04.05.1950
Sameinað þing: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 788 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)

38. mál, fjárlög 1950

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. má vera ánægð yfir viðtökum þeim, sem till. hennar hafa fengið á þ. í sambandi við afgreiðslu fjárl., og þeim andmælum, er farið hefur verið um verk hennar. Hæstv. fjmrh. lýsti því yfir, að n. hefði sýnt samstarfsvilja og fullan skilning á þessum vandamálum, að mæta erfiðleikunum, sem á þessu voru. En þar á eigi aðeins meiri hl. fjvn. hlut að máli, heldur líka stjórnarandstaðan í n. Það hafa ekki orðið neinir erfiðleikar á afgreiðslu fjárl. af hennar hálfu, enda hefur hún ekki borið fram neinar brtt. við fjárlagafrv. Hefur ríkt samstarfsvilji að ná því takmarki, sem n. setti sér. Mér þykir vænt um, hversu margir hv. þm. hafa tekið undir þær ábendingar fjvn. að bætt sé úr þeim ágöllum, er verið hafa á afgreiðslu fjárl. undanfarin ár. Þegar ég hef heyrt raddir forustumanna hér á Alþ., t.d. hæstv. forseta, vænti ég þess, að allir taki saman höndum til að kippa þessu í lag, því að ljóður er það á Alþ., ef slík venja á að festast sem ríkt hefur. Ég minni líka á, að fjárveitinganefndarmönnum hefur eigi verið ljúft að skera niður og fleygja í körfuna ýmsum af þeim erindum, sem henni hafa borizt. Á ég þar einkum og sér í lagi við þau, sem snerta menningarmál þjóðarinnar, t.d. heilbrigðismál, jafnvel fræðslumál, mannúðarmálin öll og allt, sem aflað gæti þjóðinni betri lífskjara og komið henni á hærra menningarstig. Hefðu engir haft eins mikla ánægju af því og nm. sjálfir, ef nægilegt fé hefði verið til að sinna nýjum hugsjónum og nýjum verkefnum, sem að nokkru leyti hafa komið frá nm. sjálfum, að öðru birzt í erindum þeim, sem komið hafa fram. En vegna þess, að eigi er til nægilegt fé, hefur orðið að bregða hnífnum á margt, sem löngun var til að láta lifa. Vænti ég þess, að þessir menn gefist ekki upp, þótt svona hafi farið í þetta skipti, og hamri á dyrnar áfram í þeirri von, að lokið verði upp fyrir þeim að lokum. — Þessu vildi ég svara til, áður en ég kem að einstökum brtt.

Ég vildi þá segja nokkur orð í sambandi við ræðu hv. 6. landsk., því að hann minntist nokkuð á atriði, sem varðar ekki afgreiðslu. fjárl. af hendi fjvn. Benti hann á, hversu augsýnilegt það væri, að gengislækkunin hefði orðið til óþurftar og valdið erfiðleikum, og skildist mér á honum, að hann teldi betra, að það spor hefði aldrei verið stigið. Hann benti líka á það atriði, að fjvn. hefði ekki hugsað um lækkanir, heldur hækkanir. Þetta er misskilningur, og vildi ég leiðrétta það með nokkrum orðum. Hann minntist á þau áhrif, sem gengislækkunin mundi hafa á ríkisreikninginn. Hæstv. fjmrh. benti á, að hann hefði þó aðeins litið á aðra hliðina, því að ríkissjóður fær miklu meira inn en nemur útgjöldunum að krónutölu, auk þess sem útflutningurinn gefur meira í krónutölu en verðhækkuninni nemur, svo fremi að hann minnki ekki við gengislækkunina, og er hæstv. fjmrh. miklu bærari um að dæma um þetta en hv. þm. Hann minntist á hækkanir á kostnaði vegna gengislækkunarinnar við sendiráðin í Washington, Moskva og víðar. En honum mun vera ljóst, að gengisfall íslenzku krónunnar á hér eigi alla sök á. Það var búið að hækka dollaragengið miðað við pund og rúblu við dollar, og mikið af þessum hækkunum stafar frá því og ekki síður, og því er mismunurinn meiri þar en annars staðar. Það er því ekki hægt að taka rök hans fullgild í þessu efni. —Hann minntist líka á fiskmatið, en þetta atriði hefur verið rætt í fjvn. Þegar sameinað var fiskmatið á Íslandi undir eitt embætti, núverandi fiskmatsstjóra, þá var það gert í trausti þess, að af því yrði sparnaður. En hann hefur enginn orðið, nema siður sé. Það stafar ekki af því, að embættin hafi verið sameinuð. Það stafar af því, að embættismaður sá, sem nú er, er ekki nægilega hagsýnn og hygginn. Þetta fer ævinlega eftir því, hver stjórnar málunum. En matið á s.l. ári varð meira, en undanfarin ár. Það hefur orðið að verja meiri vinnu en áður til að meta saltfisk, sem var lítill fyrir, og framleiðslan á freðfiski og harðfiski hefur verið meiri, en undanfarin ár. Þá hefur það líka haft áhrif, að eigi hefur verið unandi við ástandið á framkvæmd matsins. Þess vegna treystir fjvn. sér ekki til að ráðast á þessi útgjöld. Málið er einnig þannig, að framleiðslunni er hætta búin á erlendum markaði. Ég var staddur í Sviss í sumar, og hið fyrsta, sem mér var tjáð af þarlendum mönnum, var, að þangað hefði komið freðfiskur, sem ormar hefðu verið í. En Svisslendingar eru fjallaþjóð og skilja þetta ekki. Við, sem þekkjum þetta á Íslandi, vitum, að t.d. kjöt er ekki óétandi, þótt ormar séu í því. En það er ekki söluhæf vara hjá þeirri þjóð, sem þekkir þetta ekki. Ég veit, að orðið hefur að kosta miklu fé til að gera þessa vöruflokka söluhæfa, því að matið hefur verið lélegt. Þorðum við því ekki að leggja til, að þessir liðir yrðu lækkaðir.

