10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

38. mál, fjárlög 1950

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Eins og ég gat um við 2. umr. fjárl., þá hafði fjvn. ekki gengið að fullu frá tekjuáætluninni samkvæmt 2. gr. og einstökum atriðum öðrum í fjárlfrv., af þeim ástæðum, að þessi mál höfðu ekki verið að fullu rædd við ríkisstj. Fjvn. hefur nú gengið að fullu frá þessu máli og leggur fram till. á þskj. 699, og skal ég gera nokkra grein fyrir þeim.

1. brtt. er við 2. gr., þar er gert ráð fyrir því, að vörumagnstollurinn lækki úr 23 millj. í 22 millj., eða um 2 millj. kr. Þessi till. byggist á því, að gert er ráð fyrir, að innflutningurinn verði ekki eins mikill á þessu ári og undanfarin ár, en vörumagnstollurinn er algerlega háður vörumagninu, en ekki verðlaginu; því þykir rétt að lækka þetta um nefnda upphæð.

Verðtollurinn er hækkaður úr 58 millj. í 78 millj., eða um 20 millj. kr. Þessi till. hins vegar byggist á því, að þótt vörumagnið sjálft hækki ekki og nál ekki sama magni og áður, þá er verðið, sem greitt er fyrir vöruna í krónum, það miklu hærra, að tollurinn hlýtur að hækka stórkostlega. Ég skal viðurkenna, að æskilegt hefði verið að lækka tolla sem svarar gengislækkuninni, en meiri hl. Alþ. hefur ekki farið þá leið af þeim ástæðum, að hann hefur ekki séð sér fært að missa þessar tekjur úr ríkissjóði, og þess vegna er lagt til, að þessar tekjur hækki.

3. brtt. er við 9. tölul., bifreiðaskattur. Það er gerð till. um að lækka hann um 1 millj. frá því, sem er í frv., að í staðinn fyrir 41/2 millj. komi 31/2 millj. Þetta kemur til af því, að ríkisreikningar undanfarinna ára hafa sýnt, að þessi skattur hefur aldrei náð hærri upphæð en 31/2 millj. kr. Það þykir því ekki varlegt að áætla, að hann verði hærri á þessu ári heldur en hann hefur verið á undanförnum árum. Þykir rétt að gera þessa brtt. til samræmingar við reynslu undanfarinna ára og lækka þessa áætlunartill. um eina millj. kr.

Þá er d-liðurinn við 17. tölul. (söluskatturinn). Gert er ráð fyrir, að hann hækki úr 36 millj. kr. í 471/2 millj. kr., eða um 111/2 millj. kr., sem stafar af því, að söluverð í krónum er þeim mun hærra sem gengisbreyt. nemur. Og er af þeim ástæðum gert ráð fyrir, að hann gefi þetta miklu meiri tekjur, en áður var. Get ég vísað til ummæla minna um verðtollinn í þessu sambandi. Það gildir einnig um þennan lið, að æskilegt hefði verið, að þetta hefði ekki þurft að hækka. En þessari hækkun er gert ráð fyrir af sömu ástæðu eins og í sambandi við brtt. um. verðtollinn. — Það er því gert ráð fyrir, að tekjur allrar 2. gr. hækki um 35 millj. kr., en þar á móti komi lækkun upp á 3 millj. kr., svo að nettó-hækkunin verði um 32 millj. kr. Og þá er tekinn með e-liður, sem átti að vera á brtt., 1. tölul., en féll niður og verður getið síðar. Ég vil taka fram, að þessar hækkunartill. eru allar gerðar í samráði við hæstv. ríkisstj., og hefur enginn ágreiningur verið um það milli hæstv. ríkisstj. og meiri hl. fjvn.

Um 2. lið brtt., við 3. gr. A, er það að segja, að þar er fyrst og fremst gert ráð fyrir. að tekjur landssímans hækki úr kr. 27.360.000 í kr. 27.578.000, eða um 218 þús. kr. Þar er einnig lagt til um einn liðinn í gjöldunum, þ.e. II,b.4. (stuttbylgjustöð í Reykjavík), að fyrir 342 þús. kr. komi 560 þús. kr., þ.e., að þessi liður hækki um 218 þús. kr. Þetta hafði fallið niður af mistökum í sambandi við afgreiðslu frv. við 2. umr., og þykir rétt að taka hækkunina hér upp eins og hún er reikningslega fram sett af símanum. Og hafa tekjurnar verið hækkaðar á sama hátt, einnig í samráði við forstjóra landssímans, svo að þetta breytir ekki fjárlögunum viðkomandi hlutfallinu milli tekju- og gjaldaliða þeirra.

