04.05.1950
Sameinað þing: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (1110)
38. mál, fjárlög 1950
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Hv. form. fjvn. vék að því áðan í ræðu sinni, að fulltrúar stjórnarandstöðunnar í fjvn. hefðu ekki valdið neinum erfiðleikum í störfum n., og vil ég þakka honum fyrir það þakkarávarp í okkar garð og undirstrika aðeins það, sem ég sagði í gær, að það hefði ekki staðið á mér eða hinum fulltrúa stjórnarandstöðunnar í fjvn. að taka undir till. í sparnaðaráttina, ef á þeim hefði örlað, en ekki varð vart við þær frá hendi hæstv. stj.
Hv. frsm. vék nokkuð að mér út af vissum atriðum í ræðu minni í gærkvöld. Hann var eins og hæstv. fjmrh. ákaflega lukkulegur yfir gengislækkuninni. Hann hélt fram, að þau spor, sem gengislækkunin markaði, væru frekar til hækkunar á tekjubálkinum en gjaldabálkinum. Nú er öllum hv. þm. kunnugt, að þau gullnu spor, sem gengislækkunin kann að marka í tekjubálkinn, hafa ekki fengið að sjá dagsins ljós enn þá, því að hæstv. fjmrh. hefur ekki enn lagt fram till. til fjvn. viðvíkjandi tekjuhliðinni. Ég veit, að það má hækka ýmsa liði þar vegna gengislækkunarinnar. Ég minntist á það í ræðu minni í gær, að t.d. mundi mega hækka verðtollinn um 58 millj. kr., eða a.m.k. 50–55%, en dró þó ekki dul á það, að það hefur ekki enn verið gert af hæstv. fjmrh.
Hins vegar sýndi ég fram á, að margir gjaldaliðir fjárlagafrv. hefðu stórhækkað af völdum gengislækkunarinnar, tilfærði tölur og sannaði mál mitt með mörgum dæmum. Hv. frsm. fjvn. viðurkenndi, að fiskmatið væri einn af þeim liðum í gjaldabálkinum, sem hefðu hækkað í frv. fjmrh., miðað við fjárl. síðasta árs, m.ö.o. að embættið verði í ár dýrara, en í fyrra og eitt af þeim embættum, sem væru í þessu frv. fjárfrekari, en á síðasta árs fjárl. Þetta sýnir áframhaldandi vöxt ríkisbáknsins eins og svo margt annað. Jafnframt lýsti hv. frsm. yfir, að þótt þessi starfsemi væri fjárfrekari en áður, þá væru stórgallar á henni, svo að íslenzk framleiðsla væri í nokkurri hættu, vegna þess að fiskmatið væri ekki nógu strangt eða nógu samvizkusamlega af hendi leyst, og er það því verra sem þessi starfsemi gerist fjárfrekari ár frá ári.
Út af því, að ég hafði í gær lýst yfir í ræðu minni, að eftirlit með verðlagsmálum og kostnaður við skömmtunarskrifstofu hefði hækkað úr 2,1 millj. kr. upp í 3.496 þús. í frv., sagði hv. frsm., að ég hefði helzt, áður en ég gerði þetta að umtalsefni, átt að kynna mér afstöðu hæstv. fyrrv. ríkisstj. og flokksbróður míns, þáverandi viðskmrh., sem hefði ætlað af göflunum að ganga við afgreiðslu fjárl. síðast, út af því að fjvn. hefði þá ekki viljað fallast á hærri upphæð vegna þessa eftirlits en 2,1 millj. kr. Ég verð að segja hv. frsm. það, að ég tel enga ástæðu til að rannsaka afstöðu fyrrv. hæstv. ríkisstj. til þessa máls. Ég er aðeins að sýna fram á, að þarna hefur á einum lið orðið 1,4 millj. kr. hækkun frá því, sem fjárl. síðast gerðu ráð fyrir, þar til næsti fjmrh. lagði fram frv. um næsta árs fjárl. Til þess þurfti ég enga sögulega rannsókn, en ef ég hefði farið út í þá sálma, þá hefði það leitt til þeirrar niðurstöðu. að reynslan virðist hafa orðið nokkuð á líka leið og hæstv. fyrrv. viðskmrh. lét í ljós, að kostnaðurinn mundi verða, að til eftirlits með viðskiptum og verðlagi mundi þurfa 31/2 millj. kr., sem hv. fjvn. vildi ekki trúa fyrir ári síðan, en verður nú að horfast í augu við sem staðreynd. Ég tók þetta sem eitt gleggsta sönnunargagnið gegn því, að hæstv. stj. hefði nokkuð reynt að draga úr útþenslu ríkisbáknsins, og tók þetta sem tilvalið dæmi. Það held ég verði ekki hrakið. Og svona dæmi hefði sannarlega ekki átt að finnast í fjárlögum eftir allt hjalið hjá stjórnarflokkunum báðum um viljann til að draga úr útþenslu ríkisbáknsins.
