22.11.1949
Neðri deild: 3. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)
11. mál, togarakaup ríkisins
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Mig langaði aðeins til að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forsrh., hvort sú upphæð, sem hér er um að ræða, 32.775.000 kr., eða um 3,3 millj. kr. á skip, sé nægileg til þess að greiða fyrir þessa 10 togara, til að greiða allt, sem þarf að greiða fyrir þá í Englandi, eða hvort gert ei ráð fyrir, að einhver viðbótargreiðsla í erlendri mynt þurfi að koma til viðbótar þessu láni, sem tekið hefur verið.