11.05.1950
Sameinað þing: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (1162)

38. mál, fjárlög 1950

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Fáir hygg ég trúi því, að málum Íslendinga væri betur borgið eða betur komið nú, þó að hv. þm. Siglf. eða hv. síðasti ræðumaður hefði setzt í sæti utanrrh. Ekki er þetta sagt til lofs ríkisstj. eða þeim manni, sem með utanríkismálin fer, heldur til að minna á þá staðreynd, hverjum kommúnistar þjóna í hverju landi sem er, og læt ég svo útrætt við þá heiðursmenn.

Þessar eldhúsumræður eru að því leyti einkennilegar, að svo virðist sem stjórnarfl., gengislækkunarfl., í stað þess að reyna að réttlæta gerðir sínar og skýra frá stefnu sinni, ætli sér nú að bera elda að Alþfl. og kenna honum um allt, sem miður fer. Það er sérstaklega tvennt, sem borið er fram honum til áfellis. Fyrst það, að hann hefði sett allt á höfuðið, gert allt til bölvunar og hlaðið skuldum á ríkissjóð, á meðan hann tók þátt í stjórn. Hitt er það, að nú vilji hann ekki með nokkru móti vera með á stjórn og bjarga föðurlandinu með gengislækkun. Hann er ásakaður um tvennt í senn, að þjóna íhaldinu og yfirbjóða kommúnista, og þetta hvort tveggja samtímis. Svona eru rökin. Eitt rekur sig á annars horn. Ég fæ nú ekki skilið, ef gengislækkunarmennirnir trúa því sjálfir, sem þeir hafa sagt um gerðir Alþfl.ráðh. fyrr í ríkisstj., hvers vegna þeim ætti að vera það mikið keppikefli að fá Alþfl. með sér í ríkisstj., nema þá ef vera skyldi til þess að geta kennt honum um sínar eigin ávirðingar og komið á hann sök af þeim framkvæmdum, sem ráðh. þeirra einir bera ábyrgð á og eiga að bera ábyrgð á. En til slíks leiks er Alþfl. með öllu ófáanlegur. Ástæðan til þess, að hann vill ekki taka þátt í þessari hæstv. ríkisstj., er í stuttu máli sú, að stefna hennar, stefna gengislækkunarflokkanna, er þveröfug við það, sem Alþfl. telur rétt og þjóðinni fyrir beztu.

