11.05.1950
Sameinað þing: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

38. mál, fjárlög 1950

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Umræður þessar hafa af hálfu hæstv. ríkisstj. að miklu leyti snúizt upp í ádeilu á Alþfl. fyrir að hann standi utan ríkisstj. og hafi neitað að taka þátt í gengisfellingunni. Gera andmælendur ýmist að bera Alþfl. vammir á brýn eða kvarta yfir að hafa hann ekki með sér í ríkisstjórn.

Síðustu alþingiskosningar snerust að verulegu leyti um gengisfellinguna. Við Alþýðuflokksmenn lýstum yfir í kosningunum, að við værum andstæðir gengislækkun. Kjósendur okkar kusu okkur á þeim forsendum. Við erum fulltrúar á Alþingi fyrir þá, sem eru á móti gengislækkun. Enginn þarf að ganga þess dulinn. Við hefðum brugðist kjósendum og kosningaloforðum, ef við hefðum snúist í lið með gengislækkunarmönnunum að loknum kosningum. Bæði Þjóðviljinn og Tíminn sögðu fyrir kosningar, að við myndum svíkja kosningaloforð okkar, og nú eru framsóknarmenn básvondir yfir því, að við uppfyllum ekki þennan spádóm þeirra. Kemur þar fram, að margur heldur mann af sér mátulega dyggan.

Vonzka framsóknarmanna yfir orðheldni okkar Alþýðuflokksmanna við okkar kosningastefnu er skiljanleg, þegar athuguð eru þeirra kosningaloforð og þeirra orðheldni, svo sem rakið hefur verið hér í þessum útvarpsumræðum. Kjósendur Framsfl. um allt -land spyrja: Hvar er blessun gengislækkunarinnar? Hvar eru hliðarráðstafanirnar, útrýming svarta markaðarins, hvar er hið volduga verðlagseftirlit, afnám húsaleiguokursins, uppfylling loforðanna um næga skömmtunarvöru, breiðu bökin, sem bera áttu byrðarnar o.s.frv., o.s.frv.? Þeir mega lengi spyrja. Svarið verður hið hafa og hjá Bólu-Hjálmari með tóman klyfjahestinn: „loforð öðrum megin og svik hinum megin.“

Hæstv. forsrh. kvartaði yfir því hér í gær, að Alþfl. stæði við hlið kommúnista í því að eyðileggja hin góðu áhrif gengislækkunarlaganna. Þetta er ekki rétt. Í fyrsta lagi stendur Alþfl. ekki við hlið kommúnista í þessu máli. Alþfl. er eindreginn í andstöðunni gegn lagasetningunni, en kommúnistafl. hefur m.a. verið með tillögu um að láta útvegsmenn selja helming gjaldeyrisins á svörtum markaði, sem mundi verðfella gjaldeyrinn enn meira, ef hann gæti á þann hátt náð sínu takmarki. Í öðru lagi sjást engin góð áhrif gengislækkunarinnar. Í þriðja lagi hvolfast yfir ríkisstj. andmæli gegn áhrifum gengislækkunarinnar frá framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum. Ekki hefur Alþfl. staðið að fundum bænda austanfjalls eða í Borgarfirði, þar sem bændur hafa gert kröfur til ríkisstj. og mótmælt verðhækkun á tilbúnum áburði, verðhækkun á benzíni og verðhækkun á landbúnaðarvélum! Ekki hefur Alþfl. stjórnað umkvörtunum útvegsmanna, sem sent hafa hverja nefndina á fætur annarri á fund hæstv. atvmrh. til þess að sannfæra hann um, að hagur bátaútvegsins er lakari eftir gengislækkunina, en áður. Þetta hafa flest verið ágætir sjálfstæðismenn, og svörin, sem þeir hafa fengið, hafa jafnan verið þessi: „Ætlið þið að drepa Sjálfstfl. með því að segja frá þessu opinberlega?“ Og útvegsmannanefndirnar hafa snúið aftur vonsviknar til funda Landssambands útvegsmanna, sagt þar sínar farir ekki sléttar og setið þar hnípnar og ráðvilltar. Þeir hafa eins og bændur, og eins og Alþfl., leitað að blessun gengislækkunarinnar, en eigi fundið hana.

