04.05.1950
Sameinað þing: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

38. mál, fjárlög 1950

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég hefði helzt viljað komast hjá því að flytja nokkrar verulegar brtt. til hækkunar við frv. eða í tilefni af því. En mér finnst ég tæplega geta setið hjá út af einu atriði, sem hv. fjvn. hefur, að mínum dómi, ekki tekið réttilega á. Ég á þar við það framlag, sem er á 20. gr. og er ætlað til flugvallargerða og viðgerða á flugvöllum. Þá upphæð hefur n. skorið svo mikið niður frá því, sem í frv. stóð, að ég held, að það geti á engan hátt talizt forsvaranlegt. Og það, að ég hefst hér upp úr eins manns hljóði með svona grófa hækkun frá till. fjvn., er aðallega vegna þess, að ég tók á móti á sínum tíma áætlun flugráðs og ákvað þá að setja inn í frv. þá upphæð, 21/2 millj. kr., sem þar er, en nú er lagt til að verði lækkuð niður í 1 millj. kr. Nú er ekki þann veg að skilja, að fjmrn. hafi á sínum tíma, þegar fjárlfrv. var undirbúið, tekið óathugað við till. flugráðs, heldur þvert á móti, því að þar voru samtals kr. 3.650.000, og skal ég þó ekki segja, að niðurskurður sá, sem átti sér stað í fjmrn., hafi verið að því leyti til réttmætur, að hér hafi verið um óskir frá flugráði að ræða, sem ekki gátu réttlætzt, heldur var niðurskurðurinn vegna þess að fjmrn. í þann tíð treystist ekki til þess að gera að sínum till., að lengra væri gengið í fjárl. en að áætla 21/2 millj. kr. Þessar till. eða kostnaðaráætlun flugráðs, eins og hún var lögð fram á s.l. hausti, nemur, eins og ég tók fram, kr. 3.650.000. Þegar ég tala um flugráð í þessu sambandi, þá á ég við báðar yfirstjórnirnar yfir flugmálunum. Þessi áætlun flugráðs er þannig:

Ný flugstöðvarbygging á Reykjavíkurflugvelli

750000 kr.

Brautarlýsing Reykjavíkurflugvallar, lokagr.

175000 -

Girðing um Reykjavíkurflugvöll.

250000-

Stefnuviti á Suðurnesjum

175000 -

Stefnuviti á Austurlandi

125000 -

Akureyrarflugvöllur ( nýr flugv.)

1000000 -

Egilsstaðflugvöllur ( nýr flugv. )

500000 -

Fagurhólsmýri

100000 -

Vestmannaeyjaflugvöllur.

250000-

Skagafjarðarflugvöllur

100000-

Blönduósflugvöllur, lokagr.

75000 -

Flugvöllur við Hólmavík (endurb.)

50000-

Hornafjörður (endurbætur)

100000 -

Samtals

3650000 kr.

Svona lagði flugráð fram sínar hugmyndir fyrir rn. á sínum tíma, og var mér þá þegar ljóst, að ýmislegt af því, sem þarna var nefnt, hlaut að verða að bíða, þ. á m. ný flugstöð á Reykjavíkurflugvelli, og jafnvel girðing um völlinn, sem samtals nemur 1 millj. kr. En stefnuvitarnir eru ákaflega mikið nauðsynjamál fyrir flugmálin, og eins er ekki hægt með neinni sanngirni að benda á, að annað liggi fyrir, en brýn nauðsyn að því er snertir alla þá flugvelli, sem taldir eru upp, þar sem ýmist er um lokagreiðslur að ræða, eins og t.d. í Vestmannaeyjum, eða þá byrjunargreiðslur eins og t.d. stóð til á Akureyri. Niðurstaðan varð sú, að þessi upphæð var, eins og áður segir, sett kr. 2.500.000, en nú er ætlazt til, að hún fari niður í 1 millj. kr., og það þykir mér svo langt gengið, að ég treysti mér ekki til að gera annað en að leggja til svo mikla hækkun sem greinir á þskj. 633. Ég legg til, að sú upphæð verði 2 millj. kr. í stað 1 millj. kr.

