20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)

38. mál, fjárlög 1950

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. 1942 var háð örlagarík barátta um það, hvort verðbólgan skyldi óhindruð fá að flæða hér yfir. Framsfl. barðist á móti því. Hann vildi stöðva dýrtíðina, eins og hún var þá, og taka sem mest af stríðsgróðanum í vörzlu ríkisins, sem notaði hann svo eftir stríð til alhliða umbóta.

Framsfl. varaði þá og ætíð síðan við þeim voða, sem fljótt mundi verða fyrir dyrum, ef dýrtíðin fengi óhindruð að flæða yfir landið, og taldi, að erfitt mundi síðar að ætla sér að ráða við, hvert sú flóðbylgja bæri þjóðina. Hann varaði einnig við því óheilbrigða kapphlaupi og þeirri spillingu í viðskipta- og fjármálalífi þjóðarinnar, sem skefjalaus verðbólga mundi leiða af sér, og sýndi fram á, að sú viðureign gæti ekki endað nema á einn veg: að þeir ríku yrðu ríkari og þeir fátæku fátækari.

Svo fór í þessu efni, að stefna Framsfl. beið ósigur. Aðvaranir hans voru að engu hafðar og allar flóðgáttir dýrtíðarinnar opnaðar. Sú ráðstöfun varð fljótlega undirstaða hvers konar lausungar, jafnt í stjórnmálum sem atvinnu- og viðskiptamálum, og leiddi til þess 1944, að hin svokallaða nýsköpunarstjórn var mynduð. Frá upphafi til endaloka hélt þessi stjórn trúlega verndarhendi sinni yfir skefjalausu kapphlaupi um svokallaðan stríðsgróða og lét mjög afskiptalaust margs konar viðskiptasiðleysi, sem þessu kapphlaupi fylgdi. Og hún virtist láta þetta viðgangast vitandi vits um, að hér yrði ójafn leikur. Þeir æfðustu og haldsterkustu á þeim leikvangi hlutu að geta sópað til sín meira, en bróðurpartinum, og svo leit út sem til þess væri leikurinn gerður.

Meðan þessu fór fram var athygli þjóðarinnar leidd að öðru. Var þá hampað margs konar umbótalöggjöf, en ekki um það hirt að skapa henni fjárhagsgrundvöll. Það varð hlutverk annarrar ríkisstjórnar að afla fjárins til framkvæmda margra þessara mála, en sum hafa ekki komizt í framkvæmd vegna fjárskorts og önnur lifað á nástrái svo að segja frá degi til dags. — Fyrir nýsköpunarstjórninni virtust ýmis þessi umbótamál aðeins vera nauðsynlegt ryk í augu almennings. Þess var ekki óskað, að fólkið sæi, hversu mjög stjórnarathöfnum var hagað til hagsbóta fyrir spákaupmennsku og brask.

Þegar stjórninni var bent á, hversu óþolandi væri, að fáeinum einstaklingum liðist að sópa til sín miklu af hinum svokallaða stríðsgróða, svaraði forsætisráðherrann því, að sér mundi ekki verða mikið fyrir að seilast inn í rottuholurnar — eins og hann orðaði það — til þess að sækja féð.

Í annað sinn, þegar svo var komið, að þessi sami forsrh. treysti sér ekki lengur að telja þjóðinni trú um blessun dýrtíðarinnar, lagði hann áherzlu á það, að auðvelt yrði að ráða niðurlögum hennar þegar þurfa þætti. Þá létti mörgum frómum sálum í flokki þessa forsrh., sálum, sem hlustuðu á varnaðarorð Framsfl. og óttuðust allt gáleysið. Og þá hófst átrúnaðurinn á hina frelsandi hönd, sem með einu pennastriki mundi laga misfellurnar áður en of seint yrði.

Í árslok 1946 var svo komið fyrir bátaútvegi landsmanna, að alger stöðvun var fyrir dyrum. Útvegsmenn færðu rök fyrir því, að síðan verðbólgunni var sleppt lausri 1942, hefðu þeir alltaf verið að tapa og væru nú að þrotum komnir. Niðurstaðan varð sú, að skömmu áður en sú stjórn, sem ber ábyrgð á því ástandi, sem hæstv. fjmrh. var að lýsa, nýsköpunarstjórnin, hrökklaðist frá völdum, varð Alþingi að samþykkja allt að 50% hærra ábyrgðarverð en útlit var fyrir að fiskurinn seldist á í markaðslöndunum. En ekki sótti Ólafur Thors þá féð í rottuholurnar né greip til hinna auðveldu úrræða sinna gegn dýrtíðinni.

Stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar, sem tók við af nýsköpunarstjórninni snemma árs 1947, var tilraun til að koma á betri og farsælli stjórnarháttum en ríkt höfðu í tíð fráfarandi stjórnar, og til að bjarga því, sem bjargað yrði, í atvinnu- og viðskiptamálum þjóðarinnar. Í því efni var við svo mikla erfiðleika að etja, að ekkert var nauðsynlegra, en að fá þjóðina til að horfast í augu við þá staðreynd, að efnahagsmálum hennar væri svo komið, að mikil hætta væri búin, og jafnvel í voða stefnt, ef ekki væri einhuga snúið af þeirri braut, sem þá hafði verið farin um árabil.

Hér skipti fyrst og fremst máli, að stjórnmálaflokkar þeir, sem að þessari stjórn stóðu, ynnu saman að viðreisnarmálunum af fyllsta trúnaði við þau úrlausnarefni, sem fyrir lágu. Það bar strax mikið út af, að slík viðhorf væru til staðar hjá ráðandi mönnum í Sjálfstfl., og skal það játað, að nokkur mannraun hefði það verið að snúa svo strax við blaðinu. Þeir fundu, að með því hefðu þeir játað, á hvaða villigötur þeir höfðu verið búnir að leiða þjóðina, og hversu nýsköpunarstjórnin hefði blekkt hana, og vegna flokkshagsmuna var þeim slíkt ofraun. Þetta kom ljóst fram skömmu eftir valdatöku stjórnar Stefáns Jóh. Stefánssonar. Ólafur Thors lýsti þá yfir í fjálglegri ræðu stuðningi sínum við þessa nýmynduðu stjórn, en tilkynnti jafnframt alþjóð, að allt væri í lagi um hagi hennar, hin nýja ríkisstjórn tæki við öllu í blóma í krafti fjármála- og atvinnumálastefnu nýsköpunarstjórnarinnar. Hann kvað þjóðina vera að ganga inn í óvenjulega glæsilegt tímabil með árlega gjaldeyrisöflun upp undir 800 millj. kr. Því hafði einnig fyrr og síðar verið haldið fram, að hinir marglofuðu nýsköpunartogarar mundu reynast það flotholt, sem öllu mundu bjarga, því að þeir væru þeirrar náttúru, að fátt mætti verða rekstri þeirra að fjárhagslegu grandi vegna tæknilegra yfirburða fram yfir fiskiskip annarra þjóða.

Þá er þess ekki síður að minnast, hver afstaða blaða Sjálfstfl. var í þessum efnum. Morgunblaðið þreyttist aldrei á að birta með stórum fyrirsögnum lofgerðarsöng nýsköpunarmannanna, en þegar sjálfstæðismaðurinn í fjármálaráðherrastólnum tók sig til og talaði varnaðarorð til þjóðarinnar um ástand og horfur, var slíkt að jafnaði birt á lítt áberandi stöðum í blöðum flokks hans. Fyrsta boðorð sjálfstæðismanna virtist vera: dýrð Ólafs Thors og hagsmunir flokksins og síðan þjóðin. Því fór sem fór fyrir stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar um úrlausn aðalvandamálanna. Og Alþfl. á þar einnig sína sök, enda hefur hann nú um langt skeið ástundað pólitík, sem væri sem árekstraminnst við Sjálfstfl.

Um Kommúnistaflokkinn þarf ekki að fjölyrða í þessu sambandi. Hann var í stjórnarandstöðu og vinnubrögð hans slík gegn öllum viðreisnartilraunum, sem hæfði sundrungarstefnu hans og húskarlaskyldu foringjanna við húsbændurna í austri.

Framsfl. reyndi í lengstu lög að þola þetta samstarf við Sjálfstfl. og Alþfl., í þeirri von, að að lokum fengist samstarf um einhverja raunhæfa baráttu við dýrtíðina. Þegar slíkt reyndist vonlaust og samstarfsflokkarnir létu sér vel líka eða jafnvel áttu þátt í að brjóta sitthvað niður, sem áunnizt hafði, þá var þolinmæði Framsfl. þrotin og brottför ráðherra hans úr ríkisstjórninni ákveðin. Og afleiðingar þess voru kosningarnar s.l. haust.

Framsfl. getur eftir atvikum látið sér mjög vel líka úrslit þessara kosninga. Þótt mikið vantaði á, að þau, yrðu á þann veg, sem þjóðinni mátti fyrir beztu verða, þá bentu þau ótvírætt og ákveðið til þess, að hún tekur í vaxandi mæli undir kröfu Framsfl. um heiðarlegt stjórnarfar og raunhæfar tilraunir um aðgerðir gegn dýrtíðinni.