Þá er 3. tölul., sem er einnig við 3. gr. A. Þar er gert ráð fyrir, að brúttó-tekjur Áfengisverzlunarinnar hækki úr 49 millj. kr. upp í 53 millj. kr., en að útgjöldin standi í stað, svo að í þessu er tekjumunurinn 4 millj. kr. eftir brtt., sem gert er ráð fyrir hærri tekjum en í frv. Er þetta einnig gert í samráði við hæstv. ríkisstj. — Útkoman á tekjubálkinum er sú, að 2. gr. hækkar um nál. 32.000.000 kr., 3. gr. hækkar um 4.218.000 kr. = 218 þús. kr., sem er nettóhækkun 4 millj. kr. Alls eru þá tekjuhækkanir á 2. og 3. gr. fjárl. um 36 millj. kr., og leggur fjvn. til, að sú upphæð sé tekin inn á fjárl.

Þá koma hér nokkrar till., sem gerðar eru við gjaldabálkinn. Eru þær fyrst við 10. gr., en eins og hv. þm. muna, gat ég þess við 2. umr. fjárl., að það hefði ekki verið fullt samkomulag um, hvað teknar skyldu vera miklar hækkanir inn á 10. gr. í sambandi við utanríkismálin. Nú er það orðið að samkomulagi að leggja til, að við sendiráðið í Kaupmannahöfn verði gert ráð fyrir hækkun úr 122.200 kr. í 222.700 kr., eða um 100.500 kr. Stafar þetta að nokkru af gengislækkuninni, en er að nokkru vegna aukins kostnaðar sendiráðsins á undanförnum árum. Gert er ráð fyrir, að greiðsla vegna sendiráðsins í Stokkhólmi hækki úr 120.300 kr. í 236.700 kr., eða um 116400 kr. — Kostnaður við sendiráðið í London hækki úr 305.500 í 570.00 kr., eða um 264.800 kr. — Kostnaður við sendiráðið í Washington hækki úr 364.500 kr. í 661.300 kr., eða um 296.800 kr. Þessi hækkun hefur orðið tiltölulega meiri vegna þess, að gengi dollarsins breyttist á síðasta ári gagnvart íslenzku krónunni, eins og kunnugt er. — Gert er ráð fyrir, að kostnaður við sendiráðið í Moskva hækki úr 400.000 kr. í 650.000 kr. Í sambandi við þetta skal ég leyfa mér að geta þess, að það var fyrsta till. frá hæstv. dómsmrh., að þetta yrði hækkað upp í nærri eina millj. kr. En við ýtarlegri umr. við hæstv. ríkisstj. hefur verið talið, að ríkisstj. mundi geta komizt af með þær 650 þús. kr., sem hér er lagt til, að gert verði ráð fyrir í sambandi við sendiráðið í Moskva. Ég skal ekki frekar fara út í það atriði. En ég hygg, að hv. þm. þyki kannske nægilegt, að hér séu teknar upp 650 þús. kr. til þessarar þjónustu, sem vitað er, að ekki hefur orðið að meira gagni en á síðasta ári hefur verið, vegna þeirra kringumstæðna, sem eru í sambandi við viðskipti landanna í Evrópu við Rússland, eins og stendur. En samkomulag hefur orðið um að leggja til að taka inn 650 þús. kr. til þessa. — Gert er ráð fyrir greiðslu vegna sendiráðsins í París 470.400 í staðinn fyrir 260.900 kr., eða hækkun um 209.500 kr. — Kostnaður við sendiráðið í Osló hækki úr 134.300 í 243.700 kr., eða um 109.400 kr. — Aðalræðismannsskrifstofan í Hamborg hækki úr 107.700 kr. í 197.300 kr., eða um 89.600 kr. — Aðalræðismannsskrifstofan í New York hækki úr 31.300 kr. í 54.400 kr., eða um 23.100 kr. — Ferðakostnaður undir 10. lið hækki úr 75 þús. kr. í 125 þús. kr., eða um 50.000 kr. Og næsti liður, kostnaður vegna samninga við erlend ríki, hækki úr 250.000 kr. í 550.000 kr., eða um 300 þús. kr., og þar næsti liður, kostnaður vegna þátttöku í alþjóðaráðstefnum, hækki á sama h átt um 300 þús. kr., sem er byggt á þeirri reynslu um báða þessa liði, sem þetta hefur kostað á síðasta ári. — Liðurinn, til upplýsingastarfsemi, hækki úr 10 þús. kr. í 15 þús. kr., og kostnaður vegna kjörræðismanna hækki úr 5 þús. kr. í 10 þús. kr. — Þá er einnig lagt til hér, að tekinn verði inn á þessa grein nýr liður, til endurbóta og kaupa á húsgögnum vegna sendiherrabústaðarins í London, 150.000 kr. Þessi till. var tekin aftur við 2. umr. af fjvn., samkv. ósk hæstv. ríkisstj. Hún var þá sett á 20. gr., og þykir eðlilegra, að hún sé sett á 10. gr., og er því tekin hér upp. — Öll hækkunin samtals á 10. gr. er því 2.270.100 kr.