Þá minntist hv. þm. á eitt atriði, sem ég vildi verja tíma til að skýra, því að hann sýnist lítið hafa kynnt sér það, en það er kostnaðurinn við eftirlit á verðlagi og verðlagsmálin. Bar hann þar fram ásakanir á hæstv. ríkisstj. Í fyrsta lagi komu engar till. um lækkun frá hv. þingmönnum í n. Ég gat þess, að málið væri enn óútkljáð í n., því að — hún hafði hugsað sér að ræða það við 3. umr. Ég vil benda á, að skv. þskj. 54 frá síðasta þ. var lagt til, að allur kostnaðurinn við eftirlitið yrði kr. 3.286.500. Það var flokksmaður hans, hv. þm. Hafnf., sem gerði þá þessa till. Fjvn. lagði þá til í till. sínum, að þetta yrði fært niður í 2,1 millj. kr., og var það samþ. á Alþ. En hvað kostaði það? Það kostaði nærri stjórnarrof frá Alþfl. Það stóð nærri, að þáverandi hæstv. viðskmrh. segði af sér. Svo mikið þótti við liggja. Ég held, að þessi hv. þm. hefði átt að ganga í skóla til hæstv. þáverandi viðskmrh., áður en hann tók að ásaka núv. hæstv. ríkisstj. (HV: Kostnaðurinn er kominn í 21/2 millj. kr.) Já, eins og hann var búinn að skipuleggja málin, til að borga því fólki, sem ráðið hafði verið. Hann hafði skipulagt málin, eins og þau eru nú. — Mér finnst ekki óeðlilegt, þótt minnzt væri á veiðimálastjóra. Það mál var rætt í fjvn., og eftir upplýsingum frá búnaðarfélögunum var búið að gera samning um að ráðstafa þessu á þessu ári. Treystum við okkur ekki til að gera till. um þetta, og nú hefur orðið afleiðingin, að það má ekki draga þetta fram yfir áramót. Ég var á móti, að lög yrðu sett um þetta. En ég hélt, að ég hefði ekki verið svo mikill spámaður, en þeir, sem þá höfðu áhuga á þessu og sóttu það fast í sambandi við landbúnaðarmálin, töldu það ágengni á hagsmuni bænda, ef embættið væri ekki stofnað. Ég vildi, að þetta yrði tekið til athugunar, að leggja embættið niður, og ætti að gera till. um það. Embættið er óþarft. (HV: Gagnslaust.) Já, gagnslaust. — Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta að öðru leyti, en vildi láta þetta koma fram.

Þá skal ég ræða einstakar till., sem fram hafa komið, og býst við að verða stuttorður. Það er slæmt, að sumir hv. þm. skuli ekki vera við. Hefði ég t.d. viljað spyrja hv. 2. þm. Reykv., en e.t.v. geta flokksmenn hans flutt það til hans. Mundi hann vilja semja um það, að eini byggingarstyrkurinn, sem veittur sé á þessu ári, yrði til Sigurjóns Ólafssonar? Hann á mesta kröfu til að fá hann á þessu ári. En sá böggull fylgir því skammrifi, að aðrir sækja líka, og aðrir hv. þm. rísa upp og segja, að þessi og þessi eigi eins mikinn rétt á að fá styrk, hann sé eins mikill listamaður o.s.frv. Ég væri til í það að ræða þetta við fjvn., ef hægt væri að tryggja það í þ., að allar aðrar kröfur um byggingarstyrki yrðu teknar aftur. En ég vil eigi ræða það, meðan hópur af till. um byggingarstyrki liggur fyrir, því að þá ætla menn ekki, að Sigurjón Ólafsson sé fremri öðrum. Ég vil benda á, að ég tel, þegar úthlutað er listamannastyrkjum, að þá verði litið meira til myndhöggvara en annarra, sem hafa hærri tekjur, og er eigi ástæða til fyrir fjvn. að styðja sérstaklega einn eða annan, þegar búið er að setja ákvæði um styrki til listamanna. Er varla sæmandi að biðja um einn fram hjá þeirri fjárhæð, sem á að vera heildarfjárhæð yfirleitt. Þetta hafði ég viljað taka fram í sambandi við till. hv. 2. þm. Reykv.

Hv. 4. landsk. þm. minntist á sjúkrahúsið á Akureyri. Okkur er ljóst, að við vildum hafa getað lagt meira fé til þess, einnig til sjúkrahúss á Blönduósi. Það kom beiðni um 800 þús. kr. framlag, en þeir fengu ekki einn eyri. Það er siður en svo, að við viljum hafa á móti sjúklingum á Akureyri sérstaklega, en við álitum þó, að líf þeirra sé eigi dýrmætara en líf Húnvetninga. En meðan eigi er unnt að sinna öllu, þá verður einhvers staðar að draga merkjalínuna. Hv. þm. Ak. reyndi að fá hækkað framlag til Akureyrarspítala. Ég var á móti því og hika ekki við að viðurkenna það, því að aðrir aðilar áttu eins mikinn rétt á að fá þetta og Akureyri, m.a. Blönduós. Það var vel gert á sínum tíma, af hverjum sem það var, að fá sérstakt framlag handa Akureyri, þó að eigi sé nú farið fram á hækkun þess. Ég get ekki fylgt því, að farið sé að hækka það.

Þá minntist hv. þm. á Öxnadalsheiði. Það er rétt, að fjvn. hefur dregið úr því framlagi af m.a. tveim ástæðum: Í fyrsta lagi er n. ljóst, að það er síður en svo, að Akureyri sé slitin úr neinu vegasambandi, hvorki vetur né sumar, þótt eigi sé veitt nema 200 þús. kr. til þess vegar. Öllum er ljóst, að vegamálastjóri og ráðuneytið hafa haft ráð á því að taka árlega án þess að spyrja Alþ. eða fjvn. töluvert stórar fjárhæðir í þetta, svo stórar, að fjvn. hefði aldrei samþykkt þær. Óhjákvæmilegt er, þegar dregið er í slíka vegi af einhverju valdi, að þá verki það á fjvn., og þess vegna olli það n. engum sársauka að skera framlögin niður. Ég benti t.d. á Selvogsveg eða Krýsuvíkurveg o.fl. vegi á landinu. Hve mörg hundruð þúsunda króna hafa farið til þeirra? Ég held, að nefna mætti líka. Lágheiði og Siglufjarðarskarð. Það er sjálfsagt þörf á þessu. En þetta hlýtur að hafa áhrif á skiptingu fjárins hjá fjvn. (HV: Nema fyrir kosningar.) Hvort sem kosningar eru fyrir dyrum eða ekki. Ég held, að þessi möguleiki hverfi ekki heldur allt í einu og menn muni hafa einhver ráð með að bjarga því, sem er mest aðkallandi á Öxnadalsheiði.

