07.05.1949
Neðri deild: 103. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (934)
158. mál, ríkisreikningar 1945
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Hv. þm. V-Húnv. hefur drepið á nokkur atriði reikningsins og finnst þar kenna nokkurs ósamræmis eftir því, sem tölur herma. Þó að maður hafi farið yfir þessar tölur einu sinni, þá kann að vera, að maður geti ekki svarað öllu samstundis í sambandi við þær, þar sem um er að ræða tölur, sem standa í fleiri ár, og þyrfti því að hafa fleiri tölur í kollinum í einu. En það er engu að síður eðlilegt, að hann veki athygli á þessu atriði, og skal ég nú reyna að svara þessu, þó að ég hafi ekki önnur gögn að styðjast við, en reikninginn sjálfan.
Viðvíkjandi fyrstu tölunni, þessum 900 þús., þá get ég því miður ekki upplýst neitt um hana.
Þá drap hann á verðjöfnun kola. Við höfum ekki ástæðu til annars en að láta þessa upphæð standa sem eign, þar til ákvörðun yrði tekin um að innheimta hana eða annað. Nú skal ég ekkert um það segja, hvort af innheimtu verður eða ekki. En þó að þetta sé mikil upphæð, þá er þó engin nýlunda að færa þetta svona, því að árum saman eru færðar á reikninginn fjárhæðir, sem lánaðar hafa verið og greiddar úr ríkissjóði, en ekki hafa verið greiddar þangað aftur. Um þetta á Alþ. að taka ákvörðun, en við yfirskoðunarmenn höfum ekki talið ástæðu til að leggja til, að Alþ. geri það, fyrr en útséð yrði um það, að þetta yrði ekki greitt. Við höfum heldur ekki fengið neina sérstaka hvöt til þess að hraða þess konar uppgjöri, því að þá sjaldan við höfum gert till. þar að lútandi, þá hefur aldrei verið gerð nein ráðstöfun af hálfu Alþ. til þess. Eigi að síður er ég sammála hv. þm. V-Húnv. í því, að þar sem ekki sé um raunverulega eign að ræða, þá eigi að gera það upp á þann hátt, að það komi skýrt í ljós. Og ég ætla, að það sé rétt, að það liggi till. um þetta frá okkur með þeim reikningi, sem fyrir liggur núna.
Þá minntist hv. þm. á tvær tölur, sem eru færsluatriði. Eftir reikningnum er það svo, að það ber á milli í reikningum tveggja stofnana, og það kann að benda til þess, að reikningurinn sé ekki réttur, því að það, sem annar sjóðurinn telur sig eiga hjá hinum, er ekki allt talið til skuldar hjá honum. Nú er það rétt, að reikningunum ber ekki saman, og maður gæti þá ætlað, að reikningurinn sýni þess vegna ekki alveg rétta mynd. En nú þarf þetta ekki endilega að vera svo, því að eftir að annar sjóðurinn hafði lokað sínum reikningi, þá gat vel verið, að hinn væri opinn enn þá. Það gat því skeð, að ríkissjóður hefði greitt þessa upphæð áður en reikningi hans var lokað, en eftir að reikningi fiskimálasjóðs var lokað. Sé þessu ekki þannig varið, þá hefur okkur yfirsézt. Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu, að það er oft, að reikningunum ber ekki saman fljótt á litið, og það stafar af því, að sjóðirnir eða einstakar stofnanir loka sínum reikningum fyrr, en ríkisreikningnum er lokað, en þá jafnast það allt saman á næsta ári á eftir. Hvernig þessu er varið í þessu tilfelli, er ég ekki fullviss um, en það er sjálfsagt að taka það til athugunar, hvort ríkissjóði séu þannig ofreiknaðar eignir, en ég gæti þó betur trúað, að hitt sé orsökin, að greiðsla hafi farið fram, eftir að sjóðnum hafi verið lokað hjá stofnununum.
Hv. þm. V-Húnv. fann að því, hvað seint gengi með afgreiðslu ríkisreikninganna. Þó að ég sé hér aðili að nokkru leyti, þá skal ég samt fúslega viðurkenna það með hv. þm. V-Húnv., að reikningarnir eru of langt á eftir. En við yfirskoðunarmennirnir þykjumst nú hafa nokkra afsökun. Um þriggja ára skeið höfum við verið í hinu mesta húsnæðishraki og höfum orðið að bíða í marga mánuði eftir því, en þetta hefur nú breytzt, og við erum nú búnir að fá viðunandi húsnæði. En þetta varð samt einmitt til þess að seinka þessum tveim reikningum, 1945 og 1946, en það nær hins vegar ekki til reikningsins 1947, sem hv. þm. V-Húnv. sagði, að ætti að liggja hér tilbúinn fyrir Alþ. til samþykktar. Ég er ekki að andmæla þessu, en þá ætti bara að vera öðruvísi í haginn búið fyrir yfirskoðunarmennina heldur en nú er. Fyrst vil ég geta þess, til þess að forðast allan misskilning, að hvað áhrærir ríkisbókhaldið, þá hafa reikningarnir af þess hálfu alltaf verið í góðu lagi. En hvað áhrærir ríkisstj., þá hefur það nú verið svo, að reikningnum hefur ekki verið lokað fyrr en einhvern tíma á sumarmánuðunum. Reikningnum 1947 var t.d. ekki lokað fyrr en í október í haust sem leið, og er þá eftir að gera hann upp og ganga frá honum. Nú eru fleiri atriði, sem koma inn í hvers konar athugun og endurskoðun, til þess að hún geti gengið fyrir sig. Reikningurinn þarf að vera tilbúinn, því að við getum þá strax byrjað endurskoðunina, áður en reikningurinn er prentaður. Sú byrjun byggist á þeim gögnum, sem frammi liggja, og við getum byrjað að athuga einstakar greiðslur. En hvað áhrærir ýmis önnur atriði, þá veit ég ekki, hve mikið er ætlazt til, að við athugum reikninga fyrir þau ár, sem við höfum ekki verið kosnir til þess að endurskoða. Það er í raun og veru ekki í okkar verkahring að athuga reikninga nema frá því ári, sem við erum kjörnir til. En ég get vel tekið undir það, að eðlilegt væri, að yfirskoðunarmennirnir fylgdust með höfuðatriðum gjaldaliðanna og greiðslum þaðan, en viðkunnanlegt væri þá, að búið væri að kjósa þessa menn til þess nokkru fyrr en venja er,verð ég að segja.