Þá er 5. brtt., við 13. gr. A.III.8, um, að fyrir orðin á „Langadalsströnd“ komi: í Ísafirði. Þetta er aðeins til leiðréttingar, en hefur ekki áhrif á afkomu fjárl.

6. brtt. er við 13. gr. C.IX.25, um, að liðurinn orðist svo: Selsvör (í eitt skipti fyrir öll) 10 þús. kr. Þetta er ekki breyt. að öðru leyti en því, að þessi aths. bætist við: „í eitt skipti fyrir öll“, því að upphæðin er sú sama og í frv. á þskj. 654. En það þótti rétt að láta þetta koma fram, af því að þessi staður er ekki tekinn inn á l. að öðru leyti, og er ekki gert ráð fyrir, að veitt verði fé úr ríkissjóði til þessa staðar, nema í þetta eina skipti.

7. brtt. er við 13. gr. C.X (hafnarbótasjóður). Fjvn. bar fram við 2. umr., að fyrir 300.000 kæmu 1.500.000 kr. Þessi till. var tekin aftur samkv. ósk hæstv. fjmrh. En það hefur nú orðið að samkomulagi, að hún væri tekin hér upp og settar inn 1.500.000 kr., eins og gert var ráð fyrir í till. fjvn. við 2. umr. — Mér þykir rétt að segja frá því, að eina hækkunin, sem gert er ráð fyrir í brtt. n. við 13. gr., er þessi greiðsla í sambandi við hafnarbótasjóðinn, sem nemur 1.200.000 kr. frá því, sem er á frv. á þskj. 654 til tekið.

8. brtt. er við 14. gr. B.XVL9. Þar er lagt til, að nýr stafl. bætist við: Til annarrar starfsemi handíðaskólans 20.000 kr. Það, sem nú er á frv. í sambandi við greiðslu til handíðaskólans, er eingöngu í sambandi við þá kennslu, sem hann heldur uppi fyrir kennara í handíðum, en skólinn hefur hins vegar ekki fengið neinn styrk í sambandi við aðra kennslu. Fjvn. þótti því rétt að taka upp þessa upphæð í sambandi við þennan skóla, eins og hér er gert ráð fyrir í 8. brtt.

9. brtt. er við 14. gr. B.XVI.10 (nýir liðir). Aliður, um styrk til íþróttakennaraskóla Íslands vegna þátttöku íþróttaflokks á Lingiaden 1949, 8.000 kr. Eins og menn muna, voru teknar inn 10 þús. kr. vegna utanfararstyrks til íþróttafélagsins Ármanns. Og eftir að það var vitað, að meiri hl. Alþ. samþ. slíka till., var send inn til. frá viðkomandi aðilum í þessu sambandi, og þótti ekki stætt á að samþ. ekki einnig þessa greiðslu, og þess vegna er þetta tekið upp hér. B-liður 9. brtt. er um styrk til Íþróttasambands Íslands vegna þátttöku í sundmeistaramóti í Vín, 6.000 kr. Það er líka í samræmi við, að fjvn. lagði til, að tekinn yrði upp nokkur styrkur vegna þátttöku í íþróttamóti í Brüssel á þessu ári. Ég hef því fallizt á að leggja til, að 6.000 kr. yrðu veittar vegna þátttöku í sundmeistaramóti í Vínarborg. — Útgjöld á 14. gr. hækka, ef þessar brtt. verða samþ., um 34.000 kr.