Hvað hefur svo gerzt í stjórnmálunum síðan að liðnum kosningum? Það helzt, að mynduð hefur verið hrein flokksstjórn Sjálfstfl., þess flokks, sem ásamt kommúnistum ber mesta ábyrgð á því, hvernig nú er komið fyrir þjóðinni. Þess flokks, sem að margra dómi ætti að vera úr leik um stjórnarforustu, þar til honum hefur auðnazt að afplána eitthvað af því, sem hann hefur brotið af sér gagnvart þjóðinni. Má vera, að hann vilji nú reyna að bæta úr og telji tíma til kominn, að foringinn sýni hin skjótu úrræði, sem hann eitt sinn lét svo mikið af, að fyrir hendi væru þegar þurfa þætti.

Eitthvað mun þó standa á úrræðunum, því að við valdatöku þessarar hæstv. ríkisstj. tilkynnti forsrh., að fyrst um sinn yrðu farnar „troðnar slóðir“. Ekki bólar á pennastrikinu, en hæstv. ríkisstj. er eitt þankastrik. Jólin og jólafríið er í nálægð, og engar tillögur um úrræði né tekjuöflun í sambandi við þau komnar fram. Og þó þarf bátaflotinn að byrja veiðar strax upp úr áramótunum.

Það er svo svart útlit fram undan, að það þarf því miður meira en svona stjórn til að veita viðunandi viðnám, hvað þá að færa eitthvað til betri vegar, enda mun hún meira til orðin fyrir náð þjóðhöfðingjans, en traust þjóðarinnar.

Ef athugað er ástandið, þá eru staðreyndirnar þessar: Gömlu togurunum hefur fyrir löngu verið lagt vegna þess, að ekki er grundvöllur fyrir að reka þá, og sama vofir nú jafnvel yfir sumum nýsköpunartogurunum. Síldarútvegurinn hefur dregizt saman og þarf skuldaeftirgjafir, sem nema milljónatugum. Bátaútvegurinn þarf síaukna aðstoð. Í ár má búast við, að hún nemi beint og óbeint milli 30 og 40 millj. kr., og að óbreyttum aðstæðum þarf sennilega að bæta við tugum milljóna á næsta ári.

Verzlunarjöfnuðurinn við útlönd mun á þessu ári verða óhagstæður um 80–100 millj. kr., og nú hafa átt sér stað miklar hækkanir á erlendum vörum, og yfir vofir meira eða minna verðfall á útflutningsvörum okkar. Af þessum ástæðum er ekki annað sjáanlegt, en að um stórlega minnkaðan innflutning verði að ræða vegna skorts á gjaldeyri og þar af leiðandi skortur á nauðsynlegum vörum.

Ríkissjóður er sokkinn í skuldir og ábyrgðir og það svo mjög, að árlegar greiðslur vaxta og áfallinna ábyrgða eru ískyggilega farnar að nálgast það, sem árlega er ætlað á fjárlögum til nýbyggingar vega, brúa og hafnarmannvirkja. Og með því að fara „troðnar slóðir“ er ekki annað sjáanlegt, en að enn þurfi stórkostlega að auka álögurnar, ef fjárlög næsta árs eiga að afgreiðast hallalaus. Er þá reiknað með auknum útgjöldum vegna aðstoðar til atvinnuveganna og launauppbót til starfsmanna ríkisins, sem að meðtöldum sennilegum hækkunum á eftir- og ellilaunum getur nálgazt svipaða upphæð og venjuleg fjárlög fyrir stríð. Auk þess verður að óttast verulega rýrnun tollteknanna vegna óhjákvæmilega minnkandi innflutnings. Þetta eru fyrst og fremst syndagjöld verðbólgunnar og stjórnarfars nýsköpunaráranna.

Ástandið er svo ískyggilegt, að mörgum ofbýður, og fjárhagshrun og hvers konar eymd getur dunið yfir, ef ekki tekst giftusamlega til. — Það þarf heiðarleg samtök og ódeiga forustu, sem leitar að varanlegum og farsælum úrræðum til bjargar atvinnuvegunum, sem allt hvílir á. Og jafnhliða þarf að gera réttlátar ráðstafanir á öllum öðrum sviðum, svo að forðast megi óeðlilega lífskjaraskerðingu almennings. Þessa kröfu mun þjóðin nú gera til Alþingis.

Ef til vill stöndum við nú á þeim vegamótum, þar sem úr verður skorið, hvort gæfuleysi okkar er svo mikið, að erfiðleikarnir, sem við er að stríða, verða okkur að fótakefli og fjötur um fót næstu kynslóða. Slíkt væri sjálfskaparvíti, sem þrátt fyrir allt þarf ekki að henda, ef vel er að málunum staðið.