11.05.1950
Sameinað þing: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (1164)
38. mál, fjárlög 1950
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég hef aðeins fáar mínútur til umráða. Þær nægja vegna þess, að í gær lýsti ég skoðunum mínum. Þær standa óhraktar.
Hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson, kvartaði undan kaldhug stj. í garð tryggingalaganna. Hann hefur ekki ástæðu til þessa. Hann veit, að stjórnin vill styðja það góða mál eftir getu og ber fullt traust til hans sem forstjóra þeirrar miklu stofnunar.
Hv. þm. Hafnf., Emil Jónsson, reyndi að bera í bætifláka fyrir Alþfl. út af andstöðu flokksins gegn gengisfallinu. Hann er skýr maður, en þessi galdur var honum þó ofvaxinn. Það sést bezt á því, að hann studdi mál sitt helzt með meir en tveggja ára gömlum ummælum prófessors Ólafs Björnssonar, miðuðum við ástandið eins og það þá var. En þá, fyrir meir en tveim árum, voru allir flokkar á máli prófessors Ólafs Björnssonar. Síðan hefur kaupgjald hækkað um 20–40% og afurðaverðið svipað, svo að eitthvað sé nefnt.
En aðalatriðið er, að ef fara átti uppbótaleiðina og fullnægja kröfum bátaútgerðarinnar, hefði til þess þurft 70–95 millj. kr. Ofan á það bætist verðfallið, sem síðan hefur orðið, greiðsluhalli undanfarinna ára 60 millj., og var þá óleystur vandi borgaranna. Það er því ekki víðs fjarri, að hækka hefði þurft skatta um 150–200 millj. kr., eins og Emil Jónsson sagði. Sanni nær er, að þessir skattar hefðu ekki dugað.
En það má Alþfl. eiga, að hann hefur ekki dirfzt að halda því fram, að hægt hefði verið að leggja 200 millj. kr. ofan á þær 100 millj., sem stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar var búin að leggja á þjóðina. Alþýðuflokkurinn kemst því aldrei undan að viðurkenna, að valið var milli gengisfalls og atvinnuleysis.
Emil Jónsson sagði að vísu orðrétt: „Það er bara bull, að uppbótaleiðin sé lokuð.“
Ég veit, að hann meinar þetta ekki. Þjóðin veit, að formaður Alþfl. er á öðru máli, því að í ræðu sinni í gær viðurkenndi hann, að uppbótaleiðin hefði verið farin út um þúfur. Hann lét sér aðeins nægja að bæta við, að það væri ekki sér að kenna. Það get ég vel fallizt á.
Alþfl. stendur varnarlaus og má bera, og ber vafalaust, kinnroða fyrir látalætin og loddaraleikinn í þessu mikla máli. Honum hefði verið sæmra og farsælla að fylgja sannfæringu sinni í þessu máli og styðja gengisbreytinguna. Það er svo sem ekki eins og Alþfl. hefði lagt út í neitt nýtt ævintýri með þessu. Af þrem gengisfellingum síðasta áratugs hefur Alþfl. staðið fyrir eða að tveim.
Kannske tekst engum betur að sanna þjóðinni, hvílíkur afburðamaður hæstv. utanrrh. er, en kommúnistum. Síðasti votturinn er ræða hv. 2. þm. Reykv., Einars Olgeirssonar, hér í kvöld. Ef froðunni er fleytt ofan af, er lítið eftir annað en skelfing kommúnistadeildar Íslands og móðursjúk hræðsla við Bjarna Benediktsson og svo auðvitað þjónslundin við herrana í Moskva. Af þeim rótum sprettur vaðallinn um voða Marshallhjálparinnar. Eða hvað segja verkamenn um það að stöðva nú þegar virkjun Sogsins til dæmis? En án Marshallhjálpar yrði það með öllu óumflýjanlegt. Eða hefur þjóðin ekki veitt því eftirtekt, að þrátt fyrir aflabrest og misæri höfum við þó getað lifað sómasamlegu lífi, vegna þess að við höfum átt þess kost að greiða 1/4 hluta af innflutningi okkar með Marshallfé? Sé Marshallsamstarfið Bjarna Benediktssyni að þakka, skulum við halda áfram að syngja: „Verkið lofar meistarann.“
Sjaldan hefur íslenzkur þingmaður orðið jafnber að því að fagna örðugleikum þjóðar sinnar sem Einar Olgeirsson áðan. Hann kvað frystan fisk óseljanlegan í Englandi, húrra; hann kvað frystan fisk óseljanlegan í Hollandi, húrra; hann kvað frystan fisk óseljanlegan í Frakklandi, húrra; hann kvað frystan fisk óseljanlegan víðar, húrra; o.s.frv. Hafi nokkur nokkru sinni fært sönnur á það, að kommúnistar fagna glundroða og hruni, þá tókst þessum hv. þingmanni það prýðilega áðan.
