03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í B-deild Alþingistíðinda. (1086)
38. mál, fjárlög 1950
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Það eru nú ekki nema fáein orð, sem ég mun segja á þessu stigi um málið, því að ég mun víkja nánar að fjárl. við 3. umr. — Fyrst vil ég segja, út af ræðu hv. frsm. minni hl. fjvn,, að mér finnst, að hann móti andstöðu sína í þessu máli af mjög veikum mætti og það sé meira af vilja en getu hjá honum að taka þá afstöðu, sem hann hefur gert. Mér skilst, að sérstaða hans sé fólgin í því, að honum finnist málinu ekki nógu langt fram undið með þeim vinnubrögðum, sem höfð hafa verið, og að ekki sé nóg sparað. En þá má spyrja þennan hv. þm.: Hvernig stendur á því, að hv. minni hl. fjvn., sem hefur unnið svo mikið að þessum málum og talað talsvert digurt um þau, getur ekki lagt til sparnaðartill., sem hann þykist hafa innan handar? Það væri ástæða fyrir hann að skila minnihlutatill. Hvað veldur því, að hann getur ekki komið þessu á pappír, sem inni fyrir býr viðkomandi sparnaðartill. eða um frekari till. en þær, sem koma frá hinum hv. nm., sem svona eru, seinlátir eins og hann talar um? Og er það þá ekki seinlæti að dómi hv. minni hl. n., að hann flytur ekki enn till, sínar við fjárlagafrv.? Meðan svona er ástatt í þessu, verður það varla skoðað annað en marklaust hjal af hv. frsm. minni hl. fjvn., er hann talar um seinlæti annarra í þessum efnum. — Þá bollalagði hv. frsm. minni hl. n. fram og aftur um afkomu fjárl., og hann virtist kvíða því, að fjárl. e.t.v. yrðu afgreidd með greiðsluhalla. Þetta rifjar það upp fyrir mönnum, að það er ekki nema örstutt síðan flokksmenn hv. frsm. minni hl. n. völdu mér og þeim, sem stóðu með mér að því að framlengja söluskattinn, hin verstu ókvæðisorð tungunnar fyrir það að framlengja þann skatt ófyrirsynju. Þá þóttust þeir vita, að óþarft væri fyrir hag ríkissjóðs að framlengja skatt þennan. Ríkissjóður mundi hafa nóg fé, og það væri ekki annað, en fólska þeirra manna, sem að þessari framlengingu stóðu, sem hefði verið þess valdandi, að sá skattur var framlengdur. Þá hrópuðu þeir það út á strætum og gatnamótum, að það væri verið að framlengja skatta, eftir að búið væri að afnema útflutningsuppbæturnar. Nú þykist þessi hv. þm., frsm. minni hl. fjvn., vera gætinn og talar um, að ástandið sé þannig, að það sé varhugavert, hvernig ríkisbúskapurinn sé á vegi staddur, og að það geti farið svo, að fjárl. verði ekki afgreidd greiðsluhallalaust. Ég held, að hv. þm. taki ekki mikið mark á þessu hjali. — Annars verða það áreiðanlega ekki margir dagar þangað til hv. fjvn. og ríkisstj. sameiginlega ganga frá till. sínum um áætlun tekna, sem verður fyrir 3. umr., svo að það verður hægt að þreyja þorrann og góuna í því efni. Og meðan hv. frsm. minni hl. fjvn. bíður eftir því, gæti hann t.d. samið þessar brtt. um sparnað, sem hann hafði svo miklar áhyggjur af, að ekki hefðu komið annars staðar frá. — Ég skal svo ekki víkja fleiru að hv. frsm. minni hl. n., því að það er ekki ástæða til að skattyrðast hér um þessi atriði, sem hann drap á.
Ég skal svo aðeins taka fram, að meiningin var að reyna að vinna að þessu þannig að fá helzt allt inn á fjárl., sem þyrfti að borga úr ríkissjóði. Og það hefur verið fyrsta sjónarmiðið að reyna að finna út, hvaða kvaðir raunverulega liggja á ríkissjóði samkv. lögum og með öðru móti, bréfum og öðrum gerningum, sem gerðir hafa verið, og að finna, hvaða afleiðingar gengisbreyt. hefur fyrir ríkissjóð og þær stofnanir, sem ríkið rekur. Í það hefur verið lögð mikil vinna af hv. fjvn. og ríkisstj. að finna út þær afleiðingar, sem gengisbreyt. veldur. Og nokkur atriði í þessu eru ókláruð enn.
