06.05.1950
Efri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

Bernharð Stefánsson:

Virðulegi forseti. Ég þarf nú ekki margt fram að taka, því að aths. hv. frsm. n. út af till. minni á þskj. 612 voru þess eðlis, að þær þurfa ekki mikilla svara við, það á við um annað atriðið sérstaklega. — Hv. frsm. sagði, að það mundi skaða ríkissjóð um milljónir, ef þessi till. yrði samþ. Ég get ekki skilið, að það þurfi að skaða ríkissjóð neitt, nema ef vera skyldi meiningin að svíkjast um að innleysa skuldabréfin og þau verði verðlaus, því að mér skilst, að það sé sama upphæðin, sem ríkissjóður á að greiða, hvort heldur sem till. mín er samþ. eða ekki, en það virðist hv. þm. ekki geta skilizt. Hér er aðeins verið að fana fram á greiðslufrest. En ef till. mín verður samþ., þá getur það ekki skaðað ríkissjóð neitt nema um vaxtamismuninn, ef það þarf að taka lán til þess að standa við bótaskuldbindingarnar. Hitt er annað mál, að með því móti að mín till. verði samþ., þá þarf ríkisstj. að ráða fram úr vandanum um fjárútvegun, sem að hinu leytinu er slegið á frest, ef hún er ekki samþ. og þeirri ríkisstj., sem þá situr, ætlað að ráða fram úr vandanum. Þessi ástæða hv. frsm. er því hrein fjarstæða, og þykist ég hafa gert henni full skil. En hvað það snertir, að það geti verið til þæginda fyrir ríkissjóð, að skuldabréfin séu tekin til víðtækari bóta en ég legg til, skal ég koma að síðar í sambandi við tili. hv. þm. Barð.

Þá var það önnur ástæða hv. frsm., að sumir af þeim mönnum, sem hér er um að ræða, hafi raunverulega beðið lítið tjón af sauðfjárveikinni. Það kann að vera rétt og eiga við um ýmis svæði, en þó er það ekki svo alls staðar. Mér dettur t.d. í hug hluti af Skagafirði, þar sem fjárskipti hafa farið tvisvar sinnum fram, í Viðvíkursveitinni, og hygg ég, að bændur þar hafi beðið allmikið tjón af því. En hér er ekki aðeins um það að ræða, heldur tel ég, að þeir bændur, sem eru búnir að lóga fé sínu samkv. samþykktum þar um, staðfestum af landbrh., meðan eldri lög voru í gildi, eigi kröfurétt á þessari greiðslu eins og hverri annarri fjárkröfu, og ég sé ekki meiri ástæðu til þess að synja þessum mönnum um greiðslu á kröfum sínum en öðrum um t.d. laun. Ég fæ ekki séð það, að þessi krafa sé ekki eins rétthá og hver önnur. Um hitt efast ég ekki, að ef till. mín verður samþ., þá verður hægt að fá marga af þessum mönnum til þess að taka við bréfunum upp í greiðslu skv. till. minni. En ef 4. till. hv. þm. Barð. verður samþ., þá skal ég játa það, að mín till. hefur litla þýðingu, því að þá er svo komið, að þessi skuldabréf væru orðin eins og peningar. En ég held nú bara, að annað væri einfaldara en að samþ. till. hv. þm. Barð. við 6. gr., en mundi að flestu leyti koma í sama stað niður. Það væri að skylda Landsbankann til að lána ríkissjóði ákveðna fjárhæð til að greiða bæturnar. En ég geri tæplega ráð fyrir, að það þyrfti að setja um það l. Ég hygg, að það yrði hægt að gera um það samning við Landsbankann. Það fyndist mér leið, úr því að ríkissjóður þarf að skulda þetta hvort sem er, og miklu beinni leið, áður en farið er að lögákveða það, að allir bændur, sem bætur eiga að fá, skuli skyldaðir að eiga þær hjá ríkissjóði.

Ég er hv. frsm. sammála um það, að sumir liðir í 4. brtt. hv. þm. Barð. geti varla staðizt, jafnvel samkv. stjskr. Mundi það þó sérstaklega vera 3. liður. Ég held, að það sé tæplega hægt að skylda einstaklinga til að taka þessi bréf upp í skuldir. ríkið getur ákveðið, að þau skuli mega láta í opinber gjöld, og sennilega líka, að þau skuli gilda sem greiðsla í lausaskuldir Landsbankans. En hvað einstaklingana snertir þá sýnist mér það tæplega vera hægt. En hvað sem um það er, held ég, að hv. þm. Barð. hljóti að sjá, að eins og hann hefur útbúið þessa till., þá kemur í sama stað niður, en væri miklu einfaldara, að Landsbankinn væri skyldaður til að lána ríkissjóði fyrir bótunum.