Magnús Kjartansson hóf ræðu sína þannig: „Ég vænti þess, að hæstv. utanrrh. eigi eftir að tala hér í kvöld.“ Þingmaðurinn meinti: Ég vona ekki aðeins, ég veit, að Bjarni Benediktsson á ekki eftir að taka til máls hér í kvöld. Þess vegna dirfist ég að reyna að leika mína vesælu rullu, þótt með hálfum hug sé.
Ég þykist mega fullvissa hv. þingmann um, að utanrrh. hefði ekki virt áróður hans svars. Ég er á sama máli.
Þessum umræðum er nú að verða lokið. Þær hafa víst fátt nýtt leitt í ljós.
Ekki er hinn nýi Alþýðuflokkur spánýr. Það eru liðnir nokkrir mánuðir frá því Alþfl. varð að umskipting. Eins og allir vita, færðust þessi ósköp yfir hann eftir kosningarnar á s.l. hausti. Þessi leyndardómsfulla saga, sem varla á sér fordæmi, hefst á því, að flokkurinn mun hafa tekið ákvörðun um að draga sig út úr stjórnmálaerjunum. Nokkrar vikur hefur Alþfl. alltaf haft sömu svörin á reiðum höndum, ef til hans var leitað. Hann minnti að því leyti á páfagauk, sem hefur lært þessar tvær setningar: „Ég er ábyrgur.“ „Málefnin ráða.“
Skömmu síðar hófst flokkurinn handa um framkvæmd stefnuskrár hinnar fyrstu fyrrverandi stjórnar Alþfl. Alþfl. felldi sem kunnugt er minnihlutastjórn Sjálfstfl., en lýsti jafnframt yfir, og þá væntanlega af því að hann er ábyrgur, að myndun nýrrar stjórnar í 1andinu væri sér með öllu óviðkomandi. „Málefnin ráða,“ virðist flokkurinn skilja þannig, að úr því hann sé ekki lengur í stjórn, heldur í stjórnarandstöðu, þá beri honum líka að vera á móti öllum þeim málum, sem hann áður fylgdi, og með því, sem hann áður deildi á. Þeir, sem ekki vissu þetta fyrr, hafa heyrt það nú við þessar umræður.