Bjargráðin svonefndu við útgerðina hafa í framkvæmd og höndum núverandi ríkisstj. snúizt upp í bölvun.

Hið sama hefur orðið upp á teningnum hjá sjómönnum, verkamönnum, iðnaðarmönnum, verzlunarmönnum og embættismönnum. Öllum hefur verið lofað öllu fögru af hæstv. ríkisstj., en veruleikinn hefur verið allur annar. Ríkisstj. er blind fyrir þessu. Síðast í gærkvöld ræddi hæstv. forsrh. um „smáfórnir.“ Staðreyndirnar blasa þó við. Í skjóli gengislækkunarinnar hafa ýmsir braskarar grætt stórfé á innflutningi og útflutningi, án þess að nokkur tilraun sé gerð af hálfu hæstv. ríkisstj. til þess að hafa hendur í hári þeirra. Hins vegar hefur gengislækkunin, eins og hún hefur verið framkvæmd, enn eigi valdið öðru en tjóni og vandræðum í hvívetna.

Þetta er ekki eingöngu, reynsla Alþfl., heldur sameiginleg skoðun allra stétta, nema örfárra braskara, sem í skjóli lélegrar lagasetningar og ónógs eftirlits hafa grætt of fjár á gengislækkuninni.

Hin eina björgunarstarfsemi hæstv. ríkisstj., sem sannarlega hefur tekizt, er sú, að bjarga Björgvin Bjarnasyni úr landi. Mér virðist afgreiðsla hæstv. ríkisstj. á því máli vera táknræn fyrir hina svonefndu björgun hennar við atvinnuvegina. Útgerðarmaður fer úr landi með fjögur skip, öll eikarbyggð, eitt er gamalt, en gott síldarskip, sem lengi var með hæstu síldarskipum, tvö eru aðeins 15 ára og eitt er 10 ára gamalt. Skipunum er ágætlega við haldið. Eigandinn býðst til að greiða sjóveðskröfur skipverja með því skilyrði, að hann fái útflutningsleyfi fyrir skipunum. Fyrrv. ríkisstjórn, minnihlutastjórn Sjálfstfl., neitaði u.m leyfið. Dollarar útflytjandans hækka í verði, krónan er felld, skuldirnar lækka. Framsfl. myndar ríkisstjórn með Sjálfstfl. Samningar hefjast milli ríkisstj. og strokumannsins. Ríkisstj. segir, að Björgvin verði að borga meira en sjóveðskröfurnar. Björgvin fellst á það, en segir um leið: „Ef ég á að borga meira, verð ég að fá útflutning á öllu lausafé mínu á Ísafirði.“ Ríkisstj. fellst á það og sendir á eftir Björgvin 20 smálestir af herpinótum og fjóra snyrpibáta með vélum og tilheyrandi. Björgvin setur tryggingu fyrir greiðslu á 1.7 millj. kr. Kröfuhafar fyrir tveim millj. króna fá ekki tækifæri til að lýsa þeim, og Björgvin er fyrsti útgerðarmaðurinn, sem fær útstrikað aðstoðarlán hjá ríkissjóði. Kærur fyrir stórkostleg gjaldeyrissvík og annað verra athæfi eru látnar niður falla. Flóttinn frá ákærum, skuldum og skuldbindingum er verðlaunaður með útflutningi skipanna. Hæstv. atvmrh., Ólafur Thors, sagði í gærkvöld, að hann hefði sett kíkinn fyrir blinda augað. Jafnframt fullyrti hann og hafði sér til afsökunar, að hin ágætu skip Ísfirðinga væru fúaduggur. Þannig eru flótti og svík verðlaunuð af hæstv. ríkisstj. Einn treysti Sjálfstfl. sér ekki til þess að framkvæma þetta. Hann þurfti að fá Framsókn í ríkisstj. með sér til að deila ábyrgðinni. Með þessu hefur verið sett fordæmi, sem varla á sinn líka í stjórnmála- eða atvinnusögunni. Útgerðarmaður, sem flýr úr landi með skip sín, setur ríkisstj. skilyrði fyrir lögveðsgreiðslum og fær fulla áheyrn hjá hæstv. ríkisstj., á sama tíma og þeir útvegsmenn, sem heima sitja, eru látnir bíða afgreiðslu.

