04.05.1950
Sameinað þing: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)
38. mál, fjárlög 1950
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Þegar ég lauk máli mínu áðan, þá gleymdi ég að minnast á brtt. á þskj. 632 frá meri hl. fjvn., en þær eru flestar leiðréttingar við aðaltill., svo að ég ræði þær ekki frekar, en þær eru nauðsynlegar áður, en til atkvgr. kemur. Þó er einn nýr liður við 18. gr., en það er til Árna Bjarnasonar fyrrv. varðar í Alþ., sem af vangá hafði fallið niður í aðaltill.
Út af því, sem hv. 6. landsk. lauk máli sínu með, vil ég benda á það, að ég vil ekki ræða nú hið stórpólitíska mál, gengislækkunina, en ég vil benda á það, að á síðasta ári urðu nokkrar umr. milli okkar hv. þm. Hafnf., þar sem hann sagði, að hann mundi aldrei samþ. gengislækkun fyrr, en allar aðrar leiðir væru lokaðar, en hann fann þá enga aðra leið. En það sorglega er ekki það, að gengið var fellt, heldur það, að vegna Alþfl. var það ekki gert nógu snemma, svo að nú er byrði verkamanna af þeim sökum meiri, en þurft hefði að vera. Í stað fiskábyrgðarinnar hefði strax átt að skrá gengið rétt, en Alþfl. stóð alltaf á móti því og heimtaði skatta og ábyrgðir og þar af leiðandi meiri byrðar á þjóðina í stað gengislækkunar, þó að gengið væri fyrir löngu fallið. En það versta var þó, þegar þessi hv. þm. lét skrá tvöfalt gengi í landinu. Hv. 6. landsk. ásakaði ríkisstj. fyrir að fara ekki inn á sparnaðarleiðina, en ég tek undir með hæstv. fjmrh., að ekki hafi gefizt mikill tími til slíks, því að hver barðist fastast á móti sparnaði á s.l. ári? Það var Alþfl., og þá urðum við að nota kommúnista til að reyna að spara marga liði, sem Alþfl. var á móti. Vegna þessarar andstöðu Alþfl. varð að fresta atkvgr. um fjárl. í 14 daga, en auðvitað hafði Alþfl. ekki annan tilgang en drepa till. fjvn. Hins vegar hljóta allir að sjá, að fjvn. getur ekki kippt öllu í lag á einum degi, og þess vegna hefur sumt af athugunum hennar ekki verið annað, en undirbúningur að frekari sparnaðaraðgerðum. Hún hefur meðal annars gert tilraun til að leysa eitt stórhneyksli í opinberum rekstri, en það er bifreiðarekstur ríkisins. Á þeim rekstri hefur ríkið tapað hundruðum þúsunda undanfarin ár, en þrátt fyrir það hefur ekki mátt við honum hrófla, enda um að ræða brjóstmylking þm. Hafnf., sem hann hefur fóðrað á orlofssjóði, þegar annað fé hefur ekki verið í handraðanum til að standa undir tapinu. Það hefur líka mætt harðri mótspyrnu, ef lagt hefur verið til að leggja niður óþörf embætti, og má í því sambandi minna á húsaleigunefndina, sem Alþfl. gerði að launuðum starfsmönnum hins opinbera, enda þótt lítið gott hafi af henni leitt. Var það ekki líka Alþfl., sem ákvað að skipa sérstaka nefnd til að úthluta „Renaultbílunum“, sem frægt er orðið, enda hefur heyrzt, að form., sem auðvitað var einn af gæðingum Alþfl., hafi úthlutað sér fyrstu 4 bílunum? En sú nefnd kostaði nú ekki minna en 36 þús. kr. Og það mætti halda áfram að telja upp ráðstafanir hv. Alþfl., sem ekki eru betri en þær, sem ég hef lýst hér.
Hv. 5. landsk. var að tala um eignaraukaskattinn og átelja, að hann skyldi ekki vera innheimtur. Sannleikurinn í því máli er sá, að það var ekki búið að reikna hann út og þar af leiðandi ekki hægt að innheimta hann, nema hann hefði verið lagður á af handahófi. Annars verð ég að segja, að það er heldur lítið til að tala um, ef ekki er hægt að finna aðra gagnrýni.
