05.05.1950
Sameinað þing: 45. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)

38. mál, fjárlög 1950

Eiríkur Einarsson:

Manni sýnist, af því hvað þessi till. hljóðar líklega, að það sé leiðinlegt að segja nei við henni, en af því að það er illa um búið, að því er það snertir að bæta aðbúnað og heilsuskilyrði landsmanna, hvort sem það er í Reykjavík eða annars staðar, vantar grundvöll undir að það verði gengið til verka eins og vera þyrfti. Með tilvísun til grg. hv. 7. þm. Reykv. treysti ég mér ekki til annars en að segja nei við þessari till.