10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)

38. mál, fjárlög 1950

Áki Jakobsson:

Það er víst óhætt að segja, að sjaldan hefur almenningur í þessu landi verið meira uggandi um afkomuna, um það að geta fengið að halda vinnu við sæmilegu kaupi. er tryggi honum góða afkomu, heldur en nú. Ráðamenn þjóðfélagsins hafa lagt sig fram til þess að skapa vonleysi og úrræðaleysi, skapa svartsýni, sem mundi gera þeim léttari leikinn að svipta alþýðuna þeim hagsbótum, sem hún með samtökum sínum hefur áunnið sér á undanförnum áratug. Hinn skipulagði bölsýnisáróður valdamannanna gengur allur út á það, að hrun og atvinnuleysi sé óhjákvæmilegt og stafi af atvikum, sem við Íslendingar getum engin áhrif haft á. Jafnhliða þessu er svo reynt að etja einum hluta alþýðunnar gegn öðrum, útvegsmönnum og bændum er sagt, að erfiðleikar þeirra stafi af of háum launum, en launafólki er sagt, að erfiðleikarnir stafi af því, að bændur fái of mikið fyrir sitt og að útvegsmönnum sé haldið uppi með ríkisstyrkjum. Þannig gengur áróðurinn af hálfu þeirrar auðmarmannaklíku, sem hreiðrað hefur um sig í Íhaldsflokknum, sem hefur tryggt sér bandamenn bæði í Framsókn og Alþýðuflokknum, sem hefur gert henni fært að drottna yfir ríkiskerfinu og nota það á svo ófyrirleitinn hátt til hagsmuna fyrir sig, að helzt minnir á þá spillingu, sem þróaðist í Kína á síðustu valdaárum afturhaldsins þar. Þessi auðmannaklíka stefnir nú að því að rýra kjör alþýðunnar í landinu til að viðhalda gróðamöguleikum sínum. Hún veit, að hún hefur ekki afl til að ráðast framan að samtökum launþega og lækka kjörin þannig. Sama er að segja um bændur og smáútvegsmenn. Það hefði ekki þýtt að lækka afurðir bænda án annarra aðgerða eða lækka fiskverð til útvegsins á sama hátt. Samtök þessara stétta hefðu hindrað það. Til þess að koma fram launalækkunum og kjaraskerðingum er á skipulagðan hátt komið á öngþveiti í atvinnumálum og fjármálum, rekinn harðvítugur áróður um, að vandræðin stafi af óviðráðanlegum ástæðum, til þess að lama öll samtök gegn aðgerðum, svo sem vísitölubindingu, stórfelldum skattálögum og gengisfellingu, sem allar veita yfirstéttinni hið sama og beinar launalækkanir og lækkun á afurðaverði bænda og útvegsmanna.

Gengislækkun sú, sem núverandi stjórnarflokkar framkvæmdu, er stórfelldasta ráðstöfun til að rýra kjör alþýðunnar í landinu. sem nokkurn tíma hefur verið gerð. Auk þessa markar gengislækkunin þáttaskil í íslenzkum stjórnmálum. Hin drottnandi auðmannastétt leggur með gengislækkuninni út af braut venjulegra ráðstafana og grípur til beinna fjárglæfra í þeirri von að geta með því móti tryggt sér áframhaldandi völd og gróðamöguleika. Sagan þekkir mörg dæmi slíkrar glæframennsku, er spilltar valdastéttir gripa til þess ráðs, í viðleitni sinni að halda við völdum sínum og gróða, og er þá handhægt að leysa vandamálin, sem af gengisfellingunni leiddi, með nýjum gengislækkunun. Þannig getur gjaldmiðillinn á skömmum tíma orðið einskis virði, með öllum þeim truflunum og þjáningum, sem því fylgir fyrir allan almenning. Það er algengara, þegar gripið hefur verið til glæframennsku eins og stórfelldrar gengisfellingar, að þeir, sem til hennar grípa, geta ekki stöðvað sig og grípa til sömu ráðstöfunar æ ofan í æ.

