05.04.1949
Efri deild: 82. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (919)
158. mál, ríkisreikningar 1945
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. þm. Barð., en hann var að biðja um svar út af bréfinu, sem er í alla staði mjög eðlileg ósk, þá vildi ég taka það fram að ég hef beðið með svarið vegna þess, að ég vildi fá að heyra, hvaða afstöðu Landsbankinn hefði tekið til málsins, og meðan sú afstaða liggur ekki fyrir, er ekki knýjandi nauðsyn að svara.
Að gefnu tilefni skal ég ganga eftir því, að hv. þm. geti fengið til bráðabirgða fjölritað eintak af reikningnum í haust, eða þegar hann verður fullgerður fyrir fjvn., enda finnst mér eðlilegt, að það sé gert.