Mér finnst líka, að það skjóti ákaflega mikið skökku við, að því er snertir framlög til annarra samgöngumála, þar sem eru t.d. framlög til veganna, sem fjmrn. á sínum tíma lagði til að yrðu 7 millj. kr., það er engan veginn skert, heldur aukið um 300 þús. kr. að mér skilst. Til samgangna á sjó er nú lagt til að verja miklu meira, en fjárlfrv. gerði ráð fyrir. Þegar þess er gætt, að í hvoru tveggja tilfellinu, til nýrra vega og til viðhalds og til samgangna á sjó, er ætlazt til að verja hærri fjárhæðum, en gert var ráð fyrir í haust, þá verð ég að segja, að misræmið í till. n., að mínum dómi, er allt of mikið þegar tillag til nýrra flugvalla og viðhalds á þeim flugvöllum, sem fyrir eru, er lækkað úr 21/2 millj. niður í 1 millj. kr. Flugsamgöngurnar hafa vaxið hröðum skrefum hér á landi, og þar eru orðnar það mikilvægur þáttur í samgöngukerfi landsins, að á hverju sviði fyrir sig verður hið opinbera. að gera sitt ýtrasta til að þær geti dafnað og þar skapast sem mest öryggi. En slíkt öryggi er því aðeins fyrir hendi, að á þeim stöðum, sem flogið er til, séu skilyrði til löndunar og til uppflugs viðunandi. En það hefur skort mikið á það víða hér á landi, að þessi skilyrði væru fyrir hendi, sem von er, því að þetta er allt í byrjun og erfitt að koma því í lag, svo að gott megi heita, nema á löngum tíma. Þó hefur Alþ. fram að þessu sýnt fullan skilning, að því er mér virðist eftir megni, á þörf flugsamgangnanna, að því leyti sem það snertir að byggja flugvelli og lagfæra þá og halda þeim við. En hér yrði með þessari brtt. fjvn., verði hún samþ., stigið stórkostlegt spor aftur á bak, sem mundi hafa örlagaríkar afleiðingar, ekki einasta fyrir þróun flugsamgangnanna í landinu, heldur gæti slíkt haft óheppilegar eða jafnvel örlagaríkar afleiðingar á sjálft flugið, þannig að vellir, sem ekki er haldið við, geti orðið að tjóni fyrir þá, sem þá þurfa að nota.