En af hverju vogar auðmannastéttin sér inn á gengislækkunarbrautina? Af hverju hindrar ekki alþýðan í landinu þessa þróun mála? Skýringin er í stuttu máli sú, að frá því í ársbyrjun 1947, þegar stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar tók við völdum, hefur öll þróun í atvinnu- og fjármálum verið sveigð í þann farveg, sem leitt hefur til hinnar glæfralegu gengislækkunar, enda lauk sú stjórn ferli sínum með beinni gengislækkun, er sterlingspundið var fellt gagnvart dollar í haust. Þá lenti það í hlut Emils Jónssonar að lofsyngja gengislækkun og blessun hennar fyrir þjóðina, og nú eru orð hans óbreytt hagnýtt af gengislækkunarpostulunum til að vegsama hina sérstöku íslenzku gengislækkun, sem nú hefur verið framkvæmd.

Að sjálfsögðu eiga Íslendingar við ýmsa erfiðleika að stríða, sem ekki verða leystir, nema þjóðin sé samtaka um það. Þessir erfiðleikar stafa af aflaleysi á undanförnum fimm síldarvertíðum og dýrtíð í landinu og nú síðast, og það eru langsamlega mestu erfiðleikarnir sem þjóðin á við að stríða, af markaðstregðu. Þegar gengi íslenzku krónunnar var fellt á þessum vetri, voru höfuðvandamálin markaðsvandræði, sem ekki stöfuðu nema að mjög litlu leyti af of háu verði íslenzkra útflutningsvara, heldur af því, að þær þjóðir, sem við höfum einstrengingslega bundið viðskipti okkar við á undanförnum árum, hafa aukið svo sjávarútveg sinn, að þær vilja ekki kaupa af okkur þessar vörur á nokkru verði. Á þetta við einkum um ísfisk togaranna og hraðfrysta fiskinn og raunar ýmsar aðrar vörur. Þetta vandamál verður ekki leyst með gengisfellingu, eins og reynslan er nú að sýna.

Einmitt vegna þess, að þjóðin á nú við ýmsa örðugleika að stríða, hefur auðmannastéttin, sem tekizt hefur að hrifsa til sín öll völd í þjóðfélaginu, átt léttara með að villa um fyrir almenningi og telja fólki trú um, að aðgerðir eins og gengislækkunin hafi verið nauðsynlegar og að með þeim sé verið að leysa vandann. Það er því framar öllu nauðsynlegt, að landsmenn hugleiði þessi mál æsingalaust og reyni að gera sér hlutlæga grein fyrir þeim erfiðleikum, sem þjóðin á við að stríða, til þess að geta dæmt um þær aðgerðir, sem nú er verið að framkvæma, og afleiðingar þeirra fyrir þjóðina og atvinnulíf hennar bæði í bráð og lengd.

Það er gömul og reynd aðferð yfirstéttar, sem er orðin hrædd um völd sin, eignir og gróðamöguleika, að villa um fyrir alþýðunni, beina athygli fólksins að einskisverðum hlutum, á meðan verið er að færa það í fjötra fátæktar og atvinnuleysis. Sá gegndarlausi áróður, sem nú er rekinn gegn Sovétríkjunum og þeim þjóðum öðrum, sem komið hafa á hjá sér sósíalistísku atvinnuskipulagi, er ætlaður sá tilgangur að upptaka hugi þjóðarinnar, meðan auðmannastéttin er að treysta völd sín og gróðamöguleika.

Með myndun stjórnar Stefáns Jóh. Stefánssonar, en í þeirri stjórn markaði flokkur auðmannanna, Íhaldsflokkurinn, algerlega stefnuna, hóf auðmannastéttin árásir á launakjör og lífsafkomu alþýðunnar í landinu. Í þeirri stjórn voru Alþfl. og Framsókn aðeins hjálparkokkar auðmannastéttarinnar, sem nú hugðist skapa „normal“ ástand, eins og það var kallað, þ.e. lækka launin og skapa hæfilegt atvinnuleysi, til þess að tryggt væri, að auðmannastéttin gæti haft atvinnuleysisvofuna sem bandamann í baráttunni við samtök launþega.