Ég ætla þá að svara hv. þm. Eyf. nokkrum orðum. Hann virðist hafa tekið eitthvað rangt eftir, ef hann hefur heyrt mig tala um sig sem böðul Barðastrandarsýslu. Hitt er staðreynd, að á árunum 1931–42 fór Framsfl. með umboð fyrir þessa sýslu og vanrækti þá að sinna nauðsynlegum framkvæmdum í sýslunni, svo að hún hefur dregizt aftur úr bæði í hafnargerð og vegabótum. Þess vegna sagði ég og stend við, að Framsfl. hafi verið böðull á þessari sýslu, meðan hann fór þar með umboð. 1yessi hv. þm. var að kvarta um, að lítið væri lagt til samgöngubóta í Eyjafjarðarsýslu, og miðaði í því sambandi við ýmis önnur héruð, eins og t.d. Barðastrandarsýslu. Ég vil leyfa mér að benda þessum hv. þm. á, hvað áður er búið að leggja bæði í vegi og hafnarbætur í Eyjafirði, og sömuleiðis biðja hann að gera samanburð á samgöngum í Eyjafirði og Barðastrandarsýslu. Annars kom hinn rétti hugsunarháttur Framsfl. fram í þeim orðum áðan, að Barðstrendingar þyrftu ekki akvegi til að reka lömbin eftir til Eyjafjarðar. Sannleikurinn er sá, að Barðastrandarsýsla hefur veri$ afskipt bæði í sambandi við samgöngur og hafnarbætur, og það er engin leið að ætlast til, að bændur í Barðastrandarsýslu sætti sig við að flytja allar sínar afurðir og aðdrætti á klökkum, eins og víða er enn, og verði ekki úr þessu bætt, þá geta Eyfirðingar ekki vænzt þess að fá lömb úr Barðastrandarsýslu. Þetta er kjarni málsins, og það er alveg víst, að fólkið hættir að búa á þessum stöðum, sem engar samgöngur hafa, nema úr verði bætt. — Hv. þm. vildi ekki fallast á, að Öxnadalsheiðarvegur væri fyrir Eyjafjörð, en vill hann þá halda því fram, að vegurinn yfir Þorskafjarðarheiði sé fyrir Barðastrandarsýslu? Annars er alveg skakkt að halda því fram, að sérstakir vegir séu fyrir ákveðin héruð. Þessir vegir eru til að tengja saman landshluta og eru þar af leiðandi fyrir þjóðina í heild. — Hv. þm. Eyf. var eitthvað að kvarta yfir, að fjvn. hefði ekki tekið til greina sem skyldi beiðni um ræktunarveg í Hrísey. Ég man bara alls ekki, að á þennan veg væri minnzt í skýrslu vegamálastjóra, en hins vegar hefði það verið athugað, ef það hefði legið fyrir, og í sambandi við ofsjónir þessa hv. þm. út af framlagi til ræktunarvegar í Vestmannaeyjum, vil ég benda á þær erfiðu aðstæður, sem Vestmannaeyjar eiga við að glíma varðandi mjólkurkaup og mjólkurframleiðslu. — Ég vil svo leyfa mér að þakka hv. þm. fyrir að taka till. sína varðandi Þorfinn Kristjánsson aftur og mun ræða hana nánar í nefndinni og freista að ná samkomulagi um það mál.
Í sambandi við till. þm. Vestm. varðandi vitabyggingu, þá get ég fallizt á nauðsyn þess að byggja vita, en það er bara svo víða þörf og vandasamt að meta, hvar hún er mest, og auk þess komið undir fjárhagsráði, hversu mikil leyfi verða veitt í því skyni.
Út af till. þm. Siglf. við 22. gr. um styrk til vatnsveitna, þá vil ég benda á, að það er til heimild í lögum um það atriði og því þýðingarlaust að samþ. það í þessu sambandi. Hins vegar hefur ekki enn verið tekin ákvörðun um, hvað mikil lán verði veitt til vatnsveitna, en um það liggja nú beiðnir bæði frá Ísafirði og Kópavogshreppi. Þetta atriði mun verða athugað fyrir 3. umr., en frekari samþykktir um heimild tel ég þýðingarlausar, og vildi ég því óska eftir, að till. yrði tekin aftur og n. gefinn kostur á að athuga málið.