Ein áhrif gengisfallsins, sem ekki hefur verið bent á, eru verðfall íslenzkra afurða á erlendum markaði. Kaupendum er kunnug gengisfelling krónunnar, og nokkur dæmi munu nú þegar vera til þess, að krafizt hefur verið verðlækkunar á þeim grundvelli. Annars væri óskiljanleg sú verðlækkun, sem orðið hefur á saltfiski, t.d. á Ítalíu. Tíminn leyfir eigi, að ég fari nánar út í þetta mál, en ég vil að lokum víkja nokkrum orðum að hinum eðlilega þætti stjórnarandstöðunnar.

Ýmsar aðgerðir núverandi stjórnarflokka ganga mjög á rétt sjómanna, verkamanna, iðnaðarmanna og annarra launastétta í landinu. Á þessu þarf að hafa vakandi auga og veita sem öflugasta andstöðu. Þetta er hlutverk Alþfl. Kjósendur kommúnistafl. eru yfirleitt úr sömu stéttum og kjósendur Alþfl., en forustumenn kommúnista sinna fyrst og fremst hagsmunum Rússa, og er því í engu trúandi til að gæta réttar eða hagsmuna launastéttanna.

Hæstv. atvmrh. varð að viðurkenna í gærkvöld, að Alþfl. hefði mörgu góðu til leiðar komið með stjórnmálabaráttu sinni. Þetta eru orð að sönnu. En hinn góði árangur af baráttu Alþfl. hefur ýmist náðst með stjórnarsamvinnu eða í stjórnarandstöðu. Það er Alþfl. eins og einskis annars að ákveða, hverja leið hann telur að hverju sinni líklegasta til árangurs. Hlutverk Alþfl. hefur oft verið það, að fá aðra flokka, þ. á m. Sjálfstfl., til þess að framkvæma hið góða, sem hann annars ekki vildi gera, því að sá flokkur hefur siður en svo verið á sömu línu og postulinn Páll. Stundum hefur þetta tekizt eftir ítrekaðar tilraunir. Félagsmálalöggjöf okkar og kjör almennings í landinu bera þess ljósan vott.

Kommúnistum, sem sífellt eru að reka hornin í Alþfl., skal á það bent, að Alþfl. var stofnaður 1916 og byltingin í Rússlandi var gerð á næsta ári, 1917. Þessi fyrirtæki mega því heita jafngömul. Á þessum árum hefur Alþfl. með starfi sínu í verkalýðsfélögunum og á Alþingi tekizt að bæta stórkostlega kjör alþýðunnar á Íslandi, þannig að hún á við ólíkt betri kjör að búa, og þar að auki fullt frelsi, heldur en alþýðan í hinu volduga Rússlandi, þar sem kommúnisminn er einráður; þar býr alþýðan við kúgun, örbirgð og ófrelsi.

Slíkur er munur á árangri af starfi lýðræðisjafnaðarmanna og kommúnista. Hér á Íslandi hafa kommúnistar tafið framgang jafnaðarstefnunnar með því að berjast harðlega gegn Alþfl., en Alþfl. heldur ótrauður áfram að berjast fyrir stefnu sinni, eins og ég sagði áðan, ýmist í stjórnarsamvinnu eða stjórnarandstöðu., eftir því sem hann telur hagsmunum umbjóðenda sinna bezt borgið hverju sinni. Árangurinn fer eftir því á öllum tímum, hvern stuðning kjósendur veita Alþýðuflokknum.