Nýsköpuninni var hætt eins ört og kostur var, bæði með fjárhagsráðslögunum og með því að bankarnir stöðvuðu útlánastarfsemi til byggingarframkvæmda. Á hverju ári voru tollar og aðrar álögur á alþýðuna hækkaðar um milljónatugi, svo að alls mun stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar hafa aukið tolla og nefskatta um á annað hundrað milljónir króna. Samningar launþega við atvinnurekendur voru ógiltir með lögum um bindingu vísitölunnar við 300 stig. Í fyrstu þýddi þetta 8% launalækkun, sem fór hækkandi eftir því sem vísitalan hækkaði. Fyrir aðgerðir þessarar stjórnar lækkuðu raunverulegar tekjur launþega sí og æ, og var svo komið s.l. vor, að stjórnarflokkarnir urðu að viðurkenna þetta með því að samþykkja með sósíalistum 20% launahækkun til opinberra starfsmanna. Jafnhliða vaxandi verðbólgu undir stjórn Stefáns Jóhanns óx skriffinnskubákn ríkisins svo gífurlega, að engin dæmi eru til slíks áður.

Í markaðsmálum var gerbreytt um stefnu, í stað þess að leitast við að hafa markaði bæði í vestri og austri, eins og nýsköpunarstjórnin hafði gert. Fyrst eftir að stjórn Stefáns Jóh. settist að völdum, leit út fyrir, að hún ætlaði að fylgja sömu stefnu í markaðsmálum og fyrirrennari hennar. Nefndir voru sendar til samninga bæði til London og Moskva, og tóku allir flokkar þátt í þeim nefndum. Þrátt fyrir það þó sósíalistar væru í stjórnarandstöðu, voru þeir fúsir til samstarfs um að viðhalda þeim mörkuðum, sem unnizt höfðu, og afla nýrra. Þetta samstarf bar góðan árangur. Nefndirnar, sem sendar höfðu verið út, komu báðar heim með samninga, sem eftir atvikum voru sæmilegir. Þá var fyrir árið 1947 gerður samningur við Sovétríkin um sölu á íslenzkum afurðum fyrir um 90 millj. kr. En friður um markaðsmálin stóð ekki lengi. Skömmu eftir heimkomuna var Lúðvík Jósefssyni vikið úr samninganefnd utanríkisviðskipta fyrir „trúnaðarbrot“, að því er Bjarni Benediktsson tilkynnti, þótt hann gerði enga tilraun til að finna orðum sínum stað. En þetta nægði Bjarna ekki, heldur byrjaði hann furðulegan áróður um viðskiptin við Sovétríkin. Framkoma þessi er sennilega einstæð af utanríkisráðherra að vera. Ég ætla ekki að fara að rekja hér allt hið furðulega háttalag utanrrh. okkar í framkomu við þjóð, sem við höfðum hag af að halda viðskiptum við. En árangurinn af starfi hans er kominn á daginn. Sovétríkin, sem gerðu samninga um kaup á útflutningsvörum Íslendinga fyrir um 60 millj. kr. 1946 og um 90 millj. kr. 1947, hafa ekki óskað eftir að tala við Bjarna Benediktsson eða sendimenn hans síðan, en þjóðin situr eftir með hraðfrystan fisk og fleiri vörur, sem hún getur ekki selt. Það er ástæðulaust að hafa sterk orð um störf Bjarna Benediktssonar að markaðsöflun. Í því efni mun þjóðin dæma hann eftir verkunum.

Þriggja flokka stjórnin var komin í þrot seinni part s.l. sumars. Dýrtíðin var vaxin henni upp yfir höfuð, þrátt fyrir þær óheyrilegu byrðar, sem á alþýðuna höfðu verið lagðar, ísfiskmarkaðurinn hrundi og ýmis teikn á lofti bentu til vaxandi markaðsörðugleika, skriffinnskubáknið hafði vaxið með risaskrefum, gjaldeyrisskortur, vöruskortur og svartur markaður meiri en áður hafði þekkzt, en kosningar svo skammt undan, að stjórnin áræddi ekki að gera nýjar stórárásir á alþýðu landsins. Þá gripu stjórnarflokkarnir til hins gamalþekkta ráðs að stofna til nýrra kosninga, kosninga sem ekkert voru annað en sjónleikur, eins og viðburðirnir eftir kosningar hafa sýnt. Hver flokkur bar af sér. Öngþveitið, sem samstjórn Stefáns Jóh. hafði komið á, var hinum að kenna. Með þessu móti tókst auðmannastéttinni að komast klakklaust yfir kosningarnar og gat nú tekið til óspilltra mála við að undirbúa nýjar árásir á almenning í landinu, í skjóli þess að nú væru 4 ár til næstu kosninga.

