11.05.1950
Sameinað þing: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (1180)

38. mál, fjárlög 1950

Frsm. minni hl. (Ásmundur Sigurðsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af brtt., sem ég flyt ásamt tveimur öðrum hv. þm. Brtt. er á þskj. 724, VI, við brtt. hæstv. ríkisstj. á .þskj. 713.

Þegar þetta mál var upphaflega til meðferðar hér á þingi fyrir jólin í vetur, var flutt um það þáltill., sem vísað var til fjvn., og klofnaði nefndin um það. Ég lagði þá til, að í stað 20%, sem skyldi fara til allra launaflokka, þá skyldu uppbæturnar á lægstu launaflokkana vera 20%, allt að þeim, sem hafa 650 kr. á mánuði, en síðan skyldu þær fara stiglækkandi, eftir því sem launin hækkuðu, um 1,5% fyrir hvern 1aunaflokk. Þessi till. mín var þá felld, en samþ. að greiða 20% uppbót öllum launaflokkum.

Nú sé ég hins vegar, að hæstv. ríkisstj. hefur að nokkru fallizt á mína till. frá í vetur með því að laga þetta nú að verulegu leyti, en í till. hennar á þskj. 713 er nú gert ráð fyrir, að á laun skv. I.—III. launaflokki komi 10% uppbætur, á IV. flokk 12%, á V.-IX. flokk 15% og að lokum á X.–XV. flokk 17%. Þetta sýnir fullkomlega, að ríkisstj. hefur fallizt á sjónarmið mitt, sem ég hélt fram í vetur, að verulegu leyti. Hins vegar sýnist mér þessi lagfæring ekki eins sanngjörn og í till. minni frá því í vetur, og þess vegna flyt ég hana nú aftur, þar sem lagt er til, að launauppbætur á lægstu launaflokka verði 20%, en fari stiglækkandi. Einnig flyt ég þá brtt. víð 2. lið, að í stað 15% komi 20% uppbót á lífeyri og eftirlaun, eins og ég lagði til í vetur. Ég vænti þess nú, að þessi till. mín fái betri undirtektir en í vetur og verði nú samþ.