Vegna hafnarbótasjóðs og tillagna um hafnir almennt vildi ég segja nokkur orð. Í sambandi við það sé ég, að hv. þm. Vestm. er hér inni, og vildi ég þá segja, að ég hef eigi litið svo á, að ég hafi viljað útiloka hann frá fundum fjvn. Hann hefur rætt við mig aftur og aftur, en haldi hann, að það geti haft áhrif á fjárveitinguna til Vestmannaeyja, þá er honum guðvelkomið að koma á fund til n. kl. 91/2 í fyrramálið, og verður vitamálastjóri viðstaddur. Þó hafa eigi verið erfiðleikar út af því við hv. þm. Vestm., hve fjárhæðin er mikil, heldur við vitamálastjóra. Ég álít ekki, að hann kveði upp neinn Salómonsdóm í þessu máli, en úr því að hann segir, að við höfum ekki tekið tillit til till. hans, mæli ég það, að fjárveitingin til Vestmannaeyja hefði þá orðið miklu lægri. Sannleikurinn er sá, að fjvn. gerði sér ljóst í fyrsta lagi, hvaða hafnir ættu mest ógreitt af framlögum úr ríkissjóði. Fimm hafnir áttu yfir 500 þús. kr. Var ákveðið fyrst, að þær fengju 300 þús. kr. Það var byggt á því, að fullt framlag kæmi úr hafnarbótasjóði skv. l. til hafna, sem inni ættu hjá ríkissjóði. En komizt var að raun um, að ómögulegt var að ná saman endunum. Urðum við því að fórna 100 þús. kr. til að ná þeim saman, þ.e. 20 þús. kr. af hverri höfn. Það má þykja rangt að dreifa fénu svo. En hafa hv. alþm. skilið, hve óskaplega mikill kostur það hefur verið fyrir minni staðina að fá svo miklar lendingarbætur, að smæstu strandferðaskipin gætu komið þar við og landað vörum og olíu, án þess að nota þyrfti báta til þess? Með því að haga skiptingunni þannig til þeirra, að þeir gætu haldið framlögunum árlega, hafa margir staðir getað framkvæmt þær lendingarbætur, að flóabátar þessir kæmust þar að landi. En hinir mörgu staðir hlutu að taka töluvert stóra upphæð af þessari fjárveitingu, og finnst mér því eigi vera hægt að taka mikið með af hinum stærri höfnum, og það er ástæðan fyrir því, að skiptingin var gerð svona. En nú vil ég láta það koma í ljós, að fari svo, að ekki náist samkomulag um að samþ. brtt. fjvn. um fullt framlag í hafnarbótasjóð, þá er nauðsynlegt að hækka framlag til stærri hafna, því að það er engin sanngirni í því, að hafnir, sem eiga mikið fé hjá ríkissjóði, fáí ekki meira en ráð er fyrir gert. En við höfum ekki eingöngu getað farið eftir því við skiptingu framlagsins, hve stórar skuldir ríkissjóðs við viðkomandi hafnir væru. Við reyndum að fara eftir því í fyrsta lagi, hvað mikið hafnirnar áttu inni hjá ríkissjóði, í öðru lagi hvað viðkomandi hafnarstjórn hefði hugsað sér að láta vinna á þessu ári eða hvað búið væri að vinna nú þegar, og í þriðja lagi, hvaða möguleika viðkomandi hafnir hafi til þess að framkvæma það á eigin spýtur. Mér þykir rétt að geta þess í þessu sambandi, að af öllum þeim erindum, sem fjvn. bárust varðandi þetta, þá var ekkert þeirra eins ýtarlegt og erindið frá Vestmannaeyjum, og það var meðal annars af þeirri ástæðu, að ekki var talin ástæða til þess að kalla hv. þm. á fund fjvn., það var kannske eina erindið, þar sem farið var algerlega eftir lögunum og fullkomin rekstraráætlun sýnd, bæði um gjöld og tekjur. En það vantaði víða yfirlit með umsóknunum, svo að erfitt var að sjá, hvort hafnirnar voru reknar eftir lögunum, því að ég vil benda á það, að það er ekki heimilt að fara út fyrir það, sem tekjur hafnarinnar þola. Má sjá það af áætlun Vestmannaeyjahafnar, að þar er gert ráð fyrir því, að hafnarsjóður standi sjálfur undir miklum hluta kostnaðar við framkvæmdirnar og hyggst í því sambandi taka lán að upphæð 200 þús. kr., en gerir ráð fyrir 400 þús. kr. úr ríkissjóði til þess að ná saman endum. Sáum við það af því, hvernig þeir byggðu upp þessa áætlun sina, að það gat ekki orðið neitt stórkostlegt tjón, þó að þeir fengju ekki nema 200 þús. kr. í stað þeirra 400 þús., sem farið er fram á. Þetta var ástæðan fyrir því, að ekki var lagt til, að meira færi til Vestmannaeyjahafnar. Og nefndin mun reyna að standa á móti öllum slíkum till., ef samkomulag verður um það að hækka framlagið til hafnarbótasjóðs, eins og hún leggur til að gert verði. Hins vegar get ég ekki fallizt á till. um skiptingu á þessu frá 4. landsk. Hafnarbótasjóður skiptist skv. ákvæðum laga þar um, svo að það þarf ekki að skipta honum á fjárlögum. Það er heldur ekki ástæða til þess að skipta eingöngu eftir innstæðu hafnarinnar hjá ríkissjóði, heldur er ekki síður að taka tillit til þess, hvaða þýðingu hafnirnar hafa og hvaða verkefni þær leysa af hendi.

Varðandi till. hv. 4. landsk. um hækkun á byggingarstyrk fyrir Reykjalund, þá vil ég taka undir það með hv. þm., að hér er um að ræða mikið nauðsynja- og mannúðarmál, sem þeir aðilar, sem hlut eiga að máli, eiga miklar þakkir skildar fyrir. En ég vil geta þess, að ég ræddi um þetta við hæstv. ríkisstj. og stjórn Reykjalundar, og ég leyfi mér hér með að þakka bæði hæstv. ríkisstj. og fjvn. fyrir þann skilning, sem þær hafa sýnt þessu máli með því að hækka framlagið um 100 þús. kr., og ég get jafnframt fullvissað hv. þm. um það, að stjórn Reykjalundar skilur aðstæður ríkissjóðs vel og er ekki óánægð með þessi úrslit. En ég treysti mér ekki til þess að bera fram till. um frekari hækkun í fjvn., þótt fullur skilningur sé á því þrekvirki, sem þar í Reykjalundi er unnið.

Um till. um framlagið til byggingar hjúkrunarkvennaskóla vil ég aðeins geta þess, að það liggur alveg undir landlækni og stjórn landsspítalans að kveða á um þá skiptingu. Fjvn. hefur aldrei skipt því fé, sem í slíku augnamiði er veitt, og það er engin ástæða til þess að taka það upp núna, og mun ég því ekki styðja þessa till.

Ég þarf ekki að svara hv. þm. vegna till. hans um hækkun til byggingar fjórðungssjúkrahúss núna, og hef ég gert það í sambandi við annað mál.

Út af till. hv. þm. Vestm. um hækkun til flugmálanna, held ég, að ég hafi áður tekið það fram, að ríkisstj. hafi borið fram till. um það. En síðan hef ég fengið um það upplýsingar frá hæstv. fjmrh., að fjárhæð sú, sem upphaflega var tekin inn á 20. gr., sé meiri en sú upphæð, sem fjárhagsráð hefur veitt fjárfestingarleyfi fyrir. Það er því nauðsynlegt að fá um þetta alveg skýrar upplýsingar, því að ef þetta er tekið inn bara til þess að vera síðar stoppað af annarri stofnun, fjárhagsráði, þá sé ég ekki neina þörf á því að vera að taka þessa breytingu inn á fjárlögin. En ef það er ekki meiningin að nota petta fé til bygginga eða annars í sambandi við flugveili, til dæmis til þess að koma upp stefnuvitum eða öðru, sem stuðlar að auknu öryggi í flugi, þá finnst mér það eðlilegt og tel þörf á því, að samkomulag náist um það milli hv. flm. og ríkisstj. og till. verði tekin aftur til 3. umr. Mér er ljúft að lýsa því yfir, að ég persónulega er sammála hv. flm. og vil taka undir það með honum, að það er nauðsynlegt fyrir flugið, að nægilegt fé sé fyrir hendi til þess að tryggja, að það verði rekið með fullkomnu öryggi, að svo miklu leyti sem það er hægt. Það væri því gott, ef hv. flm. vildi taka þessa till. aftur til 3. umr., og skal ég þá athuga það gaumgæfilega milli umr.