Alþfl. fór svo illa út úr kosningunum. að hann áræddi ekki að vera með í stjórn eftir þær, en það gerði auðmönnunum ekki mikið, því að foringjar Alþfl. voru búnir að gera sitt gagn í ríkisstjórn í bili. Þeir voru með forustu fyrir samstjórninni búnir að undirbúa stórárásina, gengislækkunina, sem auðmannastéttin hafði lengi látið sig dreyma um. Eftir kosningar myndaði íhaldið flokksstjórn, sem lét fara að semja gengislækkunarfrv., er talið var í áróðri afturhaldsins að mundi leysa öll vandamál þjóðarinnar, auka útflutningsverðmætið, skapa jafnvægi í eftirspurn og framboði gjaldeyris og „frjálsa verzlun“, sem er þó það, sem auðmannastéttin hræðist mest af öllu.

Eftir að minnihlutastjórn íhaldsins var búin að leggja fram gengislækkunarfrv., sá Framsfl. ekki lengur ástæðu til að vera feiminn við að fara í samstjórn með íhaldinu.

Fyrir kosningar hafði Framsókn látið í það skina, að hún gæti hugsað sér gengislækkun sem lausn á vandamálum þjóðarinnar, en hún tók það ætíð fram, að hún gengi ekki inn á gengislækkun, nema gerðar væru „vissar hliðarráðstafanir“. Á þessu var hamrað, en þess vandlega gætt að gefa ekki nánari skýringar, við hvaða hliðarráðstafanir væri átt. Eftir að Framsókn gekk til samvinnu við íhaldið um gengislækkun, hefur ekkert heyrzt af þessum hliðarráðstöfunum, en almenningur í landinu er farinn að verða var við ýmis hliðaráhrif gengislækkunarinnar, og eru þar allir í sama báti, verkamenn, bændur og útvegsmenn, en það eru hinar gífurlegu verðhækkanir, sem skella nei yfir landið hver af annarri og gefa til kynna, að ný dýrtíðarflóðbylgja sé að rísa, stórkostlegri en þjóðin hefur áður þurft að mæta.

Hvernig kemur svo gengislækkunin niður á hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins? Verkafólk og launþegar verða fyrir mestum búsifjum vegna gengislækkunarinnar. Hagfræðingar þeir, sem undirbjuggu gengislækkunarfrv., telja, að verðhækkun sú, sem af gengislækkuninni stafar, muni nema 11–13%. Hagfræðingur Landsbankans taldi, að verðhækkunin mundi verða 15–18%, en ef tekið er tillit til tvenns, í fyrsta lagi hækkunaráhrifa vegna gengislækkunarinnar gagnvart dollar í haust og aukinna tolla, sem nýlega hafa verið lögfestir, þá er ekki óvarlegt að segja, að verðhækkunin muni nema 20%, og rýrir það kaupmátt launanna að sama skapi.

Áður en gengislækkunin var lögfest, var allt vöruverð að mjakast upp, og var enn einu sinni að sækja í það horf, að verkafólk gat ekki látið tekjur sínar nægja fyrir nauðþurftum sínum. Launahækkun sú, er verkalýðsfélögin knúðu fram á s.l. sumri, er með þessu gerð að engu, og verkafólk er aftur sett í þau vandræði, sem það var í í fyrravor.

Opinberir starfsmenn fóru í fyrravetur fram á 36% launahækkun til þess að mæta vaxandi dýrtíð. Áður en þ. var slitið í fyrravor, var samþykkt að greiða þeim í uppbætur seinni partsins 1949 20% álag á kaup. Þessi samþykkt var endurtekin með samþykkt Alþ. á þessu þ. Nú hefur gengislækkunin strikað þessa hækkun út, svo að nú standa opinberir starfsmenn í sömu sporum og þeir stóðu í fyrravor. Ekki skil ég, að þeim verði nein huggun í því að vita, að formaður samtaka þeirra, Ólafur Björnsson, var annar hagfræðingurinn, sem undirbjó þessa lausn málanna, að árangurinn af löngu starfi samtaka þeirra er strikaður út með einu pennastriki.

