11.05.1950
Sameinað þing: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 968 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)

38. mál, fjárlög 1950

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Ég vil út af þessum ummælum mótmæla því, sem hv. 5. landsk. segir. Ég kannast ekki við, að neinir menn hafi ætlað að sprengja samkomulagið í n. um verklegar framkvæmdir. Það er heilaspuni, sem hv. þm. væri sæmst að viðurkenna. (HV: Það lá við sprengingu, í vegamálunum. Það voru í tvo daga átök um vegamálin.) Þetta er fjarstæða. Það var ágætt samkomulag um þau. Það hafa oft verið harðari átök um þau, en nú.

Það er rétt, að hv. þm. er ekki nema einn af níu nm. En hann gat verið kröfuharður fyrir því, þó að hann hefði ekki atkvæðamagn til að koma því fram.

Ég hef ekki farið með nein ósannindi. Ég sagði, að hann hefði rætt um till. viðvíkjandi fjárhagsráði og skömmtun, og hann veit, hvaða afstöðu ég tók. Þarna var farið fram á, að liðurinn stæði óbreyttur. Og hvað þýddi þá að koma með till. um að breyta tölunum? Hér er fyrst og fremst komið undir framkvæmdinni, en ekki hvaða tölur standa í fjárl. Og ég mótmæli algerlega fullyrðingu hans, að það hafi átt að sprengja samkomulagið í n. um verklegar framkvæmdir. Það er ekkert annað en hugarburður.

Hv. 7. þm. Reykv. átti erfitt með að skilja þann hugsunarhátt, sem væri á bak við orð mín í sambandi við till. um launahækkanir embættismanna. Dæmið, sem ég tók, var til að sýna, hversu fjarstætt hans dæmi var. Það var enginn sérstakur hugsunarháttur, sem lá á bak við það nema að sýna, hvað fáránlegt dæmi hann tók. Og ef hann hefur ekki skilið sitt eigið dæmi, þá er varla að undra, þótt hann skildi ekki mitt.

Mig undrar, að hann skuli halda fram þessari skoðun í sambandi við laun embættismanna. Þekkir hann svo litið íslenzkt þjóðlíf, að hann haldi, að þjóðin viðurkenni þann hugsunarhátt, að það sé um að gera að hækka laun þeirra manna, sem eru langbezt settir um sína atvinnu og afkomu? Þeir hafa öruggasta afkomu, eins og sjá má á því, að það er þessi aðstaða, sem flestir keppa eftir að komast í. Heldur hann, að hann geti fengið nokkurn alþýðumann eða nokkurn Íslending með heilbrigðri skynsemi til að trúa því, að það sé leið til einhvers þjóðarbjargræðis að stefna að því, að þessir menn hafi há laun, mikil eftirlaun, stuttan vinnutíma og lítil afköst? Þessu er hann að keppa að. Hann segir, að fjárfestingin orsaki dýrtíðina. Hvaða fjárfesting er það að greiða 14 millj. kr. í laun til embættismanna? Hefur hann nokkra tryggingu fyrir, að þessir menn byggi sér ekki hús fyrir það eða bilskúra eða kaupi sér bila eða hús fyrir það? Hann hefur enga tryggingu. Hann segir, að launin fari aftur til ríkissjóðs í sköttum. Ef hann er viss um það, hvers vegna er hann þá að berjast fyrir þessum launahækkunum í líf og blóð? Eru þessir menn nokkru bættari, þótt þeir fái að stinga þessum launum niður í vasa sinn stundarkorn, ef þeir verða undireins að borga það aftur í skatta?

Nei, hann er aðeins útsendari þessara manna. Hann er þeirra æðsti postuli til að tryggja þeim þann rétt, sem þeir hafa, tryggja þeim meiri rétt, en þeir hafa nú, tryggja þeim lífsþægindi, sem þeir hafa fram yfir aðra, hvað sem það kostar, á kostnað bænda og sjómanna, sem verða að leggja nótt við dag til að afla sér og sínum brýnustu lífsnauðsynja. Þeir þurfa ekki að vinna 5 tíma á dag, þeir þurfa að vinna 16–20 tíma. Þessir menn skilja ekki hugsunarhátt hv. þm. Þjóðin væri illa farin, ef hún skildi hann, eins illa farin og ef meiri hluti þjóðarinnar væru embættismenn til að tryggja sér þau lífskjör, sem hann vill tryggja þessari stétt, sem er bezt sett af öllum stéttum þessa lands. Og það eitt er víst, að það verður ekki embættismannastéttin, sem bjargar þessari þjóð yfir örðugleikana, það verða hinar vinnandi stéttir.