Ef við lítum á þær brtt., sem fyrir liggja hér við fjárlagafrv., sem nær allar eru um breyt. til hækkunar á fjárlagafrv., þá sjáum við, að þær skiptast eftir efni í þrennt í meginatriðum. Í fyrsta lagi eru þar leiðréttingartill., þar sem teknar eru inn í frv. lögboðnar og ákvarðaðar greiðslur, sem ekki verður undan ekizt, og því eiga þær að vera samþ. Í öðru lagi er hér um að ræða till. um breyt. á upphæðum fjárl., sem stafa af gengisbreyt. Og í þriðja lagi eru nýjar fjárveitingar. Nú hef ég ekki raðað þessu niður í fjárhæðir til þess að finna út heildarfjárhæð, sem hver þessara flokka brtt. myndi. En þetta mun vera þannig, að tveir fyrst nefndu hóparnir af brtt., sem ég nefndi, sem eru hreinar leiðréttingar á upphæðum frv. og hækkanir vegna gengisbreyt., eru meginhluti þessara brtt. um hækkanir, svo sem hv. frsm. meiri hl. fjvn. gerði grein fyrir. Það er ekki nema örlítið, sem hv. fjvn. hefur tekið upp af nýjum fjárveitingum í sínar till. Það er svo algerlega hverfandi, að það má segja, að þessar brtt. hv. fjvn., sem meiri hl. hv. n. hefur undirbúið í samvinnu við ríkisstj., séu nær eingöngu leiðréttingar á fjárlagafrv., miðaðar við það ástand, sem nú hefur orðið, sumpart vegna fyrri ákvarðana, sem teknar hafa verið, annarra en gengislækkunar, og sumpart vegna gengislækkunarinnar. Og meining ríkisstj. og meiri hl. hv. fjvn. hefur verið sú — þegar menn sjá, hversu tæpt fjárl. standa, þegar búið er að gera þessar leiðréttingar til fulls — að komast hjá því sem allra mest að bæta nokkrum nýjum útgjöldum á fjárl. Og ég leyfi mér, við þetta tækifæri, að færa hv. meiri hl. fjvn. sérstakar þakkir fyrir það, hvernig hann hefur starfað að þessu máli í samvinnu við ríkisstj. Og í þeim tilfellum, þar sem hv. fjvn. hefur fjallað ein um þessi atriði, þá má segja, að hv. meiri hl. n. hafi staðið yfirleitt bjargfast á því að hækka ekki fjárl. frá því, sem löggjöf og aðrir gerningar gerðu alveg óumflýjanlegt, ef þeim yrði ekki beinlínis breytt. — Nú er þess að gæta, að þessu verki er ekki lokið enn. Það er eftir að taka eitthvað af launauppbótum inn á fjárl. Hins vegar hefur ríkisstj. ekki tekið ákvarðanir um það, hvað hún leggur til í því — og það kemur fram við 3. umr. fjárl., því að sú fúlga, sem til þess verður varið að greiða uppbætur á laun, verður að vera sett inn á fjárlögin. Það er ekki hægt að endurtaka það að greiða slíkar fjárfúlgur úr ríkissjóði, án þess að þær séu hafðar á fjárl. Og enn fremur vantar þarna í till. einhverja upphæð, sem greiða verður að líkindum úr ríkissjóði vegna sjóveðskrafna. Og e.t.v. verður ekki komizt hjá því að taka inn á fjárl. einhverjar fjárveitingar vegna mjólkurbúa og vatnsveitna. Og svo er eftir að breyta einhverju á utanríkismálagreininni, eins og líka hv. frsm. meiri hl. n. benti á. — Þetta eru atriði, sem maður veit að ólokið er, en þeim verður lokið mjög bráðlega, því að vafalaust verður stutt á milli 2. og 3. umr. fjárl.
Í sambandi við þetta verður vafalaust gengið frá tekjuöflunaráætlun fjárl. og þá ákvarðað endanlega, hvort fært er að sigla út með þetta mál, án þess að breyta skatta- og tollalöggjöfinni, um leið og ákvarðaðar eru viðbótargreiðslurnar, t.d. launauppbæturnar. Menn geta vel verið með svigurmæli um það, að þetta hefði átt að vera búið að ákveða nú þegar. En ég held, að þeir, sem betur þekkja til, muni ekki taka undir þau svigurmæli, þegar þess er gætt, hve ríkisstj. hefur þurft að taka þýðingarmiklar ákvarðanir í sambandi við að standa að þessum málum, og því sé ekki óeðlilegt, að á þeim tíma, sem liðinn er frá því að stjórnarskiptin urðu og hefur verið hægt að láta þessi mál taka nokkurn skrið, og til þessa tíma hafi ekki tekizt að taka ákvarðanir um öll atriði fjárl.
Ég þykist nú vita, að hv. þm., sem stjórninni fylgja að málum, hafi strax fyrir nokkru, þegar framlengdur var söluskatturinn, gert sér grein fyrir þeim vanda, sem fyrir hendi var, og að sú ráðstöfun hafi verið á þörf byggð, þó að ekki væri ánægjulegt að þurfa að framlengja þau gjöld. Og ég veit, að hv. stuðningsmenn ríkisstj. munu sannfærast um það betur og betur, eftir því sem áfram vindur afgreiðslu fjárl., að þessi skattur var ekki framlengdur ófyrirsynju.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri. En ég endurtek þakklæti mitt til hv. meiri hl, fjvn. fyrir ágæta samvinnu í þessum efnum, og vonast eftir því, að samvinnan verði eins góð, þar til því verki er lokið að afgr. fjárl. frá hæstv. Alþ.