Hv. 5. þm. Reykv. er nú ekki við, en hv. 2. þm. S-M. situr hér og getur ef til vill flutt honum það, sem ég hef að segja um hans till. Hann flytur hér till. um að hækka íþróttasjóðinn og minntist eitthvað á það, að hann hefði skýrslur, sem fjvn. hefði haft, sem sýna að sjóðurinn þyrfti 1700 þús. kr. til þess, er framkvæma þyrfti. Já, ég verð nú að segja það, að ef málið væri nú svo einfalt og fjvn. þyrfti ekki að gera annað en að líta í skýrslur, sem henni eru sendar, til þess að sjá, hvað mikið hver og einn þyrfti, þá væri nú ekki mikill vandi að vera í fjvn. eða í sæti fjmrh. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að við höfum fengið skýrslur frá fræðslumálastjóra, sem sýna, að það vantar jafnvel milljónatugi, til þess að hægt sé að framkvæma skólalöggjöfina, sem verið hefur að breyta undanfarið. Ef það þyrfti ekki annað en skýrslur og línurit, þá væri harla auðvelt að stjórna, en það þarf annað og meira til. Ég vildi því spyrja hv. þm., hvort hann sæi ekki ástæðu til þess að taka till. sína aftur, og ef hann gerir það ekki, þá að hann svari mér, hvaða liði fjárl. hann vill láta lækka, til þess að hægt sé að hækka þennan lið. Vill hann láta taka það frá húsmæðraskólunum, eða vill hann láta taka það frá barnaskólunum, eða gagnfræðaskólunum? Vill hann kannske láta taka þetta frá hafnargerðum eða vegagerðum, eða vill hann láta taka þetta frá sjúkrahúsunum? Á kannske að taka þetta frá heilbrigðisstofnuninni í Reykjavík? Það er enginn vandi að setja inn svona till., ef ekkert annað er gert, en nú er það bara svo, að það er enginn vegur að setja inn svona till., án þess að benda þá um leið á einhverja liði, sem verða að lækka. Sannleikurinn er sá, að hér verður annað að víkja, og ef annað á að víkja, sjúkrahús eða leikvellir, þá vil ég láta leikvellina víkja, jafnvel þó að þeir kunni að bæta menn eitthvað og gera menn hraustari, svo að menn þurfi síður að fara á sjúkrahús. Hv. þm. spurði, hvort við hefðum athugað það nægilega, að yfirvofandi hætta væri vegna efnisskorts, og hvort þá væri ekki ástæða til þess að ráðast einmitt í þær framkvæmdir, sem minnst þyrfti til af erlendum gjaldeyri. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að í sambandi við sjúkrahús og skóla skuldar ríkissjóður þessum stofnunum miklu meira fé en veitt er til þeirra á þessum fjárlögum, svo þó að ekkert efni væri til og ekkert byggt, þá væri það fé ekki nú til að greiða þær skuldir. En ég vil líka benda hv. þm. á það, að því meira vinnuafl sem við tökum frá framleiðslunni eða framkvæmdum, sem miða að framleiðslunni, því minni verður útflutningurinn, og ef við tökum alla menn frá vinnu og setjum þá í aðra vinnu, sem ekki er í beinu sambandi við framleiðsluna, þá verður ekkert fé til þess að greiða með. Fjvn. var því alveg á því hreina með þetta og hafði fulla ástæðu til þess að gera eins og hún gerði, og var það ekki alveg sársaukalaust fyrir suma nm., þó að það eigi ekki við um mig, því að ég áleit það miklu meira virði að leggja þetta fé til annarra framkvæmda.

Hv. þm. minntist líka eitthvað á það, hvaða samræmi væri í því að kosta upp á utanlandsferðir íþróttamanna, ef ekki væri kostað neinu til þess að skapa þeim skilyrði til þess að þjálfa síg. Ég er honum líka sammála um þetta atriði og tel, að það ætti að veita allt það framlag, sem verja á til íþrótta, til íþróttasjóðs, og láta hann þá ráða því, hvernig þessu er skipt, en ekki að því sé skipt af fjvn. Hv. þm. ætti heldur að bera fram till. um það. Þetta er ekki sagt af neinni andúð við íþróttirnar, nema síður sé. Ég vildi aðeins sýna honum fram á, að það á ekki að nota svona rök.

Hv. 2. landsk. þm. minntist hér á námsstyrki. Þetta mál hefur verið rætt í fjvn., og hún hefur rætt um það við ríkisstj., og sé ég mér ekki fært að lofa honum neinni hækkun á þeim fyrir tilstilli fjvn., en hann getur náttúrlega, ef hann vill, tekið till. aftur til 3. umr.

Í sambandi við till. hans um listamannastyrkina vil ég benda á það, að nú eru kjör listamanna orðin allt önnur, en áður var og listamenn nú yfirleitt vel launaðir. Það var t.d. hjá mér í dag einn mesti listamaður þjóðarinnar, og hann lét það í ljós og viðurkenndi það, að nú vildi eiginlega enginn listamaður vinna nema fyrir fullum launum, á hvaða sviði sem er. Við höfðum hljómlistarmenn áður, þeir iðkuðu list sína og fengu engin laun, en þeir höfðu áhuga á list sinni. Nú höfum við hljómsveitir og lúðrasveitir, sem hafa áhuga á laununum, en ekkert meiri áhuga á listinni, en áður. Sama er um leikendur við þjóðleikhúsið, ég tel, að þeir hafi meiri áhuga á að halda launum sínum, en efla listina. Þetta er orðið nokkurs konar stéttarfélag eða stéttarfélög, og sumir af þessum mönnum eru hæst launuðu menn í landinu.

Ég get hlaupið yfir Hafnarfjarðarhöfnina núna, enda hef ég rætt um hafnarmálin á öðrum stað.

Um framlag til framkvæmda í Hellisgerði lá ekkert erindi fyrir nefndinni, og get ég því ekki sagt um það, hvernig því verður tekið af henni.