Hæstv. landbrh. sagði í ræðu sinni í gærkvöld, að stefnuskrá Alþfl. og Framsfl. væru svo líkar og hagsmunir kjósenda í báðum þessum flokkum svo sameiginlegir, að ef við það væri miðað, ætti að vera auðvelt fyrir þessa flokka að koma sér saman um lausn allra vandamála. Þess vegna kvaðst hann hafa boðið Alþfl. samstarf um að mynda minnihlutastjórn, „sem léti skeika að sköpuðu“, en semdi ekki um mál eða framgang mála, og síðan skyldu þessir tveir flokkar ganga saman til kosninga í bandalagi, en allt hafi þetta strandað á íhaldsþjónkun Alþfl. og yfirboðum hans yfir kommúnistafl. Hitt nefndi hæstv. ráðh. ekki einu orði, að slík minnihlutastjórn gat ekkert gert, alls ekkert, og að kosningabandalag tveggja flokka, þar sem annar vildi koma á gengislækkun, en hinn afstýra gengislækkun, var með öllu óhugsandi. — Hæstv. forsrh. fórust þannig orð í gærkvöld, að hann áliti samstarf Alþfl. og Framsfl. nauðsynlegt, en hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum, þegar Alþfl. barðist gegn gengislækkun og varaði við afleiðingum hennar. Ég er sammála hæstv. forsrh. um það, að nánara samstarf Alþfl. og Framsfl. sé æskilegt og nauðsynlegt, og að hagsmunir meginþorra kjósenda þessara fl. séu bezt tryggðir með því, að þessir flokkar geti átt samleið, ef rétt er og viturlega á málum haldið. En við slíkt samstarf er ekki unnt að „láta skeika að sköpuðu“ um afgreiðslu mála, eins og hæstv. landbrh. orðaði það. Þvert á móti, það er nauðsynlegt skilyrði til þess að samstarfið komi að gagni, að samkomulag sé um, hvað gera skuli, og hugur fylgi máli frá báðum hliðum. Og hvernig áttu þessir flokkar að ganga til kosninga í bandalagi eftir að hafa myndað minnihlutastjórn, sem jafnskjótt hefði orðið að rjúfa þing, þegar annar flokkurinn vildi ganga til kosninga til að knýja fram gengislækkun, hinn vildi halda áfram uppbótagreiðslum og taka upp landsverzlun til að afnema milliliðagróða og fá framkvæmanlegt og fullkomið verðlagseftirlit? Orð hæstv. ráðh. eru því út í bláinn sögð og markleysa ein. Þar fylgir ekki hugur máli. Þegar möguleikar hins vegar opnuðust fyrir samstarfi við Sjálfstfl., þá fylgdi athöfnin fljótlega orðum og þá fylgdi hugur máli hjá hæstv. landbrh. - Ég vil leyfa mér að víkja aftur orðum að hæstv. forsrh. Það kann að vera, að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna afstöðu Alþfl. En hitt veit ég einnig með fullri vissu, að hann hefur orðið fyrir vonbrigðum af sínum eigin flokki. Hann er ekki einn um það. Mér og Alþfl. öllum eru, það mikil vonbrigði, hvaða afstöðu Framsfl. tekur til ýmissa mála hér á Alþ. Ég skal nefna al~eins eitt dæmi. Fyrir þessu þingi liggur frv. um breyt. á almannatryggingal. og viðauka við þau. Frv. er samið af milliþn. og mjög rækilega undirbúið. Efni þess er í höfuðdráttum þetta: Bætur til þeirra, sem verst eru settir, eru hækkaðar nokkuð og nýjum bótaflokkum bætt við, meðal þeirra eru dánarbætur til gamalla manna og ekkna og mæðralaun til einstæðra mæðra með 2 börn eða fleiri. Öllum þessum till. er mjög í hóf stillt og miðað við, að tekjustofnar Tryggingastofnunarinnar nægi til að standa straum af þessum viðbótum, án þess að hækka þá. Breytingarnar kosta því þá, sem greiða til trygginganna, ekkert umfram það, sem nú er greitt. Enn fremur er í frv. gert ráð fyrir að greiða uppbætur á ellilífeyri og hliðstæðar bætur, svo að hækkanirnar frá 1946–47 verði hinar sömu, — ekki að hálfu, eins og einn ræðumaður sagði hér, — heldur hinar sömu og hækkanir, sem opinberir starfsmenn hafa fengið á laun sín síðan 1. júlí 1949. Enn fremur er gert ráð fyrir, að framlag hins opinbera til sjúkrasamlaga hækki nokkuð til móts við það, sem iðgjöldin hljóta að hækka vegna hækkana á, lyfjum, sjúkrahúsvist o. fl. vegna gengisl. og vegna hækkana á læknakostnaði. Þetta frv. gekk greiðlega gegnum hv. Ed., var samþ. þar með samhljóða atkv., svo og við 1. umr. í hv. Nd. En rétt á eftir tók hæstv. núverandi stj. við völdum. og samkv. hennar ósk hefur þetta frv. legið óhreyft í n. í Nd. í 2 mánuði, og í dag er mér tjáð, að ætlun hæstv. ríkisstj. muni vera af5 sjá svo um, að það nái ekki fram að ganga. Hvað þýðir þetta? Það þýðir það, að hagur gamals fólks og öryrkja verður verri, en hann áður var hlutfallslega, borið saman við kjör opinberra starfsmanna og annarra launþega. Var þó ekki, eins og ég áður sagði, tilætlunin, að ríkissjóður legði fram fé í þessu skyni. Mér eru þetta sár vonbrigði, og Alþfl. eru þetta mikil vonbrigði. Og þetta eru stórkostleg vonbrigði fyrir þúsundir af öldruðu fólki og sjúklingum um landið allt. Er lítt skiljanlegt, hvað þessu veldur. Alþfl. hefur haft almannatryggingar í stefnuskrá sinni frá upphafi, barizt fyrir þeim í tugi ára, hann getur ekki, vill ekki taka upp stjórnarsamstarf við flokk eða flokka, sem vilja rýra þær eða skerða. Hæstv. landbrh. sagði stefnuskrár flokkanna svo líkar, að lítið bæri á milli. Það stoðar lítið fyrir hæstv. landbrh. að tala fjálgum orðum um stefnuskrá, ef breytni hans og flokksmanna hans er þveröfug við stefnuskrána, en svo hefur reynzt í þessu máli, og er það því miður aðeins eitt dæmi af fleirum.

