11.05.1950
Efri deild: 104. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)

96. mál, ríkisreikningurinn 1946

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég skal gjarna verða við þeim tilmælum að lengja ekki um of umr. um málið. Ég vildi aðeins geta þess út af aths., sem hér hafa fram komið, að mér þykir vænt um, að hv. 1. þm. N–M. og hv. þm. Barð. hafa metið viðleitni þá, sem ég hef sýnt til að gefa upplýsingar, sem um var beðið, þó að ég játi, að þær hafa hvergi nærri verið nógu tæmandi og gefið tilefni til miklu meiri umr. en hér hafa orðið. Ég get samt sem áður ekki gengið alveg fram hjá því, sem kom fram hjá hv. 1. þm. N–M. Það má endilega ekki skilja mín orð þannig, — ég játa, að ég er feginn því, að Landssmiðjan er laus úr þeim einstöku fjárhagsvandræðum, sem hún var í á þeim tíma, sem ég var í rn., — að ég sé fylgjandi því, að hún hverfi að mestu leyti af iðnaðarsviðinu og fari inn á önnur svið. Mér er ekki kunnugt um, að hve miklu leyti hún gerir það, en ég tek undir það, að hennar verksvið hefur aldrei verið hugsað sem verzlun, heldur er hún hugsuð sem iðnaðarfyrirtæki, starfandi sem önnur heilbrigð iðnaðarfyrirtæki hér í bænum, og ég vona, að hún eigi sér góða framtíð fyrir höndum undir stjórn, sem hún hefur nú. Og meðan hennar verkefni er ekki breytt af réttum aðilum eða fyrir hana lagt af Alþ. að gera eitthvað annað, þá er ég samþykkur hv. þm. um það, að hún eigi að skoðast sem iðnaðarfyrirtæki.

Um það tap, sem orðið hefur hjá einstöku mönnum, sem hafa smíðað báta fyrir ríkissjóð, er ekki vert að fjölyrða. En til skýringar á þessu atriði vil ég benda á það, að það er að vísu alveg rétt, að þegar maður gerir samning um ákveðið verk, þá verður maður sjálfur að bera ábyrgð á því, ef samningurinn hefur orðið manni of þungur í skauti, en á hinn bóginn vil ég benda á það, að þetta er líklega í fyrsta sinn í sögu landsins, sem ríkisvaldið hefur gert stórkostlegan verksamning á sviði skipasmíða við marga aðila í landinu og með dálítið nýstárlegum hætti, og var fylgt teknískum reglum, svo sem vera ber. Ríkisstj. hafði lærðan mann á þessu sviði, og við þann lærða mann sömdu svo þessar skipasmíðastöðvar, og það má vel vera, að þeim hafi kannske skotizt yfir í einhverjum þeim skuldbindingum, sem þeir undirgengust. Venjulega, þegar einhver byggir fyrir mann, er það ekki undir svo ströngum formúlum, að það geti ekki lent á eigandanum, ef eitthvað kemur fyrir. Það er annað, sem getur líka skýrt það tap, sem menn hér hafa orðið fyrir hér og er mismunandi mikið, að menn eru misjafnlega fyrirhyggjusamir að afla þeirra hluta, sem þarf, þegar framkvæmd eru svona verk, og sé ekki einhver hlutur pantaður í tíma, þá lendi menn í því að kaupa hann á hærra verði. Ég bendi á þetta sem hugsanlega möguleika. Það eru margar utanaðkomandi ástæður, sem geta valdið því, að menn tapi á svona verkum, þó að þeir haldi, að þeir hafi gert samning, sem fyrirbyggi það. Og ég er hræddur um, að það hafi hent þessa menn marga.

Út af þeim aths., sem hv. þm. Barð. gerði hér, vil ég taka það fram, að þær eiga allar við á allt öðrum vettvangi. Ég skil, að þær muni vera sérstaklega ljósar dyrir honum, þar sem hann er form. og frsm. fjvn. á Alþ., og í raun og veru ættu allar þessar aths. þm. að koma fram á þeim vettvangi. Ég sé mér ekki fært að svara þeim hér. Ég tel t.d., að það sé fánýtt að hafa hér umr. um verk fiskimálan. frá árinu 1945 og þeirra manna, sem í henni voru, því að hér er enginn til að forsvara þeirra gerðir eða verja einstök framkvæmdaratriði, sem þeir hafa séð um. Ég taldi fram svona almennt þær málsbætur, sem voru til fyrir sjálfri ráðstöfuninni, fiskflutningunum, að þeir voru framkvæmdir, en ég sé mér á engan hátt fært að fara út í einstök framkvæmdaratriði, enda álít ég það ekki viðeigandi í þessari hv. d. Ég vil alls ekki, að mín orð séu skilin þannig, að ég hafi haldið á þeim tíma, að saltfiskverzlun ætti ekki rétt á sér. Ég er einn af þeim, sem alltaf hafa verið með því, að henni væri haldið í heiðri, og benti þráfaldlega hraðfrystihúsaákafamönnunum á þá staðreynd, að hinir gömlu saltfiskmarkaðir, sem við hefðum haft fyrr á árum, mundu verða okkur nokkuð öruggir í framtíðinni, þegar stríðsvíman væri liðin hjá. En á þessum árum var hægt að selja allt nýtt, sem hafði höfuð og sporð, á brezka markaðinum og var mönnum hér heima vorkunn, þó að þeir tækju heldur kelduna en krókinn, þ.e.a.s. sendu, fiskinn á enska markaðinn heldur en að halda við saltfiskverkun hér heima, með því kaupgjaldi, sem þá var.

Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en vonast til, að málið geti nú fengið fylgi hér í hv. d. Okkur stendur svo öllum opin leið að því sem þm. að draga hvaða atriði af þessu sem vera vill inn í umr. í Sþ. Það er leitt, að enginn úr hæstv. ríkisstj. skuli hafa hlustað á þær aths., sem hv. þm. hafa hér gert um þessi atriði. Þó að okkur öllum sé lærdómsríkt á þær að hlýða, þá er það þó mestur lærdómur fyrir þá, sem bera hita og þunga dagsins af stjórnarráðstöfunum þá og þá stundina.