Hv. 1. þm. Eyf. minntist hér á tvö mál. Það var í fyrsta lagi skipting fjár til verklegra framkvæmda til héraða, og fullyrti hv. þm. í því sambandi, að þær sveitir eða héruð, sem fulltrúa ættu í fjvn., fengju alltaf mest fjárframlag til verklegra framkvæmda. (BSt: Ég sagði, að það væri skrýtið fyrirbrigði, eða einkennileg tilviljun. — Forseti: Ég vil leyfa mér að spyrja hv. þm. Barð., hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni, þar sem liðið er nokkuð á matartíma.) Já, ég á þó nokkuð eftir, en get hins vegar vel fallizt á að fresta máli mínu núna. — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Ég var hér áðan að minnast á aths. frá hv. 1. þm. Eyf. í sambandi við skiptingu á vegafé. Honum fannst sitt kjördæmi vera afskipt í sambandi við úthlutun vegafjár á þessu ári, og taldi, að ekki hefði verið ástæða til að skammta því svo smátt, m.a. vegna þess, að héraðið væri fjölmennt og það þyrfti að flytja mjólk daglega svo að segja frá hverju heimili þar. — Nú vildi ég biðja þennan hv. þm. að athuga þær aðstæður, sem eru einnig í öðrum héruðum í þessu sambandi. Ég geri ráð fyrir, að þegar hann minntist á, að skiptingin á þessu fé færi nokkuð eftir því, hverjir væru í fjvn., þá sé því skeyti ekki hvað sízt beint að mér, þar sem Barðastrandarsýsla hefur verið nú, bæði á fjárlagafrv. í ár og á fjárl. í fyrra og á nokkrum undanförnum árum með hæstu sýslum á landinu í úthlutun vegafjár. En nú vildi ég biðja þennan hv. þm. og aðra að bera saman vegakerfið í Barðastrandarsýslu annars vegar og vegakerfið í Eyjafjarðarsýslu hins vegar, og svo fjárframlögin, sem veitt hafa verið til þessara héraða til vega- og brúargerða á undanförnum árum. Hv. 1. þm. Eyf. á þá sök, sem ég á ekki, að hafa í mörg undanfarin ár setið hér á Alþ. og verið þess valdandi að Barðastrandarsýsla, ásamt vesturkjálkanum yfirleitt, hefur orðið afskipt í úthlutun vegafjár, meðan Eyjafjarðarsýsla hefur haft tækifæri til þess að byggja upp sína vegi og brýr. Hv. þm. sagði, að hann hefði heyrt, að n. hefði miðað við í sambandi við úthlutun vegafjárins, hvað ólagt væri af þjóðvegum á landinu. Þetta er ekki rétt. Fjvn. hefur ekki haft það til hliðsjónar, þegar hún skipti vegafénu. Hins vegar skýrði vegamálastjóri fjvn. frá því, að hann hefði gert áætlun yfir kostnað við að fullgera vegi í öllum sýslum landsins, þ.e.a.s. þá vegi, sem teknir væru þegar inn í þjóðvegatölu. Og þá kom upp, eftir þeim útreikningi, að Barðastrandarsýsla mundi þurfa langmest fjárframlag, eða 71/2 millj. kr. Hins vegar gerði ég fyrirspurn um Barðastrandarsýslu, af því að ég vissi um, að það lá fyrir áætlun um, að þetta mundi kosta yfir 10 millj. kr. Þá upplýsti vegamálastjóri, að þetta væri ekki nema 71/2 millj. kr. eða um það. En þá var ekki í þeirri áætlun hugsað að tengja saman Austur- og Vestur-Barðastrandarsýslu með neinum vegi. Hvað mundi hv. þm. Eyf. segja, ef slíkri meðferð væri beitt ár eftir ár við hans kjördæmi? — Sannleikurinn er sá, að engin sýsla á landinu hefur verið beitt slíku ranglæti í þessu efni eins og Barðastrandarsýsla. Tvö stærstu þorp sýslunnar eru ekki tengd saman með vegi. Annað þeirra, sem er stærsta þorpið þar, Patreksfjörður, þar sem búa um 900 manns, getur engan dropa af mjólk flutt til sín, nema annaðhvort á hestum eða þá á trillubátum. Þessu þorpi hefur bókstaflega verið haldið í mjólkurhungri í mörg undanfarin ár — m.a. fyrir atbeina hv. 1. þm. Eyf., þar sem hann með sínu atkv. hefur tekið meira til vega í sínu kjördæmi en bar, ef réttlæti hefði átt að ríkja í þessum málum. — Nú var upplýst hér fyrir nokkru af mér, að það væru þrjár ástæður fyrir því, að Barðastrandarsýsla ætti að fá miklu hærra vegafé, en hún hefur fengið. Í fyrsta lagi af því, að sú sýsla væri langhæsta sýslan sem sveitakjördæmi, þegar um er að ræða gjöld í ríkissjóðinn. Í öðru lagi af því, að hún væri hæsta sýslan, þegar litið er á útflutninginn. Og í þriðja lagi er hún ein af þeim sýslum, sem var orðin uppeldisstöð fyrir ósýkt fé, til þess að bændur — m.a. í Eyjafirði — gætu skorið niður sinn fjárstofn á kostnað ríkisins og á kostnað eða með aðstoð Barðstrendinga, til þess að geta haldið uppi sínum búskap, — á sama tíma sem séð hefur verið ofsjónum yfir því, að Barðastrandarsýsla fái eitthvert brot af því, sem Eyjafjarðarsýsla hefur fyrir löngu fengið í sambandi við vegasamgöngur. Mér er ekki kunnugt um, að það sé í mörgum sýslum á landinu, sem svo hagar til eins og í Eyjafirði, að þjóðvegur liggur fram dalinn annars vegar og niður dalinn hinum megin við ána. Og það liggja a.m.k. tvær brýr yfir þessa á, til þess að tengja þessa þjóðvegi saman. Hvað mættu hinir segja, sem hafa engan veg inn í sýsluna og engan vegarspotta til þess að tengja byggðir sínar við aðalvegi landsins? — Ég veit ekki annað, en að fullur skilningur hafi verið hjá fjvn. á undanförnum árum á vegaþörf viðkomandi manna, þegar verið var að fullkomna það stóra verk að koma Siglufirði í samband við vegakerfi landsins. Siglufjörður er að vísu nú orðinn annað kjördæmi en Eyjafjarðarsýsla, þó að hann væri sama kjördæmi áður. Og ég veit ekki betur en að full sanngirni hafi verið sýnd í framlögum til vegaframkvæmda, þegar Ólafsfjörður var settur í samband við vegakerfi landsins. Og ég veit ekki betur, en að sama sanngirni hafi verið sýnd í sambandi við vegarlagningu yfir Öxnadalsheiði. Og þegar búið er að gera öll þessi verk, er þá nokkuð að undra, þó að dregið sé úr framlagi til þessa kjördæmis í þessu efni, þegar búið er að gera fyrir það allt það í þessu efni, sem gert hefur verið, eins og ég hef tekið fram?

