.) Skráningarstarfinu hefur ekki verið þörf á að halda áfram, en annars er það góðra gjalda vert, ef búið er að leggja það niður. Hitt held ég, að sé aðeins orðaleikur hjá hæstv. forseta og hæstv. menntmrh. að tala um, að hér sé um hámark að ræða. Ég hef ekki trú á því, að hann eða einhver annar, sem ég hef ekki meiri trú á í þeim efnum en honum, hafi mikla aðstöðu til að hrekja menn úr stöðum, ef búið er að lögfesta þær alveg nýlega á Alþ., og hæstv. ráðh. er gert miklu örðugra um vik með þetta, þegar búið er að lögfesta það að hafa svona marga menn. Hæstv. forseti sagði, að þessir menn hefðu langan vinnutíma og lengri en tíðkaðist á skrifstofum. Það er þá nýtilkomið, ef svo er. Ég var fyrir nokkru kunnugur á þessu safni, og þá var vinnutíminn þar skammur, en það er gott, ef hann hefur lengzt. Hins vegar var það svo áður fyrr, í áratugi, að látið var nægja, að einn maður væri við lestrarsalsgæzlu á hverjum tíma, og ef það er rétt, að safnið sé opið frá kl. 10 á morgnana og til kl. 10 á kvöldin, þá eru lengst af á þessum tíma svo fáir gestir á lestrarsalnum að það ætti ekki að þurfa að vera þar meira, en einn maður. Ég hef að vísu ekki komið þar fyrir hádegi, — og ég heyri fyrst núna, að safnið sé opið á þeim tíma, og efast ekki um, að það sé rétt, — en eftir venju, þá eru það ekki margir, sem sækja safnið á þeim tíma. Þess er nú að gæta við slíkar lagasetningar, að það hefur stundum viljað til, að þær hafa einungis verið yfirvarp fyrir því að skapa stöður handa mönnum, sem hafa þurft að fá einhverja fyrirgreiðslu. — Mér þætti það fróðlegt að fá yfirlit um það, hvenær þessi aukning varð við safnið, sem orðið hefur, og ég er ekki alveg viss um, að það sé alveg rétt, sem hæstv. forseti sagði, að fyrrverandi menntmrh., Brynjólfur Bjarnason, hafi bætt við tveim mönnum. Þó að hann hafi skipað tvo menn, þá gæti verið, að staða hefði losnað af öðrum ástæðum, hitt man ég, að Einar Arnórsson skipaði einn mann, og ég held, að hann hafi verið ráðinn, án þess að hann kæmi í staðinn fyrir nokkurn. En mér þætti fróðlegt að fá að vita, hvenær menn hafa bætzt við í safnið, og enn fremur, hve langur vinnutíminn er þar og hve lengi safnið er opið daglega, og þá ekki síður, hve margir sækja safnið milli kl. 10 og 12 og eftir kl. 8 á kvöldin. Ég trúi því ekki, að það sé mikið sótt af fræðimönnum allan þann tíma, og víða erlendis eru söfnin ekki opin eftir kvöldmat, en hins vegar eru þau opin á morgnana.

Ég vil ítreka það, að mér er þetta mál síður en svo nokkurt kappsmál, og ég geri ráð fyrir, að ég greiði ekki atkv. á móti málinu, ef það er álit n. og þeirra manna, sem kunnugastir eru, að rétt sé að samþ. þetta, eins og það liggur fyrir. En ég vildi taka þetta sem dæmi um það, hve auðvelt er annars vegar að tala um það, hve ríkisbáknið sé mikið, og hvað það stendur svo í mönnum, þegar til á að taka við að draga það saman, því að ég þori að ábyrgjast, að óviða muni hægara að draga eitthvað saman, en í þessu tilfeili. En ef n. eftir þessa sérstöku rannsókn telur það ástæðulaust, þá vil ég hlíta þeirri rannsókn. Ég vildi þó óska eftir þessum upplýsingum, áður en málið er tekið til endanlegrar afgreiðslu.