06.05.1950
Efri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Gísli Jónsson:
Ég þakka hv. frsm. fyrir að taka undir að fresta atkvgr. Það er ekki til að tefja málið á neinn hátt, heldur til að reyna að fá samkomulag, hvernig málið verði bezt afgr. út úr þinginu, svo að ekki þurfi að senda það milli deilda eftir að samkomulag væri fengið um það, einnig við Nd. Ég sé ekki ástæðu til að ljúka ekki umr., því að þótt það kæmi hingað til umr. til að samþ. það, sem breytt kynni að vera í Nd., þá breytir það ekki neinu, því að ég geri ráð fyrir, að ekki verði hægt að komast að samkomulagi, nema einhverju verði breytt. Ég óska því ekki eftir, að umr. verði frestað, en þetta er svo mikið mál, að ég álít rétt, að reynt verði að ná samkomulagi, áður en atkvgr. fer fram.
Út af því, sem hv. 1. þm. Eyf. (BSt) sagði, þá er ég ekki sammála honum, að menn eigi lagalega heimtingu á að fá fullar bætur eftir þeim l., sem giltu þá. Mér sýnist ýmislegt annað hafa verið gert hér á undanförnum árum, sem taki eins mikinn rétt af mönnum og þessi ákvæði, ekki sízt það, sem gert hefur verið á þessu þingi. Sama er að segja um aths. hans um gjaldmiðilinn. Ég sé ekki meiri goðgá að ætla mönnum að taka bætur í þessum gjaldmiðil en að fella gjaldmiðilinn um svo og svo mörg prósent sem gert hefur verið á þessu þingi með okkar beggja samþykki, og ég sé ekki annað en þjóðin hafi orðið að sætta sig við það. Mér skilst, að Alþingi leyfi sér að gera ýmsar slíkar ráðstafanir, þegar það er nauðsyn fyrir almannaheill. Hér er um stórkostlegt nauðsynjamál að ræða fyrir landsmenn. Hér er eitt af allra alvarlegustu málum annars aðalatvinnuvegar þjóðarinnar. Ég álít, að það sé því ekki nein goðgá að gera sérstök fyrirmæli, sem miða að því að tryggja framtið þessa atvinnuvegar og framtíð landsins. Ég tel það ákaflega mikla þröngsýni, ef menn halda, að það sé ekki hægt að ákveða það vegna stjórnarskrárinnar. Það hefur verið gengið nær henni áður á Alþingi með öðrum ráðstöfunum og till.
Út af því, sem hv. 1. þm. N-M. (PZ) sagði, þá er ég fús til viðræðna um að tryggja á allan hátt, hvort sem það væri með brtt. í Nd. eða með reglugerð, ef það nægði til að tryggja, að þessi bréf færu ekki á opinn markað. Ég hef enga löngun til, að peningamenn, hvorki hv. þm. Barð. eða aðrir auðmenn landsins, auðgist á þennan hátt. Ef ég get ekki haft ofan í mig að éta nema með því að auðgast á fjársjúkdómum, þá tel ég mig of illa farinn. Till. er ekki borin fram af þeirri ástæðu. Ég tel, að það hafi áður verið gengið inn á þessa braut í tveimur stórmálum, annars vegar í sambandi við gengisfellinguna. Þá var ákveðið í l., að Landsbankinn tæki upp í lausaskuldir bréf, sem ekki voru eins vel tryggð. Með öðrum l. var Landsbankinn skyldaður til að lána 100 milljónir kr. með 21/2% vöxtum. Það hefði eins mátt segja, að honum væri fyrirskipað að lána allt, sem ríkissjóður þyrfti með, svo að ekki þyrfti að leita með það í aðra staði. Ég tel því sjálfsagðan hlut að bæta úr þessu eða gera þessa erfiðleika minni með því að ákveða með l. eða reglugerð, að greiða megi lausaskuldir í Landsbankanum með þessum gjaldmiðil með einhverjum fyrirvara, sem hægt er að setja með reglugerð eða l., um lausaskuldir, sem bankinn er alltaf að kvarta undan, að hann fái ekki greiddar.