Hv. 6. landsk. þm. gagnrýndi nokkuð skiptingu á vegafé til Norður-Ísafjarðarsýslu. En það þurfti að ljúka verki í sambandi við að koma Bolungavík í samband við Ísafjörð og að koma Súðavík í samband við Ísafjörð. Fjvn. skildi þessa þörf Norður-Ísfirðinga, sem hv. þm. talaði um, og gerði það, sem hægt var til þess að gera þetta. Og hann hefur sætt sig við það í fjvn. nú að fá ekki meira fé til þessa en í fyrra, þó að þarna séu fleiri verk óunnin en í Eyjafjarðarsýslu í sambandi við vegakerfið. Og sannleikurinn er sá, að það, sem valdið hefur þessum miklu erfiðleikum í skiptingu vegafjár er, að þróunin hefur orðið sú í mörg ár, að þau héruð, sem fengu fyrst vegasambönd, tóku stórkostlegan skerf áframhaldandi af vegafénu, vegna þess að þau hafa heimtað, að endurbyggðir yrðu vegirnir hjá þeim og endurbyggðar brýrnar, vegna stækkandi ökutækja á vegunum. Og fyrir þetta hafa svo önnur héruð verið vanrækt viðkomandi vegalagningum þar um mörg undanfarin ár. Og þetta eru þeir erfiðleikar, sem við eigum nú við að glíma í sambandi við skiptingu vegafjárins. Það liggur m.a. fyrir beiðni um 270 þús. kr. framlag til þess að endurbyggja brúna á Haffjarðará, sem er orðin of veik og of mjó fyrir umferðina, eins og kröfur eru nú orðið gerðar um stærð ökutækjanna. Gamla Þjórsárbrúin gat vel dugað fyrir tveggja eða þriggja tonna bíla, en ekki fyrir 10 tonna bíla. En Norður-Ísafjarðarsýsla getur ekki einu sinni komið eins tonns bíl eða jeppa yfir sína vegi, af þeirri ástæðu, að vegirnir eru ekki til. Og ef sanngirni ætti að ráða, þá ætti þessi sýsla ásamt Barðastrandarsýslu að fá eina eða tvær millj. kr. hvor á ári, þangað til þær eru komnar í vegakerfi sambærilegt við það, sem er í öðrum sýslum landsins.

Úr Rangárvallasýslu sitja tveir hv. þm. í fjvn., sem ég, að gefnu tilefni, lýsi hér með yfir, að ég hef aldrei orðið var við, að hafi notað aðstöðu sína til þess að fá meiri skerf til sins héraðs til vega eða brúa en aðrir, sem hér eiga sæti á Alþ. En mér finnst ekki ósanngjarnt, þó að þeir hv. þm. hefðu gert kröfu um það, að sérstök fjárveiting færi í Suðurlandsveginn, sem liggur gegnum þeirra kjördæmi, svo að hægt væri að fara hann vetur og sumar. Menn, sem þar búa, eiga allt undir því, að hægt sé að halda uppi mjólkurframleiðslu. Og það er sanngjarnt að leggja fé í vegi í þessari sýslu, ekki síður en í Öxnadalsheiðarveg og Holtavörðuheiðarveg. Og vegalagningar í Rangárvallasýslu eru ekki aðeins fyrir það hérað, heldur og fyrir héruðin fyrir austan sýsluna. En hv. þm. Rang. hafa orðið að sætta sig við það, sem reiknað hefur verið í þeirra hlut af fjvn. í heild. Nákvæmlega það sama er að segja um Dalasýslu. Mikið af veginum, sem liggur um Svínadalinn, er sannarlega ekki siður lagður fyrir Ísafjarðarsýslu og Austur-Barðastrandarsýslu, heldur en Dalasýslu. En sá hlutur, sem fara á til þessa vegar, er reiknaður með í úthlutun fyrir Dalasýslu. Og ef talað væri um Eyjafjarðarsýslu hliðstætt því og reiknað væri á sama hátt fé til vega í sambandi við þá sýslu. þá ætti að reikna allt það fé, sem farið hefur til Öxnadalsheiðarvegar, Eyjafjarðarsýslu megin. Og skánar þá hagur Eyjafjarðarsýslu, ef reiknað er með þeim tölum. Þetta segi ég vegna þeirrar gagnrýni, sem komið hefur fram út af skiptingu vegafjárins, sem var ástæðulaus af hendi þessa hv. þm., 1. þm. Eyf. Þessi sami hv. þm. benti á skiptingu á fé til ræktunarvega. Þetta fé var ákveðið í fjárlagafrv. 30 þús. kr. og óskipt þar. En því var skipt í n. nákvæmlega á sama hátt eins og því hafði verið skipt ég held síðustu tvö ár. Ég veit, að það er enginn Salómonsdómur, sem felldur hefur verið um þetta atriði. En ég fullyrði, að það er engin sanngirni að halda því fram, að Hrísey þurfi endilega að fá sömu upphæð af þessu fé eins og Flatey á Breiðafirði, af því að í Hrísey séu fleiri búandi menn. Ég veit ekki, hvort Hríseyingar vildu, fyrir 10 eða 12 þús. kr. í ræktunarveg, taka á sig allar byrðar, sem þessir fáu og fátæku menn, íbúar Flateyjar, hafa gert á undanförnum árum. Þeir hafa fórnað stærstu fórnum, sem fórnað hefur verið í nokkrum hreppi á undanförnum árum. Og ef Hríseyingar vildu fórna einhverju, þá er það miklu minni fórn að taka á sig mismuninn á milli þess, sem úthlutað er í vegafénu til ræktunarveganna á þessum stöðum. — Hins vegar er þetta fé til ræktunarvega þannig komið til, — það hefur eiginlega ekki verið veitt nema í Vestmannaeyjar — að Vestmannaeyingar hafa aldrei neitt samband við akvegakerfi landsins, og því hefur þótt rétt að láta smáupphæðir til þessara manna, til þess að þeir fengju þó eitthvað í vegafé eins og aðrir landsmenn. — Ég skal viðurkenna, að það kom óskalisti frá hv. 1. þm. Eyf. í sambandi við þetta fé upp á 12 þús. kr. En fjvn. sá sér ekki fært að hækka þetta framlag nú, nema því aðeins að hækkað væri framlagið í heild til ræktunarvega. Og að skiptingu þess fjár var reynt að vinna samkv. ósk þess hæstv. fjmrh., sem hv. 1. þm. Eyf. styður eins vel og ég eða miklu betur. Og þess vegna var þessi upphæð, sem hv. 1. þm. Eyf. gat um, ekki hækkuð. Hins vegar sagðist þessi hv. þm. hafa reynt að ná tali af þeim mönnum í fjvn., sem hann ætti beztan aðgang að, til þess að fá þetta mál leiðrétt, eins og hann orðaði það. Ég vil segja þessum hv. þm. það, að hann á beztan aðgang að mér af mönnum í fjvn., meðan ég er form. þar, því að ekki aðeins hann og allir aðrir hv. þm. hafa átt fullan aðgang að mér sem fjvn.-manni, heldur á hver einasti þegn þjóðfélagsins aðgang að mér í fjvn., hvort sem hann er lágt eða hátt settur. Ég hef notað mína matmálstíma í vetur til þess að tala við menn, sem óskað hafa að tala við mig sem fjvn.-mann. Ég hef að vísu rekið suma út, sem mér hefur fundizt vera með óþarfa mælgi hjá n. (BSt: Það er ekki gaman að því að heimsækja nefndina. ef maður verður rekinn strax út.) En mér hefði aldrei komið til hugar að reka hv. 1. þm. Eyf. út. En hv. 1. þm. Eyf. á sannarlega ekki betri aðgang að neinum öðrum en mér í fjvn., og mér er ljúft að ræða við hann um hvaða mál sem er og hvenær sem er. Þess vegna hefði hann getað fengið fullt svar frá mér um ræktunarvegaféð, ef hann hefði snúið sér til mín með það mál. — Út af þeirri till, hv. þm., sem hann hefur borið hér fram í sambandi við Þorfinn Kristjánsson, skal ég upplýsa, að þetta erindi var fyrir fjvn., og okkur fjvn.- mönnum var líka fullljóst, að ekki einn einasti eyrir af þessu fé mundi fara til Þorfinns. Og það var ekki fyrir vanmat á þessum störfum, sem þarna var um að ræða, að þetta var ekki samþ. í n. Það er því ekki ástæða fyrir þennan hv. þm. að lesa erindið hér fyrir okkur eða senda okkur það, því að það hefur verið lesið og rætt í n. Hér er um nýtt fjárframlag að ræða. Og þó að það sé ekki stórt, sem farið er fram á þar, þá mundi það marka nýja stefnu, ef farið væri að þessari ósk. Og að gera það er ekki hægt, nema með því að hafa opin augu fyrir því, að ef óskir koma um hliðstæðar greiðslur við þetta frá öðrum, um að koma Íslendingum heim frá öðrum löndum, svo sem Noregi, Svíþjóð, Englandi, Færeyjum, þá væri ekki vel hægt að standa á móti slíkum beiðnum, ef farið væri inn á þessa braut. Ég vil því beina því til hv. þm., hvort það sé ekki mögulegt að fá slíkt sem þetta greitt af sáttmálasjóði. Er hann ekki myndaður af fé, sem samið var um, að væri að hálfu eign Íslendinga og að hálfu eign Dana? Hann er kannske notaður til menningarstarfsemi. En ég teldi ekki óeðlilegt, að sá sjóður stæði að einhverju leyti undir þessari starfsemi. En ég vil taka það fram, að þó að fjvn. hafi ekki samþ., að þetta fé færi til Þorfinns, þá er það ekki af því, að hún hafi á nokkurn hátt vanmetið hans starf eða hafi nokkra andúð á málinu sjálfu, heldur vildi n. ekki skapa það fordæmi, sem skapað væri með því að taka þetta hér upp.