Kaup sjómanna á togaraflotanum var lækkað sérstaklega við gengisfellinguna. Það kemur fram í því, að nú verða þeir að kaupa þau 30 pund (sterling), sem þeir eiga rétt á að fágreidd í erlendri höfn, á hinu nýja gengi, sem er 74,3% hærra en áður. Hins vegar er aflaprósentan reiknuð á gamla genginu. Þetta þýðir um 400 kr. lækkun í túr umfram þá kauplækkun, sem stafar af verðhækkun í landinu, sem lendir á sjómönnum eins og öðrum.

Þetta eru áhrif gengislækkunarinnar á afkomu launþega. Vísitölubindingin lækkaði launin um 8%, en með gengislækkuninni eru launin lækkuð um rösklega helmingi meira. Vísitölubindingin, sem rýrði tekjur launþega um ca. 50 millj. króna árlega, átti að lækna öll okkar vandamál á sviði fjárhags- og atvinnumála. Reynslan hefur orðið þveröfug. Þessi mikla fórn launþeganna hefur til einskis orðið, og dýrtíðin hefur ekki lækkað, heldur vaxið stórkostlega. Gengislækkunin er helmingi þyngri fórn en vísitöluskerðingin, fórn, sem formælendur hennar telja að muni laga öll fjárhagsvandamál þjóðarinnar. Reynslan mun sýna, að gengislækkunin leysir engin vandamál, heldur gerir hún þau torleystari og skapar ný vandamál.

Það er vert að minna á það hér, að samtök launþega þurfa nú að vera á verði, því að með gengislækkuninni hefur löggjafinn enn einu sinni seilzt ofan í vasa launþegans og rænt hann árangrinum af baráttu samtaka hans og afhent hann auðmannastéttinni. Þessum mönnum er ætlað að hindra baráttu samtakanna gegn gengislækkuninni og öðrum árásum á lífskjör launþeganna. Þeim er ætlað það hlutverk að draga lokur frá dyrum, þegar orrustan hefst. Í þessu efni er sérstök ástæða fyrir verkalýðssamtökin að vera vel á verði.

Í gengislækkunarlögunum eru settar nýjar vísitölureglur, sem eru í stuttu máli samdar með það fyrir augum, að þær veiti launþegum enga kauphækkun. Reglur þessar eru í rauninni ekki annað en brella, sem aldrei getur sýnt nema hluta af þeirri verðhækkun, sem verða kann. Þrátt fyrir það er svo ákveðið, að uppbótum skv. henni skuli lokið 1. júlí 1951. Launþegar geta ekki vænzt neinnar leiðréttingar á kjaraskerðingu gengislækkunarinnar vegna hinnar nýju vísitölu. Þeir hafa eingöngu samtök sín til að treysta á.

Gengislækkunin kemur einnig mjög hart niður á bændum. Þýðingarmiklar rekstrarvörur, svo sem fóðurbætir, útlendur áburður, benzín og varahlutir til véla, hækka um 75%. Þetta veldur bændum miklum áhyggjum og getur orðið til þess að stórminnka framleiðslu landbúnaðarvara. Einkum veldur gengislækkunin því, að aukin vélanýting í landbúnaðinum stöðvast að mestu leyti eða alveg.

Gengislækkunarpostularnir viðurkenna, að gengislækkunin krefjist fórna af launþegum og bændum, en þeir segja: Þetta er gert til þess að létta undir með sjávarútveginum og gera rekstur hans mögulegan. Það er ekki í fyrsta sinn, sem sjávarútvegurinn hefur verið notaður sem yfirvarp, þegar nýjar álögur eru lagðar á almenning. Í s.l. þrjú ár hafa verið lagðir á almenning tollar og nefskattar, er numið hafa frá 30–50 millj. í hvert sinn, alltaf til þess að standa straum af fiskábyrgðinni. Á árinu 1949 námu þessar álögur samtals 120 millj. kr. Það ár varð fiskábyrgðin hæst og nam þá röskum 40 millj. kr. Það, sem umfram var þessar álögur, var horfið í hin síauknu rekstrarútgjöld ríkisins.

