25.04.1949
Efri deild: 88. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í B-deild Alþingistíðinda. (954)
134. mál, eignarnám lóða í Reykjavík
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Enda þótt ég sé með eignarnáminu, hvort heldur sem það er fyrir Menntaskólann í Reykjavík eða ekki, þá er ég líka með því, að menntaskólinn eigi í framtíðinni að vera þar, sem hann er, og tel ég meiri tryggingu fyrir því, að svo verði, ef eignarnámið verður samþ. Þess vegna er ég á móti brtt. og segi nei.