Út af brtt. frá hv. þm. Mýr. í sambandi við Hallgrím Helgason, þá lá erindi þetta, sem fram kom í sambandi við hann, fyrir fjvn. Það er ekki rétt hjá hv. þm., að hann hafi verið mörg undanfarin ár á fjárl. á þennan hátt, sem hér er gert ráð fyrir. Hann var í nokkuð mörg ár á fjárl. í sambandi við allt önnur störf, þ.e. að kenna hljómlist við barnaskóla. Og framlagið var bundið við það. En þegar við fengum skýrslu frá fræðslumálastjóra um, að hann óskaði eftir, að sá kaleikur væri tekinn frá honum að hafa slíkan mann til að líta eftir þeim málum eins og Hallgrímur Helgason væri, þá þótti ekki ástæða til að taka hann til þess, ekki af því að hann væri ekki hæfur til þess, heldur af því frekar, að hann væri of hæfur til þess, af því að hann gæti ekki lagt sig niður við að kenna þessi mál, af því að hugur hans stefndi til annars hærra og meira starfs. Nú segi ég ekkert um Hallgrím Helgason annað en það, að honum hafi fundizt þetta of lítið starf fyrir sig, því að hann hafi ekki þar notið sinna hæfileika. Og þá var hann tekinn inn á fjárl. og styrktur til þess að safna þessum fræðum, sem hann hefur verið að safna. Fjvn. hefur lesið öll þessi vottorð, sem snerta þennan mann og borizt hafa, en hefur ekki fallizt á að taka þetta inn á fjárlög, m.a. vegna þess, að við álítum, að þegar búið er að taka til ákveðna upphæð á fjárl., sem skipta eigi á milli listamanna, þá eigi ekki að vera að stinga inn hingað og þangað einum og einum listamanni á fjárl. utan við heildarframlagið til þessara manna. (GÞG: Fjvn. leggur slíkt til. Hvers vegna leggur fjvn. þetta til á brtt. 611,49?). Ég skal segja hv. þm. það, að þetta eru námsstyrkir. Getur ekki hv. prófessorinn séð, að þetta eru ekki listamannastyrkir? Og það er sannarlega eðlilegt, að þetta hafi verið veitt á undanförnum árum, og það er þess vegna, sem þessir menn byggja á að fá þetta áfram. Og það er ekki ástæða fyrir neinn hv. þm. að blanda þessu saman við listamannastyrki. Þarna eru teknir upp námsstyrkir manna, sem eru sumir myndhöggvarar og einn stundar málfræðinám. Hins vegar væri rétt að taka alla námsstyrki í einu lagi og vera ekki með suma af þeim hér. En þetta eru gamlir námsstyrkir eða framhaldsnámsstyrkir til þeirra, sem áður hafa fengið slíka styrki, og ekki neinum nýjum bætt þarna við. En það gegnir allt öðru máli með Hallgrím Helgason, en þetta námsfólk, sem um er að ræða í 49. brtt. fjvn. á þskj. 611. Og myndhöggvarar eru vel að því komnir að fá styrki, miðað við aðra listamenn, því að það er búið að bæta miklu betur hlut annarra listamanna, heldur en þeirra, svo sem rithöfunda og tónlistarmanna, með því að Ísland hefur gengið í Bernarsambandið og með því að greiða þeim svo og svo mikið fyrir hvert verk, sem flutt er í útvarpi eftir þá, svo að þessir menn þurfa ekkert að kvarta, móts við það, sem áður var, nema síður sé. Og ég vil gjarnan spyrja í sambandi við Jóhann Tryggvason. Það var erindi hér fyrir Alþ. um að styrkja hann. Hvað fékk hann? Hann hefur barizt áfram á sinni menntabraut, án þess að fá nokkurn tíma styrk til þess. Að vísu hefur hann fengið nokkurn styrk til þess að halda dóttur sinni við nám. Og að vísu hefur hún fengið styrk nú, en minni heldur en hún hefur fengið áður. En fjvn. sá sér ekki fært að taka upp styrk til Jóhanns, og álít ég þó, að hann ætti ekki síður að teljast þurfandi og verðugur fyrir slíkan styrk heldur en Hallgrímur Helgason — án þess að ég geri á nokkurn hátt lítið úr þeim manni.

Hv. þm. Ísaf. minntist á, að hann hefði orðið afskiptur við úthlutun á fé til hafnarmála á Ísafirði. Ég hef nokkuð lýst því áður, en vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að Ísafjörður átti þó ekki inni hjá ríkissjóði nema 47 þús. kr. Ég tel, að það sé ekki verið að beita ranglæti, þó að sé lagt til, að hann fái ekki meira en gert er ráð fyrir í till. eða meira en t.d. Skagaströnd, sem á inni á sjötta hundrað þúsund og Þorlákshöfn, sem á inni nærri því 700 þúsund, auk þess sem á Ísafirði er gömul höfn, gerð af náttúrunnar hendi. Og þó að þörf sé að gera þetta mannvirki, þá á það þó að fara eftir þeim reglum, sem ég hef minnzt á. Og einnig á að gera þetta fyrir þær tekjur, sem höfnin hefur á hverjum tíma, eða taka lán, eins og heimilað er í l. Ég álít síður en svo mesta þörf að hækka þennan stað. Ég skal ekki segja um þær framkvæmdir, sem hann segir, að liggi undir skemmdum, en ef það er, þá er það ekki fjvn. sök, heldur er það skipulaginu að kenna, að vinna verkið þannig, að til skemmda þyrfti að koma, því að það eru sannarlega erfiðari náttúruöflin annars staðar, en á Ísafirði, sem er einhver bezta höfn landsins að undantekinni Akureyri.