Að síðustu vil ég minnast á till. þm. A-Húnv. um fyrirhleðslu á jörðum, sem hann hefur gert grein fyrir. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um það mál, en hins vegar hefur það verið sent til umsagnar vegamálastjóra.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að ræða fram komnar brtt. frekar á þessu stigi málsins. Hannibal Valdimarsson: Herra forseti. Ég tel mig eiga rétt samkv. þingsköpum til að svara svigurmælum form. fjvn., þó að ég hafi talað tvísvar. Ég hef verið að velta því fyrir mér undir þessum umr., hvað form. fjvn. hefur verið prúður og spaklátur, og eiginlega hef ég nú sett það í samband við það, að hann er lasinn. En nú þegar hann tók að nota illyrði og gífuryrði, þá heyrði ég, að hann er farinn að rakna við, og fagna ég því, að hv. form. fjvn. er að verða heilbrigður, enda þótt því fylgi þessi ljóður á ráði hans. Þessi hv. þm. segir, að það sé sök Alþfl., að ekki hafi verið horfið að gengislækkun 1946. Ég lýsi þetta sem bein ósannindi, vegna þess að tilmæli um slíkt komu aldrei fram. Hins vegar játa ég, að ef slík till. hefði komið fram, þá teldi ég það Alþfl. til sæmdar að koma í veg fyrir, að hún næði fram að ganga. Það vita allir, að gengislækkunin var undirbúin 1949 og þá fenginn íslenzk-amerískur sérfræðingur til að gera þessa lækningu. Þegar svo stj. sá þetta pródúkt, þá varð Framsfl. heillaður, en Sjálfstfl. þorði ekki að viðurkenna hrifningu sína strax. Hins vegar mótmælti Alþfl. þessari leið þegar fyrir kosningar og heldur enn við þá sömu skoðun sína. Í sambandi við þessi lög hefur Alþfl., eftir að hafa varað við þessari leið, ekki getað gert annað en óskað, að þessum gengislækkunarpostulum verði að trú sinni, enda þótt hann hafi séð fyrir, að hún yrði þeim til skammar. Þetta er líka nú þegar að koma á daginn, og er það haft eftir einum þm. Framsfl., að hann hafi sagt á fundi austur á Selfossi, að ef hann hefði vitað, hvaða afleiðingar gengislækkunin hefði fyrir bændur, þá hefði hann aldrei fylgt henni. Svo er hv. þm. Barð. að ásaka Alþfl., eða er það kannske Alþfl. eð kenna, að sjómönnum og útgerðarmönnum var lofað 93 aura verði fyrir fiskinn eftir gengislækkunina, sem svo hefur algerlega verið svikið, og lítur út fyrir að leiða til algerrar stöðvunar á útveginum, nema nýtt ábyrgðarverð komi til? Nei, hv. þm. Barð., Alþfl. á þar engan hlut að máli.
Þegar hv. form. fjvn. kom til heilsu, fór hann að ræða hneykslismál, sem hann kallaði, og kenndi Alþfl. um. Hann nefndi í því sambandi rekstur á sérleyfisleiðinni til Hafnarfjarðar og talaði um, að nú ætti að létta því hneyksli af. Sannleikurinn í þessu máli er sá, að ríkið tók þennan rekstur að sér, þegar einstaklingar vildu hann ekki, því að þeir töldu sig ekki geta grætt nægilega á honum, og hefur hann síðan verið rekinn með miklu betri tækjum, en ef til vill nokkrum halla, sem stafar af byrjunarörðugleikum fyrst og fremst. Það er því ekkert annað en löngun til að vera með gífuryrði að kalla þann rekstur hneyksli.
Þá vildi form. fjvn. kenna Alþfl., að húsaleigunefndin var sett. Ég verð nú að segja, að ég hef ekki hitt þann mann, sem ekki viðurkennir, að húsaleigunefndin hafi gert margt vel, og þó að sú skipan eigi nú ekki öll við lengur, er ekki um að sakast. Og ég segi fyrir mig, að ég harma ekki, þó að nokkrir húsaleiguokrarar hafi verið stöðvaðir í braski sínu, en það hefur húsaleigunefndin vissulega gert.
Þá ræddi þm. Barð. um, að Alþfl. hefði átt form. í nefnd, sem úthlutaði bilum. Ég geri ráð fyrir, að hann eigi hér við Renaultbílana, sem hv. flokksbróðir hans flutti inn í leyfisleysi. Ég fullyrði, að þessi maður úthlutaði sér ekki neinum 4 bílum, og satt að segja undrast ég, að hv. form. fjvn. skuli láta út úr sér slík ósannindi og dylgjur um fjarstadda menn, enda vænti ég, að hann taki þessi ummæli sín aftur.
Hv. þm. Vestm. sagði, að auðvelt væri að gera grein fyrir, hvers vegna upphæðin vegna fiskmatsins hefði hækkað. Ég geri ráð fyrir, að það sé rétt, enda værum við illa settir, ef það væri ekki hægt. Hins vegar breytir það ekki þeim tölfræðilegu staðreyndum, að þessi útgjöld hafa hækkað úr 237 þús. kr. í 332 þús. kr. Þá játaði þm., að ófærður hefði verið ferðakostnaður matsmanna, og hækkar hann gjöldin um 30 þús. kr., svo að samtals er upphæðin 362 þús. kr. Þetta tel ég nú allverulega hækkun, þar sem um er að ræða á annað hundrað þús. kr. enda þótt þm. Vestm. sé ánægður með útkomuna.