Hæstv. atvmrh. lofaði að gera herför að ríkisbákninu, sem hann svo kallaði, þ.e.a.s. að hefjast handa um að skera niður og lækka útgjöld ríkissjóðs. Ekki vil ég bera brigður á, að nauðsynlegt sé og vel megi draga mjög verulega úr útgjöldum ríkissjóðs, og vil ég ljá því mitt lið, ef stungið er niður á réttum stöðum. Hæstv. atvmrh. lét fylgja þessum ummælum fleira og sagði, að nú mætti búast við því, að þær greinar, sem Alþfl. hefði gróðursett, mundu verða höggnar burt. Ég vil ekki fullyrða, að hann eigi þar við tryggingal. En þó er mér ekki grunlaust um, að það, sem þessi hæstv. ríkisstj. mundi fyrst hafa í huga að skera niður, þegar á að fara að spara á fjárl., séu einmitt framlög til þeirra, til félags-, menningar-, mannúðar- og umbótamála, sem Alþfl. hefur komið fram á seinustu árum. Væri vel, ef sá átti minn reyndist ástæðulaus. En ég vil ekki leyna því, að sá ótti býr ekki aðeins í mínum huga, heldur fjölmargra annarra um landið allt, ekki sízt eftir þá útreið, sem frv., sem ég minntist á áðan, virðist nú eiga að fá.

Hæstv. fjmrh. gerði að umtalsefni þær stórfelldu lagfæringar og hliðarráðstafanir, sem gerðar hefðu verið að tilhlutun Framsfl. í sambandi við afgreiðslu gengislækkunarl. Lítið dregur vesalan. Hann sagðist hafa fengið stóreignaskattinn stórkostlega hækkaðan, upp í 25%. En hann gleymdi að geta þess, að eignaraukaskatturinn, sem lagður var á 1947 og gat orðið 30%, var niður felldur og eftir gefinn, auk þess sem fjöldi félaga var undanþeginn öllum skatti, ekki aðeins samvinnufélög, heldur líka hlutafélög. Það eru fullar líkur til, að stóreignaskatturinn, eins og l. eru nú, verði lægri en hann var fyrst í frv. með viðaukaskattinum frá 1947. — Um endurbætur á húsnæðismálunum held ég að hæstv. ráðh. ætti að vera fáorður. Hv. 8. landsk. þm. gerði því skil í gær. Það er verið að afnema húsaleigul. Það er bjargráðið að gefa húseigendum frjálst að reka leigjendu.r út á götuna. — Jú, svo eiga neytendur að fá verðlagseftirlitið í sínar hendur. Á hvern hátt? Það á að setja verðlagsdóm, en ef ágreiningur rís milli dómendanna tveggja, þá hefur fulltrúi neytenda ekkert að segja, því að atkv. héraðsdómara ræður eitt úrslitum. Almenningur er því gersamlega áhrifalaus eftir sem áður í þessum efnum. Þetta, kallar hæstv. ráðh. að leggja verðlagseftirlitið í hendur neytenda. Skömmtunarseðlarnir eiga öllu að bjarga, en til hvers er að hafa þá og segja fólki að velja á milli verzlana, þegar svo litið er af vörum, að menn hlaupa í fyrstu búð, þar sem eitthvað fæst, til að fá vörur út á sína seðla? Meðan ekki er úr meiri vörum að velja en skömmtunarseðlarnir hljóða upp á, eða vörurnar hrökkva ekki fyrir seðlunum, þá er þýðingarlaust að tala um val milli verzlana. Þetta vita allir, og er því tillagan borin fram bara til að sýnast.