Hæstv. fjmrh. er hér nú ekki viðstaddur, en hann vék nokkuð að máli mínu í gær, og vildi ég svara honum nokkru. Í ræðu minni voru tekin fram tvö meginatriði. Í fyrsta lagi, að það er um að ræða stórfellda hækkun á mörgum liðum fjárlaganna, sem er bein afleiðing af gengislækkuninni. Í öðru lagi lagði ég áherzlu á það, að fjölda margir liðir fjárlaganna sýndu enn frekari útþenslu ríkisbáknsins. Hæstv. ráðh. reyndi að verja gengislækkunina, eftir því sem hann hafði fremst föng til, og benti fyrst og fremst á, að felldir hefðu verið niður stórir liðir, sem annars hefði orðið að taka upp á fjárl. — Það er rétt, að ríkissjóður hefur með þessari löggjöf losnað við stóran útgjaldalið, þar sem fiskábyrgðin var; en þrátt fyrir niðurfellingu þessara laga, og þó að allir skattar, sem notaðir voru til að standa undir þeim útgjöldum, renni eftir sem áður í ríkissjóð, þá er eftir sem áður 13 millj. kr. greiðsluhalli á fjárlögum, og þó eru enn eftir útgjaldaliðir, sem nema mörgum milljónum, ef ekki milljónatugum. Ég hef því ekki annað að segja við hæstv. ráðh. en það, að ég óska honum og stuðningsflokkum hæstv. ríkisstjórnar til hamingju með áhrif gengislækkunarinnar. Annars hefur mér nú heyrzt, að lukkan væri ekki alls staðar jafnmikil og að það væri nú ekki miklu auðveldara að koma saman fjárlögum nú, en á síðastl. ári. Og meginatriðið í þessu máli er þetta, að þegar það er komið í ljós, að gengislækkunin hefur ekki létt á ríkissjóði, þá er sýnilega að henni lítill fengur, þar sem vitað er á hinn bóginn, að 120 millj. kr. byrðar eru lagðar með henni á landslýðinn. Hafi slíkar álögur ekkert að segja fyrir bættan hag ríkissjóðs, þá er sýnilegt, út í hvaða ófæru hefur verið stefnt með slíkum ráðstöfunum. Og svo mikið er víst, að það eru engar 120 milljónir, sem vinnast í skattalétti vegna gengislækkunarinnar, en svo ætti að vera, ef jöfnuður væri á metunum.
Ég benti á það í gær sem sönnun fyrir því, að sparnaðarvilji ríkisstj. hefði ekki komið í ljós við afgreiðslu þessara fjárlaga, að dýr embættismaður fengi enn þá laun úr ríkissjóði, enda þótt hann væri nú búsettur í öðru landi. Hæstv. ráðh. lét sem sér væri ókunnugt um þetta, en formaður fjvn. viðurkenndi, að sér væri þetta kunnugt, en ríkisstj. mundi vera búin að semja við viðkomandi embættismann um þessa tilhögun. Ég tel þannig engan efa á því leika, að þetta hneykslismál sé byggt á fullum staðreyndum. Nú kynnu menn að segja, að maðurinn verði að fá greidd sín laun, þar sem ekki sé samkvæmt lögum hægt að svipta menn slíkum greiðslum nema með 6 mánaða fyrirvara. En þetta er mergur málsins, að verði ekki embættið lagt niður nú strax, þá verður það ekki gert fyrr en einhvern tíma á næsta ári. Sé það svo, að ríkisstj. sé full af sparnaðaranda, þá á hún að leggja strax niður embætti þessa manns, sem orðinn er of ríkur til þess að geta lifað lengur hér á Íslandi.
Hæstv. ráðh. spurði, hvernig á því stæði, að við tveir fulltrúar stjórnarandstöðunnar í fjvn. skyldum ekki hafa komið fram með okkar till. til sparnaðar. Ég benti hins vegar á, að réttara væri, að hæstv. ríkisstj. hefði forustuna um nýja stefnu í fjármálum, heldur en stjórnarandstaðan. Og enda þótt það væri okkur sæmd að fá þessa „doríu“ aftan í okkur, þá held ég við verðum að afbiðja okkur þann sóma, úr því að þeir eiga að heita að hafa forustuna. Þó vil ég leyfa mér að segja hæstv. fjmrh. það, að svo framarlega sem ég yrði var við ákveðinn vilja ríkisstj. sjálfrar til niðurskurðar og sparnaðar, þá skyldi ég þegar leggja fram till. um 10 embætti, sem vel mætti leggja niður, án þess að ríkisreksturinn biði við það hið minnsta afhroð. — Hins vegar væri rangt að gera slíkar till. sérstaklega, ef ekki væri um neinn allsherjar sparnað að ræða. Slíkan sparnað mætti framkvæma á fjölda mörgum sviðum og skera niður margt fleira, en þessi 10 embætti, ef að því væri gengið af fullum vilja; og það tel ég að væri nú skylda Alþingis og ríkisstj., eftir að lagðar hafa verið á herðar alls almennings þær byrðar, sem gert hefur verið með gengislækkuninni.