Umboðslega endurskoðunin er nú orðin langt á eftir. Ég vil þó geta þess í þessu sambandi, að húsakosti þeirra manna, sem að þeirri endurskoðun stóðu, var mjög ábótavant alveg fram á síðasta haust. Þar urðu margir menn að hýrast saman í litlu herbergi, þar sem þeir urðu að pakka saman öllum skjölum og ganga frá þeim jafnskjótt og þeir höfðu notað þau einu sinni, og ef þeir þurftu að skoða þau aftur sama dag eða daginn eftir, urðu þeir að taka þau upp aftur. Þetta var þannig mjög til þess að hindra umboðslegu endurskoðunina, og þar af leiðandi er það nokkur vorkunn, þó að starfið hafi sótzt nokkuð seint. Og þó að það sé ef til vill nokkurt vorkunnarmál og við hefðum getað gengið rösklegar til verks, þá ætla ég samt ekki að fara að fjölyrða frekar um það eða bera af okkur sök, frekar en ég hef gert. Þó er það eitt atriði, sem ég vil aðeins drepa á í þessu sambandi. Það er ákvæði 43. gr. stjskr., þar sem okkur er uppálagt að kynna okkur eftir beztu getu skjöl og skilríki, eftir því sem þurfa þykir. Og það höfum við reynt að gera eftir okkar beztu getu, þó að vel megi vera, að æskilegt hefði verið, að við hefðum gert það enn þá rækilegar. En auk ákvæða stjskr. erum við bundnir af öðrum ákvæðum. Þar verð ég að gefa þá syndajátningu, að þann lagastaf höfum við brotið. Við höfum farið út yfir þá lagaskyldu, sem okkur var lögð á herðar. Ég vona, að okkur fyrirgefist það, af því að okkur hefur fundizt starfið svo langt á eftir, að við neyddumst til að framkvæma yfirskoðun reikninganna fyrr, en þar er ætlazt til. L. um þetta efni, sem snerta yfirskoðun, eru frá 1931, nr. 61, um ríkisbókhald og endurskoðun. Í 10. gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Fjmrn. ber að láta endurskoðunarskýrslu fylgja reikningum þeim, sem það endurskoðar, þegar þeir eru lagðir fyrir yfirskoðunarmenn ríkisreikningsins. Í endurskoðunarskýrslu skal fram tekið, hvernig endurskoðun hefur verið hagað, hverjar athugasemdir hafi verið gerðar, svör við þeim og úrskurðir, enn fremur sérhvað það viðvíkjandi reikningsskilunum eða rekstri, er fjmrn. telur rétt að vekja athygli á eða gera athugasemdir um til yfirskoðunarmanna.“
Ef við eigum að fara eftir bókstaf l., þá eigum við ekki að skila okkar verki fyrr en við höfum öll þessi gögn. Þetta höfum við krossbrotið s.l. ár, því að ekki hefur legið fyrir nema nokkur hluti þeirra reikninga, sem hin umboðslega endurskoðun hefur átt að skila, og það er þá nýverið, ef það er búin að fara fram hin umboðslega endurskoðun fyrir 1944 á sumum stofnunum ríkisins og því síður fyrir 1945 og 1946. Nú er fjmrn. að reyna að kippa þessu í lag, enda höfum við á það þrýst alvarlega, að þetta geti ekki gengið svona áfram, og hvað áhrærir reikninginn, sem við erum að endurskoða nú, þá er hin umboðslega endurskoðun að verki með hann. Þetta vil ég, að komi fram, svo að hv. þm. sé kunnugt, hvernig þessu máli er varið.
Að því leyti sem færsla milli ára hefur átt sér stað, þá höfum við kynnt okkur, hvort það hafi ekki komið fram á næsta ári, svo að það leiðréttist, sem milli hefur borið frá fyrra árs reikningi.
Viðvíkjandi tveimur atriðum, sem hv. þm. V-Húnv. vék að, þá skal ég kynna mér það til að sjá, hvernig því er varið, svo að hægt sé að vekja athygli á því í sambandi við ríkisreikninga síðar. Ég vil svo taka undir það með honum, að það væri í alla staði heppilegast og skemmtilegast fyrir þá, sem að þessum málum koma, að ríkisreikningur geti komið fyrir Alþingi sem allra næst þeim tíma, sem hann er fyrir, og upp á alla vitneskju er það auðvitað nauðsynlegt. Ég vil mega vænta þess, að í haust, er þing kemur saman, geti reikningurinn fyrir 1946 og 1947 legið tilbúinn fyrir, þegar þingið byrjar sín störf.
Hvenær ríkisreikningnum verður lokið fyrir 1948, skal ég ekki segja, en það er óhjákvæmilegt, að ríkisstj. hraði því að ganga frá reikningnum frá sinni hálfu, svo að hægt sé að færa þann tíma fram, sem reikningurinn kemur fyrir þingið.