10. brtt. er við 15. gr. Þar er tekinn upp nýr 1iður undir A.VII.33, til sjómannastofu á Akranesi, 2..000 kr. Þetta hafði verið samþ. áður en till. voru fluttar við 2. umr., en það hafði yfirsézt að prenta þessa till., og er hún því nú tekin upp. — Þá eru nýir liðir við 15. gr. (11. brtt. n.), um það, að til Arnórs Sigurjónssonar verði veitt, til ritstarfa kr. 8000 og til Sigurðar Skagfields, til söngkennslu 2.000 kr., sem meiri hl. n. samþ. að tekið yrði upp á fjárl. - Hækkunin, sem gert er hér ráð fyrir á 15. gr., nemur því 12.000 kr.

12. brtt. er við 16. gr. A.14 (landþurrkun í Vestur-Landeyjum), en sú brtt. er aðeins um það, að á eftir orðunum „annars staðar að“ komi: (lokagreiðsla). Það þótti rétt að taka fram, að hér væri um að ræða lokagreiðslu.

13. brtt. er eingöngu leiðrétting, um, að fyrir orðið „á“ komi orðið við.

14. brtt. er um, að tekið sé upp framlag til mjólkurbúa og smjörsamlaga, 200.000 kr., sem er nýr liður. Þetta var gert í samráði við hæstv. ríkisstj.

15. brtt. er við 16. gr. B.12, um að teknir verði upp nýir liðir, fyrst undir a.: Til greiðslu á sjóveðum síldveiðiskipa sumarið 1949 kr. 1.500.000. Þetta er lagt til samkv. ósk hæstv. ríkisstj. og samkv. l. Og undir b-lið þessarar till. er lagt til, að veitt verði til aflatryggingasjóðs Bolungavíkur samkv. lögum nr. 109/1943 kr. 12.000. Það hefur verið samþ. í hv. Nd., að þessi l. skyldu gilda fyrir hluta af þessu yfirstandandi ári. Og það hefur einnig verið samþ. í hv. Ed. við 1. umr. og af sjútvn. þeirrar hv. d., svo að það má gera ráð fyrir, að frv. verði samþ., og því er nauðsynlegt að taka þessa upphæð hér inn, til þess að mæta þessum gjöldum. En það er líklegt, að þetta sé síðasta árið, sem þessi sjóður starfar sjálfstætt, og hann renni á þessu ári, samkv. l., inn í almenna sjóðinn, sem hafður verður í þessu skyni.

16. brtt. er við 16. gr., D.V, um, að liðurinn orðist svo: Til að lána til kaupa á dieselrafstöðum, að fengnum tillögum raforkuráðs: a. Til 70 hestafla stöðva og stærri 500.000 kr., og b. Til smærri stöðva 150.000 kr. Þetta hefur engin áhrif á niðurstöðutölur fjárl., þar sem upphæðin er 650.000 kr. nú þegar á þessari grein fjárl. Hér er aðeins gerð till: um skiptinguna á þessu fé. — 16. gr. hefur því hækkað um 1.712.000 kr., ef þessar brtt. verða samþ. allar.

Við 17. gr. er till. um, að til styrktar- og sjúkrasjóða verði framlagið hækkað um 2.000 kr. til styrktar sjúkrasjóði vitavarða. En hingað til hefur ekki verið sú regla, að ekkjur þeirra embættismanna fengju nokkurn styrk, þó að þeir féllu frá. Þótti því rétt að styðja þennan sjóð, þar til sú skipan kæmist á. Erindi lá fyrir frá vitamálastjóra, hv. þm. Hafnf., sem sýndi fram á, að tillög til sjóðsins hafa verið aukin af öðrum aðilum langt fram yfir það, sem ríkissjóður hafði lagt í sjóðinn, svo að nú munu aðrir aðilar leggja fimmfalt í þennan sjóð á móts við það, sem ríkissjóður leggur fram. Að ég hygg, var þetta framlag fyrst jafnt frá báðum aðilum, ríkissjóði annars vegar og öðrum hins vegar, en hefur breytzt svona.