Það er rétt að athuga nokkru nánar, hvernig gengislækkunin bjargar sjávarútveginum. Togaraútgerðin er sennilega eini þáttur sjávarútvegsins, sem hagnast á gengislækkuninni, enda lækka laun skipverja á togurum miklu meira en laun annarra launþega, og mátti þó engu á þá bæta. Togarahásetar eru nú tvímælalaust lægst launaða verkafólk á Íslandi, með 1.800–2.000 kr. laun á mánuði fyrir 16 klst. vinnu á dag. Ef miðað er við tímakaup, eru togarahásetar á helmingi lægra kaupi, en verkamenn í landi. Sér hver maður, að við svo búið má ekki standa. En þrátt fyrir gengislækkunina eru togararnir í vandræðum, vegna þess að enginn öruggur ísfiskmarkaður er til fyrir þá. Ríkisstj. stendur uppi eins og þvara, verðið svo stopult á enska markaðinum, að honum er ekki að treysta, vesturþýzki markaðurinn glataður að mestu og engir nýir markaðir fyrir hendi. Í öllu því mikla brambolti, sem verið hefur á utanrrh. aðkoma Íslandi inn í Marshallsamninginn, Atlantshafsbandalag og Evrópubandalag, hefur hann gleymt eða ekki tekizt að fá þessa „bandamenn“ okkar og „vini“, hinar vestrænu „lýðræðisþjóðir“, til að láta okkur í té markaði fyrir afurðir okkar. Ég held, að hann hefði átt að láta hernaðinn eiga sig og einbeita sér að því, sem er aðal- og raunar eina verkefnið, sem íslenzkur utanrrh. hefur, að afla markaða fyrir sjávarafurðir okkar.

Þá er að athuga bátaútveginn, sem er þýðingarmesti þátturinn í útflutningsframleiðslu þjóðarinnar. Verðið á fiski bátaútvegsins er nú 75 aurar, en í Noregi er samsvarandi verð 104 aurar. Ef verðlagið hefði verið eina vandamál útvegsins, þá ættum við nú að geta selt allar okkar sjávarafurðir, því að Norðmönnum hefur tekizt að selja alla fiskframleiðslu sína og hefðu getað selt meira. En því er ekki að heilsa. Við sitjum. uppi með vöru, sem við höfum enn ekki getað selt, svo sem hraðfrystan fisk, og óvíst, hvað um þá framleiðslu verður. Fyrir gengislækkunina fékk bátaútvegurinn 75 aura fyrir kg af fiski og að auki vátryggingarstyrk, sem nam 10 aurum á kg fyrir útgerðina. Hagfræðingar þeir, sem hafa undirbúið gengislækkunarl., töldu, að bátaútvegurinn ætti að fá 93 aura fyrir kg eftir gildistöku laganna. En hver hefur reyndin orðið? Ríkisstj. hefur ekkert gert til þess að standa við fyrirheit hagfræðinganna, þvert á móti. Vátryggingarstyrkurinn var afnuminn, og verð á olíum og veiðarfærum hækkaði strax um 75% og allar erlendar vörur til útgerðar smátt og smátt un1 sömu upphæð. Útvegsmaður í Vestmannaeyjum birti fyrir skömmu í blaðinu Víði útreikning um aukinn kostnað vélbáts, sem fiskar með línu og þorskanetum, og kemst að þeirri niðurstöðu, að kostnaðaraukinn sé um 55 þús. kr. á bát, og nemur hann um 14 aurum á kg af fiski. Þessi útreikningur er áreiðanlega ekki fjarri lagi, en þá er 75 aura fiskverðið, sem nú gildir, farið að samsvara 61 eyris verði fyrir gengisfellinguna. Þar að auki er 75 aura verðið alls ekki lögákveðið og getur lækkað hvenær sem er. Eftir þeim rannsóknum, sem fram hafa farið, er það staðreynd, að með þessu verði getur rekstur bátanna ekki borið sig. Sá bátur, sem hefur á þeirri vertíð, sem nú er að ljúka, fiskað 500 skippund, eftir að gengislækkunin var gerð, hefur þannig tapað á þeirri veiði ekki minna en 50 þús. kr. frá því, sem hann hefði haft annars. Þegar fiskábyrgðin var lögfest í byrjun janúar, samþykkti þ. 75 aura verð sem það lægsta verð, er hugsanlegt væri, að bátarnir gætu komizt af með, og þó raunar ekki, enda var samþ. að veita vátryggingarstyrk. Við það var miðað, að veiði yrði góð. Nú hefur veiði orðið með lélegra móti víða og hér í Faxaflóa mjög léleg, svo að fyrirsjáanlegt er stórtap á bátaútveginum beinlínis vegna gengislækkunarinnar. Þessi nýju töp verða óhjákvæmilega til að draga úr rekstri bátaflotans og þar með minnka útflutningsframleiðsluna: Fiskábyrgðin er afnumin með gengislækkuninni þrátt fyrir það, þótt hún veiti bátaútveginum, sem yfirleitt selur allan afla sinn innanlands og ræður engu um sölu hans á erlendum markaði, enga þá tryggingu fyrir öruggum rekstri, sem fiskábyrgðin gerði. Þetta öryggisleysi, ofan á raunverulega mikla verðlækkun á fiskinum vegna gengisfellingarinnar, mun setja bátaútveginn í svo mikinn vanda og erfiðleika. að fullkomin stöðvun vofir yfir, ef ekki verður úr bætt.