Hæstv. ríkisstj. er ekki langlíf orðin. Ræður því af líkum, að hún hefur enn litlu til vegar komið til góðs eða ills öðru, en því að leiða gengislækkunina í lög. Tilgangur hennar og markmið er að hennar eigin sögn að skapa jafnvægi í þjóðarbúskapnum og viðskiptum við útlönd og koma á réttlátari skiptingu teknanna innanlands. Hvorugt hefur tekizt enn, og litlar horfur virðast á því, að í þá átt stefni. Mér virðist þvert á móti stefna í öfuga átt. Aldrei hefur gjaldeyrisástandið verið verra en nú og aldrei meira misræmi í kjörum manna en nú. Hækkandi verðlag rýrir kjör almennings og því meir sem lengra líður frá gildistöku l. Fjárlfrv., sem nú kemur til afgreiðslu, slær öll fyrri met. Á þessu ári á að heimta inn í ríkissjóð 300 millj. kr. Það er um 10–20 millj. kr. meira en fjárl. síðasta árs gerðu ráð fyrir, og þó hafa verið felldar niður uppbótargreiðslur á útflutningsvörur, 30–40 millj. kr. Raunverulega er því hækkunin nálægt hálfu hundraði milljóna. Og öll er svo þessi hækkun fengin með því að hækka „drápsklyfjar tolla og skatta“, sem fulltrúar gengislækkunarfl. fyrir síðustu kosningar sögðu að yrði að létta af með „styrkjalausum atvinnurekstri og gengislækkun.“ Svona er nú um fjárhag ríkissjóðs og áhrif gengislækkunarinnar á hann, en hvað er um afkomu landsmanna og áhrif gengislækkunarinnar á hana, og hvað var mönnum sagt áður en gengislækkunin var samþ., um það, hver áhrif hennar mundu verða? Ég skal taka nokkur sýnishorn af því, með leyfi hæstv. forseta:

„Gengislækkunin er við það miðuð, að hún sé nægileg til þess að koma á jafnvægi í verzluninni við útlönd og því nægileg til að létta höftunum af verzluninni, þeim höftum, sem nú eru í gildi vegna jafnvægisleysis í þjóðarbúskap Íslendinga sjálfra.“ — Og enn fremur: „Gengislækkunin var áætluð í ríflegra lagi. Það hefur oft verið látið í veðri vaka, að ekki væri hægt að gera neinar ráðstafanir til úrbóta í atvinnu- og fjárhagsvandamálunum, nema slíkar skerðingar hefðu í för með sér skerðingu lífskjara þjóðarinnar í heild, einkum launþega. Þessi hugsunarháttur er að okkar áliti rangur.“

Fræðimennirnir, sem hafa undirbúið gengislækkunarfrv., héldu því fram, að „ranga gengið“ og höftin hafi haft í för með sér svo mikinn milliliðagróða, að verðhækkun útlendu varanna, sem inn eru fluttar, verði stórum minni, en gengisskr áningunni nemur, vegna þess að gengisl. tryggi afnám haftanna og frjálsa verzlun og þar með líka verðlækkun. Þetta eru fullyrðingar þeirra, sem undirbjuggu frv., og ríkisstj. gerði þær að sínum. Launþegar áttu því að fá verðhækkanir að fullu bættar eftir á og meiri og tryggari atvinnu og með verðlækkun, þegar nægar birgðir hefðu safnazt af vörum, sem þá voru á svörtum markaði. Allar þessar forsendur hafa sýnt sig að vera falskar forsendur. En ýmsir urðu til þess að trúa þessum fullyrðingum, og því var frv. veitt minni andstaða, en ella hefði orðið. Nú er frv. orðið að lögum, og nú er óþarfi að mæla svo lengur. Nú er sagt: „Þetta var síðasta neyðarúrræðið, uppskurður á helsjúkum manni, síðasta tilraunin, sem gerð er. Nú verða allir að taka á sig fórnirnar, ekki aðeins þeir ríku, og þeir mestar, sem minnstu hafa af að taka.“

Ég sé, að hæstv. forseti segir mér, að tími minn sé búinn. Ég vil aðeins bæta því við, að áður hefur verið gerð grein fyrir afstöðu Alþfl. til þessara mála. Hann hefur viljað halda áfram niðurgreiðslum á framleiðsluvörum og taka upp landsverzlun til að afnema milliliðagróða, en hinir flokkarnir hafa ekki viljað samþ. það. Það er rökrétt afleiðing af þessu, að Alþfl. hlaut að verða á móti gengislækkun og stefnu þeirrar ríkisstj., sem bar hana fram og hefur barið hana í gegn