18. brtt. er við 17. gr. 26, nýr liður: Til vatnsveitna, samkvæmt lögum 200.000 kr. Þetta er einnig gert í samráði við hæstv. fjmrh. — 17. gr. hækkar því alls um 220.000 kr., ef þessar brtt. verða samþ.

Hér liggur fyrir brtt. frá n. við 18. gr. II.b. Það eru nýjar brtt.: a. Bergljót Blöndal. Liðurinn fellur niður. Og að upp séu teknir tveir liðir, sem bætist við á gr., Lilja Haraldsdóttir, 800 kr., og Þrúður I. Jónsdóttir, fyrir „600 kr.“ kemur: 800 kr. Er þetta gert til samræmingar við þá, sem eru á greininni. Þetta hefur þau áhrif, að gjöldin á þessari grein hækka um 3.000 kr., þegar miðað er við vísitöluuppbót á þær upphæðir, sem hér er talað um, en lækka um 3.420 kr.

20. brtt. er við 20. gr. Út. V (bygging varðskipa). Þar er lagt að, að fyrir 2.200000 komi: 3.850.000 kr., eða hækkun um kr. 1.650.000. En þetta er vegna gengislækkunarinnar, sem fram hefur farið, vegna þess að þetta verður að greiða í dönskum krónum, og er þetta tillag ætlað til greiðslu á því, sem af þessum byggingarkostnaði þarf að greiða á þessu ári.

Þá er 21. brtt. við 20. gr. VIII. (flugvallagerðir og lendingarbætur fyrir flugvélar), um það, að fyrir 2.500.000 komi: 1.250.000 kr. Þessar brtt. eru teknar upp fyrir mjög sterkar óskir hæstv. fjmrh. Það hafa legið fyrir gögn frá flugráði um þessi mál, þar sem flugráð telur sig ekki geta komizt af með þessa upphæð á þessu ári, og telur, að ef hún ekki verði hækkuð, vofi yfir alvarleg stöðvun í rekstrinum. Það er út af fyrir sig ekki nýtt, að slík ummæli komi frá stofnunum, sem gera kröfur á hendur ríkissjóði. Hins vegar er samkomulag um þessa till. milli hæstv. flugmálaráðh. annars vegar og hæstv. fjmrh. hins vegar. Og fjvn. sá sér ekki fært að ganga á móti því samkomulagi hjá hæstv. ríkisstj. Ég persónulega tel, að það kunni að orsakast mjög mikil vandræði í sambandi við þá lækkun, sem hér er gerð. En hins vegar treysti ég því fullkomlega, að þau vandræði verði leyst af ríkisstj., ef óttazt er, að þetta kynni að einhverju leyti að draga úr flugferðum eða starfsemi flugsins innanlands. Og veit ég, að hæstv. núverandi ríkisstj. muni vera fús til að taka það til athugunar, því að það er ekki á neinn hátt viðunandi, að á meðan lagt er fé til annarra samgangna á landi og ekki er ætlazt til, að þær dragi við sig, þá sé verið að þrengja meir að flugmálunum, en öðrum samgöngumálum landsins. Í því trausti fylgi ég því, að þessi upphæð verði samþ., að ríkisstj. leysi úr þeim vanda, sem ég hef nefnt, ef hann ber að höndum.