Alþýðan í landinu hefur kynnzt aðferðum afturhaldsins á undanförnum árum við að rýra afkomu hennar. Löggjafarvaldinu og ríkisvaldinu er beitt miskunnarlaust gegn alþýðunni og samtökum hennar. Þótt atvinnurekendur séu með samningum búnir að skuldbinda sig gagnvart samtökum launþega, blandar ríkisvaldið sér inn í þá samninga og ævinlega til að rýra hlut alþýðunnar til ágóða fyrir auðmennina. Þetta átti sér stað, þegar vísitalan var stýfð af stj. Stefáns Jóh. Gengislækkunin er miklu stórfelldari árás á almenning í þessu landi. Þegar svo er komið, að allur sá árangur, sem verður af störfum hagsmunasamtaka alþýðunnar, bæði verkalýðsfélaganna og samtaka bænda og útvegsmanna, er með aðgerðum ríkisvaldsins þurrkaður út, eins og gert hefur verið nú með gengislækkuninni, verða menn að gera sér ljóst, að alþýðan hefur ekki hagnýtt sér þá möguleika, sem hún hefur til að ráða skipun Alþ. Gengislækkun hefur lengi verið óskadraumur auðmanna, en þeir þorðu ekki að framkvæma hana, fyrr en eftir síðustu kosningar. Það var ekki hvað sízt velgengni Framsfl., sem gaf afturhaldinu kjarkinn. Sá flokkur lét beinlínis í það skina, að hann vildi fella gengið. Hinir mörgu launþegar í Reykjavík og víðar um land, sem létu blekkja sig til fylgis við þann flokk, ættu nú að yfirvega það í næði, hvort þeir teldu aðgerðir flokksins að loknum kosningum vera í samræmi við það, sem vonir þeirra stóðu til, er þeir léðu honum fylgi sitt.

Á undanförnum þrem árum hafa laun fólks stöðugt farið lækkandi, því að þær hækkanir, sem knúðar hafa verið fram, hafa eingöngu verið til að vega upp á móti aukinni dýrtíð, en ætið hefur Alþ. lagzt á sveif með auðmönnunum og þurrkað út áhrif hækkunarinnar. Þannig hefur stöðugt sigið á ógæfuhliðina fyrir launþegum. En þetta stafar af því, að of fáir launþegar gera sér það fyllilega ljóst, að þeir þurfa að heyja hagsmunabaráttu sína ekki einasta með samtökum sínum, heldur einnig við kosningar, til að tryggja, að skipun Alþ. verði þannig, að ekki sé hægt að beita því jafnmiskunnarlaust gegn alþýðunni í landinu og gert hefur verið að undanförnu.