Elzt er þó og ellilegust barátta kommúnistanna. Vopnaburður þeirra er jafngamall ofstækistrúnni. Þar helgar tilgangurinn meðalið, en boðorðið stílfærði guð þeirra og meistari Lenin, er hann sagði:
„Við verðum að vera reiðubúnir að nota brögð, svik, lögbrot, að skjóta undan og fela sannleikann.“
Að íslenzkir kommúnistar eru orðnir vel æfðir í að minnsta kosti sumum þessum listum, hafa menn heyrt hér í kvöld. Það er með því að „skjóta undan“ og „fela sannleikann“, sem þeir glíma við höfuðandstæðing sinn, hæstv. utanrrh., ekki sízt er þeir ræða um afurðasölumálin. Án slíkra bragða og undanbragða, án þess að „fela sannleikann“ og „skjóta undan,“ án þess að lemja höfðinu við steininn og neita staðreyndum, yrðu þeir að játa, að þessi mikilhæfasti andstæðingur þeirra hefur allra manna bezt unnið að því að ryðja afurðum Íslendinga braut; og það, sem meira er, náð meiri árangri, líka austan járntjaldsins, en nokkur annar, þegar Rússar einir eru undanskildir. Þeir virðast ekkert vilja við okkur skipta. Til skamms tíma hafa þeir fært fram þau rök, að íslenzk útflutningsvara væri of dýrseld, þ.e.a.s. að kommúnistarnir hafi með óhóflegum kröfum á hendur framleiðslustarfseminni gert vinum sínum, Rússum, ókleift að neyta hinnar gómsætu, íslenzku útflutningsvöru. Í gær upplýstist að vísu alveg ný hlið málsins í ræðu þeirri, er hv. þm. Siglf., Áki Jakobsson, flutti, en hann skýrði frá því, að Rússar vildu ekki kaupa fisk, nema sannfæringin fylgdi með. Þá er þeim viðskiptum lokið.
Nei, í baráttu íslenzkra kommúnista er ekkert nýtt og verður ekkert hagnýtt að óbreyttum heimsstjórnmálum. Það er þjóðin farin að skilja. Af því stafar fylgistap kommúnistanna, sem þá og þegar getur breytzt í hrun, þrátt fyrir hæfni og dugnað ýmissa forustumanna þeirra.
Í öllu þessu moldviðri sýnist mér fátt nýtt, nema þá helzt ef vera skyldi það, að um „sameiningu verkalýðsins“ skyldu menn halda, sumpart af þessum umræðum, en einkum þó af skrifum Alþýðublaðsins og Þjóðviljans að undanförnu, að tekizt hefði „sameining verkalýðsleiðtoganna“. Allt er það þó aðeins stundarfyrirbrigði. Alþfl. er í veiðihug. En þegar fuglinn flýgur upp, þegar fiskurinn dreifist um allan hinn pólitíska sjó, þegar hvergi er veiðivon, þegar leiðtogum Alþfl. skilst, að þeim auðnast ekki að krækja sér í pólitískan ávinning með kommúnistíska beitu á önglinum, munu þeir hverfa aftur heim til föðurtúnanna og taka upp að nýju samstarf við lýðræðisflokkana. Verður þá án efa slátrað alikálfi og glaðzt yfir afturhvarfi hins glataða sonar.
Vissulega munu margir örðugleikar biða Íslendinga á næstunni. En hver hefur ekki sömu, sögu að segja? Og raunar flestir það, sem verra er. Við eigum ekki að aumka sjálfa okkur umfram það, sem efni standa til. Okkur er engin vorkunn. Við erum betur búnir til baráttunnar en nokkur önnur kynslóð, sem lifað hefur í þessu landi. Skorti okkur ekki skilning á rás viðburðanna, samheldni, atorku, manndóm, erum við einfærir um að ráða farsællega fram úr þeim vanda, sem við er og verður að etja. Þá mun okkur auðnast að tryggja fjárhagsafkomu, efnahagsöryggi og hagsæld Íslendinga.
Ég lýk þessari stuttu athugasemd minni með því að minna á kjarna málsins, en hann er, að sá, sem vildi afstýra böli atvinnuleysisins, átti engin úrræði önnur, en gengisbreytinguna. Án efa bitnar hún á mörgum, einkum fyrstu mánuðina. En flestir fá þó hlut sinn að mestu bættan. Aðalhættan er sú, að verðfall íslenzkra afurða valdi því, að gengisfellingin nái ekki tilgangi sínum. Þá fá menn að reyna atvinnuleysið, og þá mun þeim skiljast, að þeir, sem börðust gegn krónufallinu og fyrir atvinnuleysi og hruni, voru ógæfumenn íslenzkra stjórnmála.
Ég skora á þjóðina að sýna stillingu og taka með velvilja og samúð þeim tilraunum, sem nú eru gerðar til þess að bægja fjanda íslenzkrar alþýðu, atvinnuleysinu, frá dyrum hennar.