Mér þótti það ótrúleg tala, þegar ég fór að spyrja eftir því, hvað margir farþegar væru fluttir hér í íslenzku flugvélunum, þegar ég fékk þær upplýsingar frá réttum aðilum, að á árinu 1949 hefðu um Reykjavíkurflugvöll — í innanlands- og utanlandsflugi — farið og komið 47.681 maður, þ.e.a.s. sumir þessara manna hafa komið mörgum sinnum eða farið mörgum sinnum, en þetta margir menn hafa flogið að eða frá. Þetta sýnir náttúrlega, hversu þessar samgöngur eru geipilega mikið notaðar og samgöngutækin geysilega mikið notuð. Ég gæti trúað því, að svo færi fyrir fleirum en mér, þegar þeir sjá þessar tölur, að þeim þætti þetta nærri því ótrúlega mikið. Svo hefur í seinni tíð þróunin gengið í þá átt, og verður án efa meira í framtíðinni, að flytja vörur með flugvélum. Flutningur er talinn yfir 300 þús. kg á árinu 1949, og póstflutningur er talinn yfir 140 þús. kg á sama tímabili. Ég hef talað hér um meðferð eða afskipti fjvn. af þessum málum og beint gagnrýni að liðum í sambandi við hana. Að vísu er það vitanlegt, að fjvn. fer eftir óskum og vilja ríkisstj. í þessu sem öðrum stórum atriðum, er snerta fjárl., og ég verð að segja, að mér þykir furðulegt, að flugmálaráðh. skuli láta sér þetta lynda, að til þessara hafnarbóta loftfaranna sé ætlað 1 króna á móti hverjum kr. 2.50, sem því þó var ætlað í rn., eftir að búið var að skera niður til stórra muna till. flugráðs. Ég tel enga þörf á því að rökstyðja þetta frekar eða með flein orðum. Ef flugmrh. hefði verið hér viðstaddur, þá hefði ég ef til vill haft þetta mál lengra, en ég vildi vona, að endanleg afgreiðsla á þessum lið yrði ekki þann veg, sem nú liggur fyrir í till., heldur réði meira sanngirni í garð flugsamgangnanna, en þar liggur fyrir. — Ég vildi samt að endingu drepa á eitt atriði varðandi flugsamgöngurnar, sem samkvæmt þeim till., sem hér liggja fyrir, er ákaflega áberandi, og það er hvað snertir flugsamgöngur við mitt eigið kjördæmi. Það er komið svo, að farþegaflutningur til Vestmannaeyja fer mikið fram með flugvélum, svo fremi að þær ekki fari fram með mótorbátum, því að ferðum Ríkisskips hagar þannig, að þær verða til lítils gagns fyrir Vestmannaeyjar, hvað mörg farþegaskip sem Ríkisskip hefur til ferða, og má vísa til þess, að slysavarnadeildin Eykyndill hefur, bæði sérstaklega og eins á nýafstöðnu slysavarnaþingi óskað eftir breytingu á því ófremdarástandi, sem Eyjarnar búa við af hálfu Ríkisskips. Fólkið verður því yfir höfuð að ferðast með flugvélum, nema þegar þoka bannar eða stormur. Nú var flugvöllur byggður þar, og var gengið mjög rösklega að því verki af Erling Ellingsen, sem á sínum tíma hafði upphaflega forgöngu í því. En flugvöllurinn er bara ein braut, ein stefna hér um bil frá austri til vesturs milli fjalla, og kastvindar frá þessum fjöllum geta verið hættulegir, og var því í það ráðizt á s.l. ári og árinu þar áður að sprengja niður fjallsöxl, svokallað Snæfell, til þess að gera aðflugið austan frá hættuminna. Þessu verki miðaði ákaflega vel áfram undir stjórn þeirra manna, sem hafa haft þessar framkvæmdir með höndum. Það er erfitt verk að sprengja niður fjallsöxl, en þeir hafa notað sprengiduflaskot, og þau hafa verið notuð með góðum árangri til þessa verks. Nú er þessu verki svo langt komið, að ef unnið yrði í sumar það, sem stóð til að vinna, sem mundi kosta 250 þús. kr., þá væri að miklu leyti numin burt sú sérstaka hætta, sem flugvélum stafar frá Snæfellinu. Ég vil geta þess, að búið er að afla þessara sprengidufla, sem á að nota í þessu skyni, en mér er sagt, að ef fjárveitingin verður miðuð við það, sem nú liggur fyrir í till. fjvn., þá sé ekki fært að ráðast í neinar framkvæmdir á þessum stað á þessu sumri, og ég tel það mjög illa farið, því að það á að vera til öryggis því fólki, sem annaðhvort kemur eða fer þá leið. Einnig þetta knýr mig til þess að fara fram á breyt. á þessu fjárframlagi, og ég sem sagt mælist til þess við hv. n. og hæstv. ríkisstj., að þessi sérstaka fjárveiting verði tekin til gaumgæfilegrar athugunar, áður en endanlega verður gengið frá fjárlfrv., því að verði það gert, þá efast ég ekki um, að hæstv. ríkisstj. muni vilja gera hér á einhverjar úrbætur, því að það liggja svo sterk rök til þess að hafa þessa fjárhæð eitthvað hærri, en nú er lagt til. En ég er hræddur um, að ekki hafi verið haft neitt samráð við flugráð þegar ákveðið var að leggja til þessa lækkun. Ég vildi því mælast til þess, að samráð væri haft við flugráð og þá menn aðra, sem gleggst finna til þarfarinnar, að því er bætt lendingarskilyrði fyrir flugvélar snertir bæði á einum og öðrum stað á landi hér, og þannig eflt öryggi þessara samgangna, og sé það gert, þá vona ég, að niðurstaðan verði sú, að hæstv. ríkisstj. ákveði að láta hér verða einhverja úrbót á.