Ég vil í sambandi við 13. gr., og að gefnu tilefni, benda á, að hv. þm. Eyf. hafa sótt mjög fast á n. um að hækka eða taka upp nýja fjárveitingu til Ólafsfjarðarvegar við þessa umr. Hafa þeir borið það fyrir sig í því sambandi, að vegamálastjóri hafi lagt til í sínum till., að 50 þús. kr. yrðu teknar upp ,til þess að ljúka við vegagerð á Ólafsfjarðarvegi á þessu ári. En þessi vegur hafði ekkert fjárframlag á síðasta ári, 1949, og var þá talið, að vegagerðinni væri lokið. Nú er það rétt, að vegamálastjóri hefur lagt til, að 50 þús. kr. væru teknar upp á fjárlagafrv. til þess að ljúka vegagerðinni á Ólafsfjarðarvegi. Hann lagði einnig til, að 200 þús. kr. yrðu teknar upp í heild til Eyjafjarðarsýslu til vegagerða. En til þeirrar sýslu höfðu verið lagðar 130 þús. kr. árið 1949. Þegar ákveðin var skiptingin á vegafénu, var ákveðið um það, sem færi til Eyjafjarðarsýslu, að það skyldi vera á valdi þessara hv. þm., hvernig þeir skiptu því fé á milli veganna í sýslunni. Nú var þetta fé hækkað í meðförunum fyrir þessa sýslu í 170 þús. kr., án þess að þetta væri gert almennt. En í þeirra skiptingu var ekkert tekið fram um fé til Ólafsfjarðarvegar. Hins vegar hafa þessir hv. þm. óskað eftir í sinni skiptingu, að tekið væri upp framlag til annarra vega, sem ekki voru á fjárl. og ekki í till. vegamálastjóra, til Hrísavegar 25 þús. kr., til Eyjafjarðarbrautar, sunnan Leynings, 30 þús. kr. og til Laugalandsvegar 25 þús. kr. Þessir vegir eru teknir upp samkv. óskum hv. þm., en ekki samkv. óskum vegamálastjóra. Fjvn. lítur svo á, að það eigi að vera fullt samkomulag milli fulltrúa héraðanna á hverjum tíma og vegamálastjóra og þess ráðh., sem fer með vegamál á hverjum tíma, um það, hvernig unnið er fyrir það fé, sem veitt er til vega til ákveðinna héraða, þannig að leyfilegt sé að flytja framlag frá einum vegi til annars innan héraðs, þegar sýnt þykir, að betri árangur náist með því heldur en með því að vinna á hverjum þeim stað, sem til er tekið í upphafi, fyrir þessar upphæðir. Það ætti að leyfa að flytja á milli einstakra vega innan sömu sýslu, ef hagkvæmara þykir, því að þegar unnið er með stórvirkum vélum, þá fer mikill kostnaður í flutning á vélum og vinnuflokkum, ef lítið er að vinna á hverjum stað. N. litur svo á, að þessum málum innan Eyjafjarðarsýslu sé borgið, ef t.d. fé er tekið frá Hrísavegi eða öðrum til þess að ljúka Ólafsfjarðarvegi. — Þá hefur það verið fast sótt af hv. þm. V-Ísf. að fá á 22. gr. fjárhæð til vegagerðar fyrir botni Dýrafjarðar, en þar er ekki þjóðvegur. Þessari sýslu var úthlutað eins og í fyrra 230 þús. kr. Hafði vegamálastjóri að vísu lagt til að hækka þessa upphæð um 10 þús. kr., en n. gat ekki fallizt á það, og ekki heldur það að bæta þessari heimild ofan á það, sem áður er gert og samkomulag er um. — Í sambandi við ræktunarvegina hefur hv. 1. þm. Eyf. sótt það fast að fá n. til að taka upp hækkað framlag til Hríseyjar úr 4 þús. kr. í 10 þús. kr. N. gat ekki fallizt á þetta, en mun skrifa vegamálastjóra til þess að fá skýr gögn um það, hvaða framkvæmdir er verið að gera í eyjum almennt, og kemur þá í ljós, hvað verið er, að gera í Hrísey.

N. hefur ekki getað samþ. að taka upp aðrar brtt. einstakra þm. Þær hafa allar verið ræddar í n., en hún getur ekki fylgt þeim. Í sambandi við 22. gr. leggur n. til, að 4 þús. kr. verði varið til þess að styrkja afskekkta staði til þess að fá lærðar hjúkrunarkonur, og enn fremur, að heimild sé til að greiða styrki til héraða, sem eru læknislaus meira en þrjá mánuði ársins. Enn fremur, að heimilt sé að veita 5 þús. kr. til að kenna vefnað á Hallormsstað. Þetta var ósk ráðh., og var hún einróma samþ. í n., enda hefur þetta verið í fjárl. undanfarin ár. Þá leggur n. til, að heimilt sé að selja Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda skipasmíðaskála Landssmiðjunnar við Elliðaárvog. Erindi um þetta barst n. frá S.Í.F., og ræddi hv. þm. Vestm. þetta við n. N. samþykkti þetta, en síðan hefur skálinn brunnið að nokkru leyti, og veit n. ekki, hvers virði skálinn er, en hann hefur verið leigður fyrir 30 þús. kr. á ári, og mætti því áætla söluverð hans ca. 500 þús. kr. Þá er lagt til að heimila ríkissjóði að kaupa af Búnaðarfélagi Íslands tilraunastöðina á Sámsstöðum. Ríkissjóður á tilraunastöðvarnar á Reykhólum og Skriðuklaustri, og er eðlilegt, að hann eigi þessa tilraunastöð líka, ef samkomulag næst þar um.