Ég þarf ekki að svara hv. 10. landsk. Ég hef gert það í sambandi við það, sem ég sagði um Vestmannaeyjahöfn áður, og skal ég því hlaupa yfir það.

Þá vil ég segja nokkur orð við hv. 8. þm. Reykv. út af Kvenréttindafélagi Íslands. Hv. þm. bar fram tvær ástæður ferðakostnað innanlands og landkynningu utanlands. Í sambandi við fyrri ástæðuna vil ég benda hv. fim. á, að ég hef margrætt þetta atriði við formann Kvenréttindafélags Íslands, að heppilegra væri að sameina þetta starfi Kvenfélagasambands Íslands, sem hefur fulltrúa úti um allt land. Ég sé ekki, hvers vegna það getur ekki farið saman. Ég skil ekki, hvað það er betra, að hvor aðilinn fyrir sig sendi fulltrúa út um land, kannske til að deila þar um mál. En ég veit, hvers vegna þetta er ekki gert. Það er af því, að þá er ekki hægt að hafa tvo formenn. Það er meginástæðan til þess, að ekki tekst að sameina félagsskapinn. Ég tel Kvenfélagasambandið vera svo merkilegan félagsskap, að það beri að styrkja þá starfsemi um allt land. Ég hef ekkert á móti kvenréttindafélaginu heldur, en ég sé enga nauðsyn fyrir Alþingi að styrka þann félagsskap á borð við Kvenfélagasamband Íslands. Um síðari ástæðuna vil ég segja það, að ef um landkynningu er að ræða, þá vil ég þar vísa á Ferðaskrifstofu ríkisins og sjá, hvort ekki er hægt að fá þar framlag, því að hún stendur fyrir slíkri starfsemi, hefur til þess ákveðinn tekjustofn, og ég skal ekki vera móti því, að kona fengi þar eitthvað, ekki síður en karlmaður. Ég met mikils þau störf, sem kvenþjóðin hefur gert í landinu, en ég sé ekki ástæðu til að ætla sérstakt framlag til Kvenréttindafélagsins, sérstaklega eins og farið er fram á af hv. flm., og er því á móti till.

Hv. þm. Siglf. minntist á það, að hann ætti erfitt með að skilja, að n. lækkaði till. vitamálastjóra til Siglufjarðar. Það er af því, að hann hefur ekki sett sig inn í þær aðstæður, sem þar er um að ræða. Inneign Siglufjarðar er 300 þúsund. Till. fjvn. er, að Siglufjörður fái 130 þúsund. Akureyri á inni 740 þúsund og ætlar sér að gera stórvirki. Þó á hún ekki að fá nema 280 þúsund. Hér er því ekki gengið á rétt Siglufjarðar, nema síður sé. Ég vil benda hv. þm. á, að meðan hann hafði áhrifaaðstöðu sem bæjarstjóri á Siglufirði, vanrækti hann að láta höfnina hafa nógar tekjur til framkvæmda. Það er ekki fyrr en aðrir eru komnir, að það er gert. Þó hefur þessi höfn mesta tekjumöguleika af öllum höfnum landsins, að Reykjavík einni undantekinni. Það er fyrst nú fyrir 2–3 árum, að farið er að kippa þessum málum i almennilegt horf. Sannleikurinn er sá, að nauðsynlegt er að hafa miklu strangara eftirlit með því, hvort uppfyllt eru fyrirmæli l. um álagningu og innköllun hafnargjalda, svo sem l. mæla fyrir. Það er eðlilegt fyrir þá hv. þm., sem bera fram kveinstafi sína, að athuga þau mál vel hver heima hjá sér og láta niðurstöður slíkrar rannsóknar koma fyrir fjvn., áður en fénu er skipt.

Hv. þm. Siglf. ber einnig fram till. um byggingarstyrk til sjúkrahúss. Um þetta er ekkert erindi til fjvn. Ég minnist þess a.m.k. ekki að hafa séð erindi frá Siglufirði um styrk til byggingar sjúkrahúss i ár. En ég, eins og ég tók fram áðan, vil ekki, að fjvn. fari inn á það að skipta því fé, sem veitt er til sjúkrahúsa. Það var að vísu samþ. hér till. í fyrra um Ísafjörð, en það var ekki til byggingar sjúkrahúss, heldur til að halda við sjúkrahúsi, vegna þess að ekki var hægt að veita það af því fé, sem ætlað var til byggingar sjúkrahúsa. En mér skilst, að hér sé um að ræða nýtt sjúkrahús, og á því að fá hluta af því fé, sem veitt er til byggingar sjúkrahúsa á hverjum tíma. Nú liggja þessi mál þannig fyrir, að nú er stórkostlega aðkallandi að veita miklu meira fé vegna rekstrar spítalanna, m.a. vegna þvottahúss Landsspítalans. Það lágu fyrir fjvn. fullkomnar sannanir, að ef ekki er hægt að stækka þvottahús Landsspítalans, þarf að borga 5–6-falt fyrir þvottinn. Fjvn. hefur ekki tekið að sér að skipta þessu fé og mun ekki gera það að svo stöddu. Hins vegar hefur hún annars vegar farið eftir till. landlæknis og hins vegar till. ríkisstj., hversu mikið fé þyrfti á hverjum tíma. Landlæknir hefur haldið fram, að þyrfti meira fé en hann hefur fengið, m.a. vegna óska, sem komið hafa fram um sjúkrahúsbyggingu á Blönduósi, en það mál er mjög aðkallandi. og ef til vill líka á Siglufirði, en hæstv. ríkisstj. hefur óskað eftir, að það verði ekki tekið í fjárl. nú. Ég veit ekki heldur, hvað mikið það mál er undirbúið, ég skal ekki um það dæma, en ég held, að það sé rétt, að erindi hefur ekki legið fyrir fjvn., og hún hefur ekki heldur tekið að sér að skipta fénu, eins og ég tók fram. Ég hygg, að ef um það verður að ræða, að fjvn. færi að skipta þessu, þá mundi það ekki valda minni ágreiningi, en þótt því væri skipt áfram eins og það hefur verið, en það hefur ekki verið venja í fjvn., og ég vil ekki taka þá venju upp í þetta skipti.

Ég held, að það hafi ekki verið gerðar fleiri aths. frá hv. þm. en ég hef minnzt á. Ég þykist hafa gert grein fyrir því, hvers vegna við höfum ekki séð okkur fært að taka þennan og þennan lið upp. Ég vænti þess, að hv. þm. sætti sig við það og styðji fjvn. í að koma frv. í gegn á þann hátt, sem n. leggur til. Ég veit, að það eru fjölda mörg verkefni, sem þarf að sinna, en hv. þm. er kunnugt eins og okkur, að ekki er nægilegt fé til að sinna þeim öllum.

Ég læt svo máli mínu lokið að þessu sinni.