Þetta eru tillögur n., og skal ég nú gefa hv. þm. nokkurt yfirlit yfir það, hvernig málin standa, ef brtt. n. verða samþ. og engar aðrar. Gjöldin voru áður áætluð 242.529.793,00 kr., en samkv. till. n., sem leggur til, að þau hækki um 5.429.680,00 kr., verða þau alls 247.959.473,00 kr. Tekjurnar voru eftir 2. umr. 262.333.919,00 kr., en hækka skv. till. n. um 36 millj. kr. og verða því alls 298.333.919,00 kr., og rekstrarafgangur skv. því 50.374.446,00 kr. Þá er sjóðsyfirlitið. Gert er ráð fyrir, að greiðslur inn nemi 301.243.919, en greiðslur út 283.977.259,00 kr., þannig að hagstæður greiðslujöfnuður verður 17.266.660,00 kr. Það mætti segja, að þetta væri allglæsileg niðurstaða og að takmarkinu um hagstæðan greiðslujöfnuð væri náð, en við þetta er þó því að bæta, að enn hefur ekki verið rætt um nokkra liði, sem hæstv. ríkisstj. hugsar sér að bera fram, m.a. uppbætur á laun opinberra starfsmanna, því að hér var samþ. að veita allt að 20% uppbót á laun opinberra starfsmanna, þar til fjárlög væru samþ. Þetta hefur ekki verið tekið inn á fjárlög, enda voru 6 af 9 nm. í fjvn. andstæðir þessu, og þeir eru ekki fúsir til að taka upp brtt. um það. Enn er ekki fullrætt um 16. gr. í sambandi við raforkuna, en hæstv. fjmrh. hefur tilkynnt, að ríkisstj. hafi ekki hugsað sér að hækka útgjöldin á 16. gr., heldur aðeins leita heimildar til lántöku til þess að fullgera nauðsynlegustu framkvæmdir í raforkumálum. Það má því búast við, að þessi hagstæði greiðslujöfnuður, sem nú er á frv., muni hverfa að einhverju leyti af þeim orsökum, sem ég hef lýst, og þá er það embættismannastéttin, sem hjálpar til þess að torvelda það að ná því markmiði, sem að er stefnt. Venjulega er það svo, að útgjöldin fara fram úr áætlun, og verður því að gæta allrar hagsýni við afgreiðslu frv.

Út af 11. gr. vil ég minna á það, að n. hefur rætt allýtarlega, hvort ekki væri ástæða til að bera fram brtt. við 12. lið, þar sem er kostnaður við verðlagseftirlit, sem er áætlaður 2.601.000,00 kr., og kostnaður við skömmtunarskrifstofu, sem er 895 þús. kr. N. þykja þessir liðir ískyggilega háir, og er full ástæða til að reyna að koma í veg fyrir þessa þróun. Ekki virðist ástæða til þess, að kostnaðurinn við skömmtunarskrifstofuna sé svo mikill, þegar felld hefur verið niður skömmtun á sumum vörum, og vandalítið ætti að vera að minnka kostnaðinn við verðlagseftirlitið. En þetta hefur í framkvæmdinni verið allt öðruvísi en n. lagði til, og hafa ábendingar hennar verið að engu hafðar, en hún leyfir sér að vænta þess, að þessir kostnaðarliðir verði ekki svo háir í framtíðinni.

Þá er búizt við, að hæstv. ríkisstj. gefi, áður en umr. lýkur, yfirlýsingu um almennan sparnað í ríkisrekstrinum. Í trausti þess, að því fylgi ákveðnar framkvæmdir um að draga úr ýmsum kostnaði. svo sem við embættismannahald, rekstur sérleyfisferða, rekstur Silfurtúns, sem n. leggur til, að verði hætt, og fleira — í trausti þess, að þetta allt verði tekið til alvarlegrar athugunar, þá hefur n. ekki gert sérstakar till. um þessi efni, en n. væntir þess, að þetta verði allt fært í betra horf, því að án þess að ná árangri í sparnaði á ríkisrekstrinum er ekki hægt að ná sparnaði í afgreiðslu fjárl. almennt. Sé ég svo ekki ástæðu til þess að ræða málið frekar á þessu stigi.